Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 123
123. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 24. mars 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Björgvin Sigurjónsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201002029 - Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut, Tjarnarbrú, nýju sundlaug og íþróttasvæði
Áframhaldandi vinna við deiliskipulag miðbæjarsvæðis.
Farið var yfir málið á fundinum. Ýmsar tillögur bornar fram. Starfsmanni falið að taka saman minnispunkta og senda á nefndarmenn og vinna áfram að málinu.
2. 201003021 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning við Hof í Öræfum
Til kynningar.
3. 201002032 - Umsókn um lóð - Skeljungur
Tillaga að útfærslu lóðar við Víkurbraut - Deiliskipulag - Dælustöð fyrir Skeljung
Farið var yfir málið á fundinum. Ýmsar tillögur bornar fram. Starfsmanni falið að taka saman minnispunkta og senda á nefndarmenn og vinna áfram að málinu.
4. 200912034 - Breyting á aðalskipulagi á Lambleiksstöðum á Mýrum
Tillaga að nýju deiliskipulagi við Lambleiksstaði
Farið var yfir drög að deiliskipulagi sem lagt var fram af landeigendum á Lambleiksstöðum. Nefndin gerir athugsemdir við framlögð gögn og bendir m.a á að inná uppdrátt vantar nánari skýringu á aðkomu fyrir bíla, byggingareiti, atðsöðuhús við tjaldstæði, upplýsingar um fráveitu og f.l þætti. Starfsmanni falið að koma athugasemdum til viðkomandi aðila.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20


