Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 111
111. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsimiðvikudaginn 10. júní 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200905107 - Umsókn um byggingarleyfi f. flugskýli á flugv. í Skaftafelli
Sótt er um leyfi til að reisa flugskýli á flugvellinum í Skaftafelli, samkv. teikn. frá Hughrifum,ehf, Öldugranda 3, Rvík, gerðum af Þorleifi Eggertssyni, arkitekt, dags. 01.04.2009. teikn. nr. 10-00, 10-01 og 10-02. Umsækjandi er Jón Grétar Sigurðsson, f.h. Atlantsflugs ehf. Undir umsókn ritar einnig Anna María Ragnarsdóttir, f.h. landeigenda
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina og teikningar frá Hughrifum ehf dags 01.04.2009 að því gefnu að allar kröfur um eldvarnar- og heilbrigðiseftirlit verði uppfylltar. Nefndin beinir því til umsækjanda að vinna deiliskipulag að svæðinu og skila inn til yfirferðar og meðferðar byggingar- og skipulagsnefndar innan 6 mánaða.
2. 200905083 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að skipta um glugga og hurðir í Kirkjubraut 63, með smávægilegum breytingum á þeim, auk byggingu glerveggja við anddyrið og utanhússklæðningu síðar. Umsækjendur eru Andrés Einarsson og Valgerður Hanna Úlvarsdóttir, Kirkjubraut 63
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar framkvæmdir og samþykkir þær fyrir sitt leyti.
3. 200905082 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til a byggja tengibyggingu mill íbúðarhúss og bílskúrs á Mánabraut 6, Höfn, samkv. teikn. frá Verkfræðiþjónustunni ehf, gerðum af Svavari Sigurjónssyni, tæknifræðingi. Verknr. 09-12, dags. 14.05.2009. Umsækjandi er Hjalti þór Vignisson, Mánabraut 6
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við tengibyggingu milli íbúðarhúss og bílskúrs á Mánabraut 6.
4. 200905062 - Umsókn um lóð
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 25. maí, s.l. til byggingarnefndar, erindi Humarhafnarinnar, dags. 15.05.2009, þar sem óskað er eftir úthlutun lóðar nr. 6 við Hafnarbraut fyrir bílastæði og byggingu gróðurhúss (óskilgreind stærð)
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að lóðinni verði ekki úthlutað en beinir því til bæjarráðs að veita umsóknaraðila afnotarétt að lóðinni í samræmi við umsókn. Nefndin mælir með því að athugað verði hvort nauðsynlegt sé að farið verði í endurbætur á lóðinni.
5. 200906050 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja gámahús úr stáli og bogahús í Hólabrekku, samkv. teikn. frá Verkfræðiþjónustunni ehf, gerðum af Svavari Sigurjónssyni, tæknifræðingi. Verkn. 09-20. dags. 22.05.2009. Hugmynd er að í gámahúsi fari fram vinnsla grænmetis og kjöts, en í bogahúsi plöntuuppeldi og gæruverkun, þótt það liggi ekki enn fyrir á teikningum. Umsækjandi er Ari Hannesson, Hólabrekku
Byggingar- og skiplagsnefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leiti að því gefnu að öllum reglum eldvarnara - og heilbrigðiseftirlits verði framfylgt.
6. 200904070 - Ályktun Umferðarráðs um bílastæði fyrir fatlaða
Til kynningar er Ályktun Umferðarráðs frá 31. mars, 2009, þar sem tilmælum er beint til sveitarfélaga um að vel verði séð fyrir merkingum og aðgengi á bílastæðum fyrir fatlaða.
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur áherslu á gott aðgengi fatlaðra að opiberum byggingum sem og öðrum í sveitarfélaginu.
7. 200705114 - Önnur mál
Fundargerð 6. fundar starfshóps um endurskoðun á Aðalskipulagi Hornafjarðar. Rætt um vinnu starfshópsins. Byggingar - og skipulagsnefnd bendir starfshópi á að hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga varðandi endurskoðunina, sérstaklega varðandi túlkun Skipulagsstofnunar á endurskoðuninni.
Haukur gerði grein fyrir afgreiðslu Skipulagsstofnunar vegnar breytingar á aðalskipulaga í tengslum við nýjan hringveg yfir Hornafjarðarfljót. Fram kom að Skipulagsstofnun mælir með því að skipulagið verði staðfest af umhverfisráðherra.
Haukur Ingi kynnti samstarfsverkfni Vatnajökulsþjóðgarðs og sveitarfélagsins varðandi það að setja niður þurrsalernishús á Heinabergssvæðinu. Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir niðursetningu þurrsalernis í samræmi við framlögð gögn.
Gerð var grein fyrir uppsetningu skógarhýsis í Hrossabitahaga. Hýsinu er ætlað bæta aðstöðu fyrir útileikskóla, íbúa og ferðamenn. Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við uppsetningu skógarhýsisins.
Fyrirspurn kom fram um útgáfu byggingarleyfia. Fyrirspurninni svarað og starfmönnum falið að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.
Rætt um sorpförgunarstaði í sveitarfélaginu. Starfsmönnum falið að kanna málið og minna á rétta losunarstaði fyrir úrgang.
Torfi spurðist fyrir um stöðu á nýju kirkjugarðssvæði. Haukur gerði grein fyrir því að málið sé í vinnslu endurskoðunar aðalskipulags.
Hákon gerði grein fyrir hugmyndum breytta afstöðu frystigáms við Veitingahúsið Víkina. Nefndin gerir athugasemdir við breytinguna en minnir á bókun nefndarinnar varðandi sama mál á síðasta fundi.


