Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 124
124. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 21. apríl 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201003116 - Ósk um stækkun bílastæðis við hjúkrunardeild HSSA
Sótt er um leyfi til að stækka bílastæði framan við inngang neðri hæðar hjúkrunardeildar HSSA á Víkurbraut 29,um ca. 173 m2, skv. uppdrætti frá Verkfræðiþjónustunni ehf, gerðum af Björgvin Ó. Sigurjónssyni. Umsækjandi er Guðrún Júlía Jónsdótir, f.h. HSSA
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir stækkun á bílastæði í samræmi við gögn unnin af Verkfræðiþjónustunni ehf.
2. 200801024 - Nýr kirkjugarður, sbr. 122. fund nefndarinnar
Umræður um nýtt kirkjugarðsstæði, sbr. eftirfarandi bókun á 122. fundi nefndarinnar undir liðnum Önnur mál: ,, fyrirhugað nýtt kirkjugarðsstæði við Réttarkletta. Samþykkt að taka málið fyrir á næsta fundi nefndarinnar,,
Starfmenn gerðu grein fyrir málinu á fundinum.
3. 200912034 - Breyting á aðalskipulagi á Lambleiksstöðum á Mýrum
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi v. Lambleiksstaða tekin til umfjöllunar í nefndinni. Tillagan hefur verið auglýst í lögboðinn kynningartíma og hafa engar athugasemdir borist.
Engar athugasemdir bárust. Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að vísa breytingatillögunni óbreyttri til seinni umræðu í bæjarstjórn.
4. 201004006 - Ósk um leyfi um breytta notkun húsnæðis að Víkurbraut 2
Sótt er um leyfi til að nýta norðuenda efri hæðar Víkurbrautar 2, sem íbúðarrými til skammtímaútleigu, einkum yfir sumartímann. Ekki er gert ráð fyrir því, að fólk geta haft þar fasta búsetu eða lögheimili. Umsækjkendur eru Gunnar Þór Guðmundsson og Guðmundur H. Gunnarsson
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir breytta notkun á rýminu í samræmi við umsókn dagsetta 07.04.2010 með fyrirvara um endanlegt samþykki eldvarnar- og heilbrigðiseftirlits.
5. 201003118 - Ósk um leyfi til að setja upp veitingatjald á Hellnanesi við Dynjanda
Sótt er um leyfi til að setja upp ca 50 ferm. veitingatjald á Hellnnasi í landi Dyndanda, fyrir veitingasölu yfir sumarmánuðina (júní-september) Vilyrði liggur fyrir frá Vegagerðinni um leyfi til að nota útskot þjóðvegar nr.1 sem bílastæði vegna starfseminnar fyrst um sinn. Umsækjandi er Hanny Heiler.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir uppsetningu veitingatjaldsins í samræmi við umsókn dagsetta 08.03.2010.
6. 201002029 - Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut, Tjarnarbrú, nýju sundlaug og íþróttasvæði
Framhaldsumræður um Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut,Tjarnarbrú og sundlaugar- og íþróttasvæði.
Nefndin lýsir yfir ánægju með framkomnar tillögur þar sem gert er ráð fyrir sveigjanleika í nýtingu lóða á deiliskipulagssvæðinu. Samþykkt að taka málið fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
7. 201003021 - Umsókn um byggingarleyfi Hof I Austurhús
Byggingarleyfisumsókn Frosts og funa (Knúts Bruun) Farið yfir feril grenndarkynningar vegna fyrirhugaðrar byggingar á Hofi 1-Austurhúsum. Kynnt voru svör Margrétar Hallgrímsdóttur, þjóðminjavarðar og Nikulásar Ú. Mássonar, forstöðumanns húsafriðunarnefndar, og afstaða sóknarnefndar og íbúa á Hofi á málinu, við fyrirspurn Hauks Inga um málið. Starfsmenn gerðu grein fyrir vettvangsferð starfsmanna o.fl. að Hofi, samtölum við landeigendur að Hofi. Byggingar- og skipulagsnefnd fjallaði um athugasemdir sem bárust. Ennfremur gerð grein fyrir samtölum við lögfræðinga um málið. Eftir skoðun á gögnunum og ítarlegar umræður um málið samþykkir byggingar- og skipulagsnefnd fyrirliggjandi umsókn með þeim kvöðum að trjáplöntur verði gróðursettar sunnan og vestan við fyrirhugaða byggingu til að framkvæmdin falli sem best í umhverfi sitt. Jafnframt beinir byggingar- og skipulagsnefnd þeim eindregnu tilmælum til landeigenda á Hofi að vinna deiliskipulag fyrir jörðina og móta þannig stefnu um frekari uppbyggingu mannvirkja á Hofi. Byggingar- og skipulagsnefnd áréttar að ekki verði farið í frekari framkvæmdir fyrr en fullgild leyfi liggi fyrir.
8. 201002032 - Umsókn um lóð - Skeljungur
Kynnt verður fyrirliggjandi tillaga (fyrirspurnarteikning)að lóð fyrir sjálfsgreiðslustöð Skeljungs við gatnamót Hafnarbrautar/Vesturbrautar. Uppdráttur, dags. 08.04.2010, gerður af ARKÍS arkitektum, Aðalstræti 6, Rvík.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að hefja deiliskipulagsvinnu út frá fyrirliggjandi uppdrætti frá ARKÍS arkitektum dagsettum 08.04.2010.
