Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 116
116. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 11. nóvember 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Björgvin Sigurjónsson, Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200911001 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir 3 smáhýsi(gestahús)á Hofi 2. Lækjarhúsum í Öræfum. Frumgögn fylgja erindinu. Fullnaðargögn eru tilbúin, en liggja en hjá hönnuði, sem er ekki á landinu og því óvíst að þau berist í tæka tíð. Umsækjandi er Sigurður Einar Magnússon, Hofi 2.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að veita byggingarleyfi fyrir þremur smáhýsum í samræmi við umsókn frá ABS teiknistofu.
2. 200910135 - Ósk um stofnun lóðar úr landi Svínafells 3, Öræfum
Sótt er um leyfi til að stofna lóð fyrir frístundahús úr landi Svínafells 3, Öræfum, samkv. gögnum frá Ullu R. Pedersen, landslagsarkitekts, sem er umsækjandi fyrir hönd landeiganda, Ingu Ragnheiðar Magnúsdóttur, Svínafelli 3.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin en bendir á að óska þarf eftir meðmælum Skipulagsstofnunar áður en endanlegt leyfi er veitt.
3. 200706052 - Deiliskipulag á Leirusvæði.
Kynnt tillaga að breyttri mænisstefnu húsa á lóðum nr. 8, 10 og 10a við Hagaleiru og nr. 19 við Álaleiru. Gögn gerð af Ullu R. Pedersen.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að breyta deiliskipulagi að undangenginni grenndarkynningu.
4. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Hraðatakmarkandi aðgerðir. þrengingar á Sandbakkavegi. Haukur Ingi gerir grein fyrir málinu.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur um hraðatakmarkandi aðgerðir við Sandbakkaveg. Einnig var rætt um hraðatakmarkandi aðgerðir á Víkurbraut og starfsmönnum falið að taka málið upp við Vegagerð.
5. 200911005 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi fyrir byggingu bílgeymslu á Vogabraut 4, Höfn, í samræmi við framlagða fyrirspurnarteikningu gerðri af Össuri Imsland, byggingarfræðingi, dags. 01.11.2009. Um er að ræða nýja teikningu, í stað áður samykktrar teikn. (30.09.1971) sem felur í sér stækkun bílgeymslu. Umsækjandi er Hugi Einarsson, Vogabrautt 4, Höfn.
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið en felur starfmönnum að framkvæma grenndarkynningu.


