Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 119
119. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 26. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Torfi Friðfinnsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 201001053 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við leikskólann á Lönguhólum, Kirkjubraut 47, samkv. teikn.frá ARKÞING, Bolholti 8, Rvík. undirrituðum af Hirti Pálssyni, byggingarfr. Um er að ræða stakstætt hús ásamt tengigangi, hvort tveggja úr timbri. Verknr. 09036, dags. 20.01.2010. Auk viðbyggingarinnar verða gerða nokkrar minniháttar breytingar innan húss á eldri hluta skólans. Umsækjandi er Stefán Ólafson, f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Dagsetning umsóknar 20.01.2010
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir viðbyggingu við leikskólann á Lönguhólum samkvæmt fyrirlyggjandi teikningar ARKÞINGS dags. 20.01.2010.
2. 201001023 - Beiðni um breytingu á skráningu Hagatúns 1 úr tvíbýlishúsi í einbýlishús
Sótt er um leyfi, í bréfi dags. 15.01.2010, til að skrá íbúðarhúsið á Hagatúni 1, sem einbýlishús í stað tvíbýlis, eins og nú er. Umsækjandi er Ellen Maja Tryggvadóttir, Ytri- Tindstöðum, 116. Reykjavík.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir breyttri skráningu húsnæðis við Hagatún 1 samkvæmt bréfi frá Ellen Tryggvadóttur dags. 15.01.2010.
3. 201001028 - Beiðni um framkvæmdaleyfi til efnistöku við Breiðá í Öræfum
Kynnt gögn er varða fyrirhugað grjótnám Vegagerðarinnar við Breiðá.
Byggingar- og skipulagsnefnd mælir með því að Vegagerðinni verði veitt framkvæmdaleyfi fyrir efnistökunni, en bendir á að ef Vegagerðin hyggst ekki nýta námuna frekar, verði hugað að frágangi námunnar í samræmi við vinnureglur Vegagerðarinnar. Verði náman hinsvegar nýtt síðar verði að óska álits Skipulagsstofnunnar um áframhaldandi efnistöku úr námunni.
4. 200912034 - Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Lögð fram tillaga (ófullgerð) Sigbjörns Kjartanssonsr, arkit. að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018, dags. 21.01.2010
Byggingar- og skipulagnefnd samþykkir að vísa tillögunni til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
5. 200705114 - Önnur mál
Byggingar- og skipulagsnefnd mæli með því að Ægisíðu vegur verði lagfærður við fyrsta tækifæri.