9. 200905107 - Flugbraut við Skaftafell Deiliskipulagstillaga
Lögð er fram deilisipulagstillaga að flugvallarsvæði í landi Freysness, við Skaftafell í Öræfum, gerð af Þorleifi Eggertssyni, arkitekt, dags. 31.03.2010. Flugbrautin er sýnd á Aðalskipulagi sveitarfélagsins 1998-2018, og hennar getið í greinargerð skipulagsins, gr.3.6.7. þrátt fyrir það er svæðið merkt (með litatákni) sem efnistökusvæði, í stað þjónustusvæðis. Umsækjendur eru Anna María Ragnarsdóttir landeigandi, Jón Grétar Sigurðsson, f.h. Alantsflugs ehf og þorleifur Eggertsson, arkitekt.
Afgreiðslu málsins frestað þangað til breyting á aðalskipulagi þar til gerð hefur verið breyting á aðalskipulagi. Byggingar- og skipulagsnefnd vísar málinu til starfsmanna.
10. 201003039 - Umsókn um leyfi til að byggja gróðurhús á lóð nr. 48 í Stafafellsfjöllum
Sótt er um leyfi til að byggja um 18,0 ferm. gróðurhús á lóð nr. 48, í Stafafellsfjöllum. Umsóknin var tekin fyrir og afgreidd á 122. fundi nefndarinnar 10. mars, s.l. Um er að ræða endurnýjun umsóknar, með rökum umsækjanda og lögð fram sömu gögn og á fyrra fundi.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að umsókn fari í grenndarkynningu og fái afgreiðslu að henni lokinni. Grenndarkynningin fari fram meðal landeigenda og þeirra lóða sem liggja að lóð nr. 48. Byggingar- og skipulagsnefnd felur starfsmönnum jafnframt að ræða við landeigendur um hugsanlega endurskoðun á skilmálum deiliskipulags í Stafafellsfjöllum m.t.t. breyttra þarfa sumarhúsaeigenda. Nefndin telur tímabært að sú vinna hefjist sem fyrst.
11. 201004022 - Umsókn um byggingarleyfi Skálafell lóð A
Sótt er um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð A í landi Skálafells 1, Suðursveit. (neðan þjóðvegar nr.1)samkv. teikn. frá Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar ehf. Dalvegi 18, Kópavogi, gerðum af Hauki Ásgeirssyni verknr.1216, dags. í mars, 2010. Umsaækjandi er Haukur Ásgeirsson, f.h. Eyþórs Ingólfssonar, Kársnesbraut 101 Kópavogi
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu frístundahúss á lóð A í landi Skálafells 1 í Suðursveit samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar.
12. 200912034 - Deiliskipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Tekin til umræðu lagfærð deiliskipulagstillaga fyrir Lambleiksstaði, sbr. athugasemd, sem nefndin gerði á 123. fundi sínum 24.03.2010
Byggingar- og skipulagsnefnd mælir með því við bæjarstjórn að auglýsa fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi lagða fram af Kára Gunnarssyni landfræðingi. Nefndin samþykkir einnig að veita stöðuleyfi til sex mánaða fyrir smáhýsum nr 1,2,3,4,5,7 og 8 í samræmi við óstaðfest deiliskipulag með fyrirvara um að fullnægjandi gögn berist.
13. 201004026 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja glerskýli yfir svalir á vesturstafni gistihússins á Brunnhóli, Mýrum, samkv. teikn. frá Glámu-Kím, Arkit. dags. 30.03.2010. Umsækjandi er Árni Kjartansson, f.h. eigenda.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir byggingu glerskýlis samkvæmt teikningu frá Glámu - Kím dags. 30.03.2010
14. 201003121 - Lóðarumsókn - Hagatún 16
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 15.04.2010,umsókn Geirs Þorsteinssonar, f.h. Þingvaðs ehf, um lóð nr. 16 við Hagatún, til meðferðar í byggingar- og skipulagsnefnd
Byggingar- og skipulagsnefnd mælir með því að lóðinni verði úthlutað til umsækjenda. Nefndin bendir jafnframt á skipulagsskilmála lóðarinnar og að huga þarf að loðamörkum.
15. 201004035 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vegaslóða frá varnarvarði við Fláajökul að jökulrönd
Sótt er um leyfi til að leggja veg frá enda varnargarðs við Fláajökul, að jökulrönd, skv. bréfi, dags. 14. apríl, 2010. Tilgangur vegagerðarinnar, sem er að stórum hluta uppbygging og lagfæring á núverandi vegi, er að bæta aðgengi að Fláajökli og að skapa möguleika á uppbyggingu ferðaþjónustu á og við Fláajökul, á svæði, sem nú þegar er orðið fjölsótt. Umsækjendur eru hlutaðeigandi landeigendur á Mýrum.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir lagningu vegslóðans.
16. 200705114 - Önnur mál
Aukafundur í byggingar- og skipulagsnefnd
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að halda aukafund á þriðjudaginn, 27. apríl nk. kl 17:00.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00


