Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 103
103. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 14. janúar 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissvið
Dagskrá:
1. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn.
Reynir Gunnarsson, umdæmisstjóri hjá Vegagerðinni á Höfn og Steinþór Björnsson þjónustustjóri á Reyðarfirði mættu á fundinn. Gerðu þeir grein fyrir stöðu Vegagerðarinnar á landsvísu og útliti fyrir samdrætti í verkefnum Vegagerðarinnar. Fundarmenn voru sammála um að leggja ætti áherslu á innkomuna til Hafnar og Víkurbraut meðfram Heppuskóla og íþróttasvæði. Starfmanni falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við Vegagerðina. Starfsmanni einnig falið að afla gagna um kostnað sem fylgir hraðatakmarkandi aðgerðum á svæðinu milli Kirkjubrautar og Sandbakka og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
2. 200812070 - Leiðbeiningarbækl. um skógrækt í skipulagsáætlunum sveitarfélaga
Bæjarráð vísar, á 445 fundi sínum, til nefndarinnar, orðsendingu og ábendingu frá Skógrækt ríkisins um leiðbeiningabækling um skógrækt í skipulagsmálum sveitarfélaga
Til kynningar.
3. 200801024 - Nýr kirkjugarður
Bæjarráð vísar, á 445. fundi sínum, til nefndarinnar, tillögu Kjartans Mogensens, landslagsarkitekts, að skipulagi kirkjugarðsstæðis við Réttarkletta, ásamt reinargerð, og óskar breytinga á aðalskipulagi vegna þess.
Töluverðar umræður sköpuðust um Kirkjugarsstæðið við Réttarkletta. Efasemdir voru uppi um að nýting svæðisins væri nógu á fyrirliggjandi tillögu. Bent var á að gæta þurfi að samspili kirkjugarðs og iðnaðarsvæðis sem fyrirhugað er í námunda við kirkjugarðsstæðið. Byggingar - og skipulagsnefnd leggur áherslu á að kirkjugarðsstæðið verði skipulagt þannig að það falli sem best að heildarskipulagi svæðisins, t.d. með breyttri legu vegstæðis að kirkjugarði. Samþykkt að vísa tillögunni til áframhaldandi vinnslu hjá starfsmönnum í samræmi við umræður á fundinum.
4. 200812071 - Könnun á stöðu byggingareftirlits á Íslandi
Á 445. fundi bæjarráðs Hornafjarðar 23. desember s.l. var meðfylgjandi erindi Stefán Thors, skipulagsstjóra ríkisins, þar sem hann vekur athygli á skýrslu um niðurstöður könnunar á stöðu byggingareftirlits á Íslandi, sem gerð var árið 2008, vísað til byggingar- og skipulagsnefndar. Skýrslan er í erindi nr.200812071 og hér er slóðin að skýrslunni á netinu: · http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/Attachment/Byggingareftirlitið-skýrsla/$file/Byggingareftirlitið_skýrsla.pdf
Til kynningar.
5. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Listi yfir mál/kafla Aðalskipulags Hornafjarðar 1998-2018, sem Starfshópur endurskoðunar aðalskipulags Hornafjarðar óskar eftir ábendingum og tillögum um, ásamt bréfi Hauks Inga Einarassonar, framkv.stj.TOU-sviðs Hornafj. þar um.
Árni lagði til að haldinn verði vinnufundur 4. febrúar kl 16:00 þar sem aðal - og varafulltrúar í nefndinni verða boðaðir. Var það samþykkt.
6. 200901059 - Umsókn um leyfi tikl að breyta notkun húss
Sótt er um leyfi til að breyta notkun hússins að Hafnarbraut 40 úr verslunsr- og þjónustuhúsnæði í starfsemi fyrir félagsmiðstöð/ungmennahús. Umsækjandi er Haukur Ingi Einarsson f.h. Sveitarfél. Hornaf.
Haukur Ingi gerði grein fyrir breyttri notkun hússins og kynnti teiknigar. Erindið samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnar- og heilbrigðisefstirlits.
7. 200705114 - Önnur mál
Hákon kynnti hugmyndir Ísfells ehf/Ísnets um fyrirhugað varmaskiptakerfi til kyndingar á húsnæði fyrirtækisins.
Haukur kynnti fyrirhugaðar breytingar á húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar í tengslum við flutning á öllu skólahaldi grunnskólans til Hafnar.


