Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 110
110. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 14. maí 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Páll Halldórsson, Miralem Haseta, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Hákon Valdimarsson, Borgþór Freysteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200905034 - Umsókn um leyfi til að setja upp vöruhurð á Litlubrú 1
Sótt er um leyfi til að setja upp vöruhurð á austurhlið verslunarhússins Miðbæjar, Litlubrú 1,vegna fyrirhugaðrar verslunar ÁTVR þar. Umsækjandi er Ágúst Gíslason, f.h. Urtusteins ehf.
Byggingar- og skipulagsnefnd hvetur umsækjanda til þess að hafa vörumóttöku um suðurinngang hússins, þó samþykkir nefndin uppsetningu hurðarinnar að því gefnu að hún verði úr gleri þannig að hún samræmist núverandi útli austurhliðar sem best. Nefndin bendir einnig á að ef breyta þarf aðkoma að fyrirhugaðri vörumóttöku verði að gæta að lóðarmörkum og að þær framkvæmdir sem kunna að verða í framtíðinni á vegum sveitarfélagsins við fyrirhugað torg hafi forgang og að aðkomu að hurð geti þurft að breyta.
200905033 - Umsókn um leyfi til að gömul útihús
Sótt er um leyfi til að rífa þrjú útihús við Austurbæ í Svínafelli í Öræfum. Um er að ræða matshl. 03, 06 og hluta af 09. Hugmynd er að byggja bílgeymslu í stað húsanna. Umsækjandi er Guðjón Þorsteinsson, Svínafelli.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir niðurrif á útihúsi að því gefnu að öllum reglum um niðurrif húsa verði fullnægt.
2. 200905032 - Umsókn um leyfi til uppsetningar kæli- og frystigáms
Sótt er um leyfi til að setja upp kæli- og frystigám aftan við veitingahúsið Víkina, Víkurbraut 2, í tengslum við veitingahúsið. Um er að ræða gám við hlið gáma, sem fyrir eru. Umsækjandi er Guðrún R. Valgeirsdóttir, f.h. Víkurinnar.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir uppsetningu kæli- og frystigáms sem staðsetja á aftan við veitingahúsið Víkina samkvæmt skýringarmynd til eins árs að því gefnu að tillögum að varanlegum breytingum verði skilað inn innan sex mánaðar.
3. 200803024 - Byggingleyfisumsókn
Lögð er fram teikning af fyrirhugaðri byggingu sólpalls ofan á bílskúr að Bogaslóð 16, sbr. afgreiðslu nefndarinnar 27. mars, 2008, á umsókn Svanhildar Karlsdóttur, dags. 02.03.2008, en þar nefndin óskaði eftir endanlegum teikningum. Teikningin er gerð af Vali Sveinssyni, byggingarfr. verknr.HFN_RUN-0801, dags. 06.06.2008 Jafnframt fylgir með staðfesting meðeiganda hússins, Kolbrúnar Benediktsdóttur á því, að hún heimili umræddar breytingar fyrir sitt leyti.
Byggingar- og skipulagsnefnd felur starfmönnum að kanna hvort fyrirhuguð bygging sólpalls komi til með að skyggja á nálægð hús, að því gefnu að eingar athugasemdir berast samþykkir nefndin fyrirhugaða byggingu sólpalls.
4. 200905039 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja parhús úr timbri, á lóð nr. 13 við Álaleiru, skv. teikn. Gunnars Borgarssonar, arkit. verknr.0903, dags. 04.05.2009. Umsækjandi er Haukur Ingi Einarsson, f.h. Sveitarfél. Hornafjarðar
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar teikningar að því gefnu að öllum ákvæðum byggingarreglugerðar verði uppfyllt.
5. 200905038 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um leyfi til að byggja parhús úr timbri, á lóð nr. 15 við Álaleiru,skv. teikn. Gunnars Borgarssonar, arkit. verknr. 0903. dags. 04.05.2009. Umsækjandi er Haukur Ingi Einarsson, f.h. Sveitarfél. Hornafjarðar
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir framlagðar teikningar að því gefnu að öllum ákvæðum byggingarreglugerðar verði uppfyllt.
6. 200904038 - Ósk um leyfi til að klæða húsið Júllatún 6
Sótt er um leyfi til að klæða fjölbýlishúsið á Júllatúni 6, að utan með báruðu alusinki og sléttu áli að hluta. Fyrir liggur nú teikning Árna Kjartanssonar, arkit.(tillaga) að útfærslu klæðningar. Lögð var inn umsókn(ódagsett)móttekin í mars 2009, en ekki lögð fyrir nefndina, þar sem að gögn lágu ekki fyrir (fyrr en nú) Umsækjandi er ingibjörg Guðjónsdóttit, f.h. Húsfélags Júllatúns 6.
Samþykkt samhljóða.
7. 200808045 - Breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Hákon kynnti endanlegar niðurstöður um brunavarnir á norð-austur hlið Grunnskóla Hornafjarðar samanber umræður frá fundi byggingar- og skipulagnefndar 29. apríl


