Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 115
115. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 14. október 2009 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Miralem Haseta, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Björgvin Sigurjónsson, Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200910034 - Umsókn um byggingarleyfi Svínafell sundlaug
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu úr timbri, við þjónustumiðstöð Flosa hf í Svínafelli 1, samkv. teikningu Sigrúnar S. Ólafsdóttur, arkit. dags.15.09.2009. Umsækjandi er Ólafur Sigurðsson, f.h. Flosa hf.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir viðbyggingu samanber teikningar frá Sigrúnu Svövu Ólafsdóttur dagsettum 15.09.2009
2. 200906050 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um endurnýjað byggingarleyfi fyrir gáma- og bogahýsabyggingu á Hólabrekku á Mýrum. Um er að ræða breyttar teikninggar frá þeim, sem samþ. voru 10. júní, 2009. Breytingin felst í stækkun gámahússins í ca 108,0 ferm í stað ca 27,0 ferm. Umsækjandi er Ari Hannesson, Hólabrekku
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir breyttar teikningar, en bendir á þá fyrirvara sem settir voru við fyrri afgreiðslu.
3. 200909011 - Ósk um staðfestingu á staðsetningu gestahúss á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum
Framhald umræðu frá 113. fundi um ósk Sveinbjörns Imslands um staðfestingu á staðsetningu gestahúss á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum Kynnt svar Skipulagsstofnunar við fyrirspurn Hauks Inga Einarssonar, vegna lóðar nr. 11 í Stafafellsfjöllum.
Byggingar- og skipulagsnefnd hefur farið yfir málefni sumarhúsabyggðar í Stafafellsfjöllum á undanförnum vikum. Nefndin hefur haldið einn vinnufund um málefni sumarhúsabyggðar í Stafafellsfjöllum. Á fundinn mættu landeigendur Stafafellsfjalla og stjórn félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum. Nefndinni hefur borist álit/bréf frá lögfræðing Skipulagsstofnunar um málefni sumarhúsabyggðarinnar í Stafafellsfjöllum ásamt innsendum bréfum frá landeigendum, sumarhúsaeigendum lóðar 10 og sumarhúsaeigenda lóðar 11. Í ljósi fyrirliggjandi gagna samþykkir Byggingar- og skipulagsnefnd að framlengja stöðuleyfi í eitt ár frá og með 1. nóvember 2009. Lóðarhafa er gert skylt að skila inn framkvæmda- og tímaáætlun um hvar og hvernig hann hyggst staðsetja og haga byggingum innan lóðar í samræmi við lög, reglugerðir og skipulagsskilmála svæðisins fyrir áramót 2009/2010 að öðrum kosti fellur stöðuleyfið úr gildi.
Björn Ingi sat hjá við afgreiðslu málsins og benti á að þessi afgreiðsla væri ekki til þess fallin að sætta sjónarmið milli lóðarhafa lóða 11 og 10 í Stafafellsfjöllum.
4. 200909003 - Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Kynnt bréf Ragnhildar Magnúsdóttur og Sveinbjörns Imslands dags. 23.09.2009 með ,,nokkrum athugasemdum og ábendingum vegna bréfs Önnu Kjartansdóttur, og leyfisumsóknar á lóð nr. 11
Til kynningar og vísað í afgreiðslu dagskrárliðar nr. þrjú.
5. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn.
Kynntar tillögur Vegagerðarinnar að hraðahindrunum á Víkurbraut, við Heppuskóla
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að veita leyfi fyrir framlögðum hraðatakmarkandi aðgerðum þar sem gert er ráð fyrir miðeyju á Víkurbraut við Heppuskóla. Byggingar- og skipulagsnefnd tekur undir ábendingar Vegagerðarinnar um fækkun vegtenginga inn á Víkurbraut og beinir því til starfsmanna að skoða möguleika á fækkun vegtenginga við plan íþróttahúss í samráði við Vegagerðina.
6. 200811052 - Vegur upp úr botni Hoffellsdals
Bæjarstjóri óskar eftir því að kynnt verði bréf Þórodds F. Þórodssonar, ódagsett,til Umhverfisstofnunar. Efni: Tilkynning vegna hugsanlegra brota á 34. gr.laga um náttúruvernd nr. 44/1999
Til kynningar.
7. 200910035 - Heiðarbraut 4 - ósk um leyfi til gluggaskipta á austurhlið hússins
Sótt er um leyfi til að skipta út 4 gluggum í íbúðarhúsinu á Heiðarbraut 4, Höfn, og setja stærri opnanleg fög í stað núverandi faga. (stefnt er að því að skipta út fleiri gluggum síðar) Umsækjandi er Sigurður Jón Ragnarsson, Heiðarbraut 4
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við gluggaskiptin.
8. 200910039 - Umsókn um byggingarleyfi Garðsbrún 2
Sótt er um leyfi til eftirtalina framkvæmda við Garðsbrún 2: Bygging sólskála, uppsetning hringstiga utanhúss(brunastiga) af efri hæð og breytt skipulag efri hæðar-þ.e. stækkun eldhúss. Umsækjandi er Gunnar ingi Valgeirsson, Garðsbrún 2.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar framkvæmdir og samþykkir þær fyrir sitt leyti.


