Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 105
105. fundur
105 . fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 11. febrúar 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Kristinn Óskarsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá:
1. 200902007 - Deiliskipulag í landi Hoffells II og Miðfells
Óskað er eftir því, að hluti af landi Hoffells II og Miðfells verði deiliskipulagður með hliðsjón af uppbyggingu ferðaþjónustu í Hoffelli. Fyrirhugað deiliskipulagssvæði er sýnt á framlögðu korti með umsókn. Umsækjandi er Þrúðmar Þrúðmarsson.
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en bendir á að breyta þurfi aðalskipulagi áður en deiliskipulag fer fram. Byggingar- og skipulagsnefnd óskar eftir umsögn svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs áður en breytingartillagan fær endanlega afgreiðslu.
2. 200901099 - Bókun sóknarnefndar v. nýs kirkjugarðs
Bókun sóknarnefndar Hafnarsóknar vegna staðsetningar á nýjum kirkjugarði. Bókun þessari var, á fundi bæjarráðs 26. jan. 2009, vísað til byggingar- og skipulagsnefndra. Lögð fram til kynningar.
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að svæði undir nýjan kirkjugarð verði skipulagt þannig að sem best nýting á svæðinu náist.
3. 200812034 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir rampi f. vöruflutningabíla
Sótt er um leyfi til að byggja ,,rampa,, við vöruskemmur (KASK í Álaugarey) Endurnýjuð umsókn frá 4. des. 2008 en nú með nýrri útfærslu þar sem rampur er styttur úr 21,7 m í 17,0 m. Umsækjandi er Ágúst Gíslason f.h.Urtusteins ehf.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um samþykki Hafnarstjórnar.
4. 200902025 - Ósk um að breyta notkun húsnæðis að Bugðuleiru 6
Óskað er leyfis til að innrétta íbúð á efri hæð í norðurenda Bugðuleiru 6, Höfn, til útleigu fyrir ferðamenn eða einstaklinga. Umækjandi er Kim Gram Laursen, Kirkjubraut 64, Hofn
Byggingar- og skipulagsnefnd sér ekki ástæðu til að breyta núgildandi aðalskipulagi fyrir þetta svæði og því hafnar nefndin ósk um breytingu á deiliskipulagi vegna Bugðuleiru 6.
5. 200902026 - Ósk um uppsetningu á loftneti á Gamla vatnstanknum
Óskað er leyfis til að skipta út loftnetum á gamla vatnstankinum við Fiskhól, þ.e. að setja upp eina loftnetsstöng með 3 stefnuvirkum loftnetum í stað tveggja stanga áður. Umsækjandi er Gautur Þorsteinsson, f.h. Og fjarskipts ehf (vodafone)
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við uppsetningu mastursins. Björn Ingi telur gamla vatnstankinn ekki hentuga staðsetningu fyrir fjarskiptabúnað og bendir á mögulegt ónæði af slíkum búnaði svo nálægt íbúðarbyggð. Byggingar- og skipulagsnefnd er sammála um að nauðsynlegt sé að heildarskoðun fari fram um málefni af þessum toga og framtíðarstefna mótuð.
Starfsmönnum falið að svara erindinu.
6. 200902021 - Vegur á Ægissíðu
Erindi Jóhönnu Guðmundsdóttur til bæjarstjóra, vegna vegamála á Ægissíðu. Bæjarráð vísar erindinu hinn 9. febr. til nefndarinnar.
Byggingar- og skipulagsnefnd þakkar ábendinguna og leggur áherslu á að veginum verði vel við haldið. Starfmönnum falið að vinna að málinu.
7. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn.
Áframhaldandi umræður um umferðaröryggi hraðatakmarkandi aðgerðir. Lögð fram tillaga að uppbyggingu hraðahindrana við Kirkjubraut, Sandbakka og Sandbakkaveg.
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að lagðar verði tvær hraðahindranir á þessum vegkafla í samræmi við tillögur á fundinum. Vísað til bæjarráðs.
8. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Farið yfir fundargerð vinnufundar byggingar- og skipulagsnefndar frá 4. febr. s.l.þar sem unnið var að endurskoðun aðalskipulags í smaræmi við tilmæli starfshóps um endurskoðun aðalskipulags ásamt drögum að nýrri greinargerð.
Ákveðið að boða til vinnufundar 25. febrúar með aðal- og varamönnum til áframhaldandi vinnu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:10


