Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 118
118. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 14. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Miralem Haseta, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson, Björgvin Sigurjónsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200909011 - Ósk um staðfestingu á staðsetningu gestahúss á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum
Kynnt fyirirliggjandi framkvæmda-og tímaáætlun byggingar á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum,dags. 31.12.2009, sbr. afgr. nefndarinnar 14. okt. s.l. undirrituð af Sveinbirni Imsland.
Til kynningar.
2. 201001006 - Uppsetning fjarskiptatækja á Hestgerðishnútu
Hjalti Þór óskar eftir því, í tölvupósti 06.01.2010, vegna ábendinga viðkomandi landeigenda, að tekinn verði til umræðu viðskilnaður framkvæmdaraðila við fjarskiptamastur á Hestgerðishnútu í Suðursveit, sumarið 2008.
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur undir bókun umhverfisnefndar frá miðvikudeginum 13.01.2010
"Töluverðar umræður sköpuðust um málið. Umhverfisnefnd sýnir því skilning að fjarskiptaþjónusta þurfi að vera til staðar innan sveitarfélagsins en undirstrikar og beinir því til framkæmdaraðila almennt að hafa fullt samráð og samþykki landeigenda áður en framkvæmdir hefjast og lagfæra þær raskanir sem kunna að verða á landi við framkvæmdir."
3. 201001007 - Umsókn um leyfi til jarðvegsskipta v. viðbyggingar við Lönguhóla
Sótt er um leyfi til jarðvegsskipta vegna fyrirhugaðrar viðbyggingu við dagheimilið Lönguhóla, Kirkjubraut 47. Tillöguteikningar að fyrirhugaðri byggingu, frá ARK ÞING arkitektum, liggja fyrir, en endanlegar munu berast nefndinni til afgreiðslu síðar. Umsækjandi er Stefán Ólafsson, f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Björn Ingi bendir á að sveitarfélagið eigi að sýna gott fordæmi þegar staðið er að framkvæmdum og skila inn fullnægjandi gögnum áður en óskað er eftir byggingarleyfi. Byggingar- og skipulagsnefnd óskar eftir endanlegum teikningum af fyrirhuguðum framkvæmdum áður en tekin verður afstaða til jarðvegsskiptanna.
4. 201001008 - Byggingarleyfisumsókn v. lóðar 44 í Stafafellsfjöllum
Sótt er um leyfi til að flytja sumarbústað af lóð nr. 7,yfir á lóð nr.44,í Stafafellsfjöllum. Um er að ræða 34.9 ferm. hús. Með umsókn fylgir raunteikning af ytra útliti og grunnfleti hússins, en væntanleg er endanleg byggingarnefndarteikning innan tíðar. Umsækjendur eru Ester Þorvaldsdóttir og Björn Sigfinnsson.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðan flutning á húsinu en áréttar að leggja þarf fram byggingarnefndarteikningar ásamt skráningartöflu áður en kemur að endanlegri afgreiðslu. Nefndin bendir umsækjendum á að kynna sér skipulagsskilmála svæðisins.
5. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Kynnt svar Skipulagsstofnunar, í tölvupósti 08.01.2010, við fyrirspurn Hauks Inga í tölvupósti 07.01.2010, þar sem óskað er álits stofnunarinnar á þörfum á mati umhvefisáhrifa af fyrirhuguðum breytingum Aðalskipulags Sveitarfél. Hornafj. 1998-2018, vegna virkjana, vatnsbóla o.fl.
Til kynningar.
6. 200912034 - Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Kynnt umsögn Sigbjörns Kjartanssonar, vegna hugmynda eigenda Lambleiksstaða um skipulag í landi Lambleiksstaða, með uppbyggingu ferðaþjónustu í huga, sbr. erindi til nefndarinnar 9. des. 2009.
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur undir álit ráðgjafa og mælir með því að önnur staðsetning verði fundin fyrir frekari uppbyggingu ferðaþjónustu við Lamleiksstaði. Nefndin felur starfmönnum að vinna áfram að málinu í anda álits ráðgja og í samráði við landeigendur á Lamleiksstöðum.
7. 201001019 - Ósk um leyfi til að rífa hlöðu að Brekku í Lóni
Sótt er um leyfi til að rífa hlöðu á Brekku í Lóni, mhl. 07, byggingarár 1955. Umsækjandi er Olga Friðjónsdóttir, Brekku.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við niðurrif á hlöðunni en bendir umsækjanda á að sækja þarf um starfsleyfi hjá HAUST.
8. 200705114 - Önnur mál
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á gluggum lögreglustöðvar samkvæmt tölvupósti frá Guðbjarti Á Ólafssyni dagsettum 14. janúar.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir breytingum á gluggum fangaklefum samkvæmt framlögðum gögnum.


