Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 109
109. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn ráðhúsi,miðvikudaginn 6. maí 2009 og hófst hann kl. 12:10.
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200705087 - Hringvegur um Hornafjarðarfljót Framhaldsumræður
Aðalskipulag Hornafjarðar breyting vegna hringvegar um Hornafjarðarfljót
Farið var yfir lokadrög að svörum vegna athugasemda sem bárust vegna tillögu að aðalskipulagsbreytingu. Fyrirliggjandi drög samþykkt samhljóða og vísað til bæjarstjórnar.
2. 200905010 - Bílastæði við Hafnarbraut 2
Bílastæði við Hafnarbraut 2
Haukur gerði grein fyrir umsókninni. Björn Ingi velti fyrir sér aðkomu sveitarfélagsins að bílastæðum fyrir atvinnurekstur í sveitarfélaginu. Undir það var tekið að aðkoma sveitarfélagsins eigi liggja skýrt fyrir.
Byggingar - og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti.
3. 200705114 - Önnur mál
Torfi spurðist fyrir um girðingu á Hoffellsaurum í tenglsum við sauðfjárveikivarnarlínu. Starfsmanni falið að kanna málið.
Gunnar spurðist fyrir um nýtt kirkjugarðsstæði. Unnið er að málefnum kirkjuagarðsstæði í tengslum við endurskoðun aðalskipulags.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00


