Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 104
104. fundur
Fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 4. febrúar 2009 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Miralem Haseta, Ólafur Sigurðsson, Páll Ólafsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Vinnufudnur þar sem unnið var að endurskoðun aðalskipulags í samræmi við tilmæli starfshóps um endurskoðun aðalskipulags. Starfsmanni falið að leggja drög að nýrri greinargerð aðalskipulags og nýjan þéttbýlisuppdrátt í samræmi við umræður og tillögur á fundinum.


