Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 108
108. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 29. apríl 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Hákon Valdimarsson, Borgþór Freysteinsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Athugasemdir vegna breytinga á aðalskipulagi Hornafjarðar-vegstæði yfir Hornafjarðarfljót, sbr. auglýsingu með athugas.fresti til 26. mars, 2009.frá LEX lögmannsstofu f.h. umbjóðenda sinna, annars vegar, og frá Hanny Heiler, Dynjanda, hins vegar.
Farið var yfir drög að svörum vegna athugasemda sem bárust sveitarfélaginu vegna breytingartillögu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins vegna vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót. Nefndin felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu þannig að svörin verði afgreidd á næsta fundi nefndarinnar.
2. 200808045 - Breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Breyting á Hafnarskóla. Sótt er um leyfi til breytinga á Hafnarskóla, samkv. teikn. frá Glámu-Kím, dags. 24.04.2009, verknúmer 0810057. Erindi þetta var á dagskrá síðasta fundar, en afgr. þá frestað, þar sem að ekki lágu fyrir næg gögn.
Borgþór Freysteinsson gerði grein fyrir athugasemdum eldvarnareftirlits vegna ófullnægjandi flóttaleiða út um jarðhæð suð- austurhliðar. Byggingar- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að öllum reglum um brunavarnir verði fullnægt og felur starfmönnum að fara yfir þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að svo megi verða með hönnuðum. Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir teikningarnar fyrir sitt leyti með fyrirvara um að öllum reglum um brunavarnir verði framfylgt.
3. 200904083 - Stöðuleyfi fyrir aðstöðuhús í Skaftafelsþjóðgarði
Sótt er um stöðuleyfi (til ársloka 2010)fyrir íveruhús starfsmanna Í.F. í Sandaseli annars vegar, og brottfararaðstöðu Í.F. við bílastæðin við þjónustmiðstöðina í Skaftafelli hins vegar. Umsækjandi er Sigbjörn Kjartansson, arkit. f.h. Félags fjallaleiðsögumanna
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að íveruhús starfsmanna verði sett niður á ofangreindum stöðum.
4. 200904084 - Jökulsá á Breiðamerkursandi Vinnubúðir við brú
Sótt er um tímabundið stöðuleyfi fyrir vinnubúðir á vesturbakka Jökulsár á Breiðamerkursandi vegna fyrirhugaðrar, áframhaldandi viðhaldsvinnu við brúna í sumar. Um er að ræða tímabilið frá 29. apríl til 15. ágúst. Umsækjandi er Sveinn Þórðarson,f.h. Vegagerðarinnar
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir að Vegagerðin setji niður vinnubúðir á vesturbakka Jökulsárlóns.
5. 200904098 - Ósk um leyfi til breyttrar starfsemi hússins Hafnarbraut 2
Sótt er um leyfi til að reka kaffihús á neðri hæð (miðhæð)Kaupfélagshússins að Hafnarbraut 2 í sumar. Umsækjandi er Hermann Hansson, f.h. Kaupfélagshússins ehf.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við umsóknina fyrir sitt leyti.
6. 200705114 - Önnur mál
Önnur mál
Haukur gerði grein fyrir vinnu á vegum Vegagerðarinnar sem farið hefur fram í sambandi við aukið umferðaröryggi við Víkurbraut.
Haukur gerði grein fyrir því að fyrirtækið True - North hyggist reisa leikmynd á Horni sem standa eigi í eitt ár þangað til tökur við fyrirhugaða kvikmynd hefjast. Byggingar- og skipulagsnefnd fagnar því að leikmyndin rísi og gerir ráð fyrir því að hún verði tekin niður að loknum tökum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30


