Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 101
101. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðarhaldinn í ráðhúsi, mánudaginn 15. desember 2008 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
1. 200705087 - Hringvegur um Hornafjarðarfljót Framhaldsumræður
Árni Þorvaldsson gerði grein fyrir niðurstöðukafla umhverfisskýrslu og þeim áherslum sem hann taldi brýnt að komi fram í niðurstöðukafla skýrslunnar. Farið var yfir þær breytingar á niðurstöðukaflanum m.t.t leiðar 3b.
Í ljósi úrskurða umhverfisráðuneytisins 11. maí 2007, í kæru Vegagerðarinnar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar Hringvegar um Hornafjarðarfljót, sér byggingar – og skipulagsnefnd ekki ástæðu til þess að taka afstöðu til leiða 4 og 5 sem fjallar er um í Umhverfisskýrslunni. Auk þess telur byggingar – og skipulagsnefndir leiðir 4 og 5 ekki koma til greina vegna þess að þær uppfylla síður kröfur um styttingu á hringvegi, styttingu á vegalengdum innan sveitarfélagsins og bætt umferðaröryggi. Valið stendur því á milli fjögurra leiða;1,2,3 og 3b.
Byggingar – og skipulagsnefnd er sammála um að leið 2 hafi umtalsverða ókosti í för með sér. Í fyrsta lagi hefur leiðin umtalsverð áhrif á landslag á austasta hluta leiðarinnar, þ.e. eftir að hún tekur land við Dilksnes. Það er gert ráð fyrir að hún liggi í gegnum stór klapparholt sem eru einkennandi fyrir landslag á þessum slóðum. Ennfremur liggur hún meira yfir sjávarfitjar en leiðir 3 og 3b. Á leið 2 um Skógey og á Mýrum liggur hún á votlendisgróðri. Byggingar – og skipulagsnefnd hafnar því að leið 2 verði farin og lítur svo á að valið standi fyrst og fremst á milli leiða 1,3 og 3b.
Byggingar – og skipulagsnefnd telur einsýnt að leiðir 3 og 3b hafi minni áhrif á landslag en leið 2 auk þess að leiðir 3 og 3b skera jarðir landeigenda í sveitarfélaginu minna en leiðir 1 og 2. Á hinn bóginn liggja leiðir 3 og 3b ekki í sama mæli yfir sjávarfitjar og leið 2.
Ljóst er að leið 1 mun á heildina litið hafa minni áhrif á náttúrfar en leiðir 2, 3 og 3b. Ákveðnir annmarkar eru þó á þeirri leið. Lega leiðarinnar sker t.d. í sundur ræktunarlönd auk þess sem hún skerðir núverandi félags- og útivistarsvæði í Nesjum. Umhverfisáhrif leiðar 1 eru talin minni í Hornafirði, Skógey og á Mýrum en umhverfisáhrif leiða 2,3 og 3b. Á móti kemur að leið 1 styttir vegalengdir að þjónustukjarna sveitarfélagsins mun minna en leiðir 2,3 og 3b. Munurinn er 3,3 – 3,5 km. á leiðum 3 og 3b annars vegar og leið 1 hins vegar. Leið 2 er 2,6 km. styttri en leið 1.
Stytting vegalengda að þjónustukjarna sveitarfélagsins á Höfn er forsenda áframhaldandi byggða- og atvinnuþróunar á Mýrum , Suðursveit og Öræfum. Að stytta leiðir að þjónustukjarna sveitarfélagsins styður við þá viðleitni að gera sveitarfélagið að einu búsetu- og atvinnusvæði. Jákvæð samfélagsleg áhrif yrðu því mest fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð ef farin verður annað hvort leið 3 eða 3b.
Í greinargerð gildandi aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar kemur m.a. fram að markmiðið með lagfæringum á þjóðvegi 1 sé „einkum að stytta akstursleiðir og leggja af krókótta og blinda kafla á þjóðvegi 1 og fækka brúm. Það leiðir til aukins umferðaröryggis.“ Leiðir 3 og 3b leiða til aukins umferðaröryggis fram yfir aðrar leiðir vegna fækkunar vegtenginga við þjóðveg og til verður tvöfalt vegakerfi þar sem gömlu vegirnir verða fáfarnari innansveitarvegir, sem munu m.a. höfða til ferða¬manna.
Í samráðsferli við gerð umhverfisskýrslunnar voru haldnir nokkrir borgarafundir. Á fundi, sem haldinn var í Holti á Mýrum, kom fram mikill vilji íbúa að valin yrði sú leið sem stytti vegalengdina til Hafnar sem mest. Sömu sjónarmið voru ríkjandi á borgarafundi á Höfn sem og á fundi með samgönguráðherra sem haldinn var í Nýheimum. Skiptar skoðanir voru um málið á borgarafundi, sem haldinn var í Mánagarði í Nesjum og þar komu m.a. fram áhyggjur hjá nokkrum landeigendum á áhrifin sem veglagning myndi hafa á náttúrufar sem og á starfsemi þeirra, hvort heldur um er að ræða ferðaþjónustu eða landbúnað.
Byggingar – og skipulagsnefnd er sammála um að stytting vegalengda og þar með bætt aðgengi að þjónustukjarna sveitarfélagsins, bætt umferðaröryggi og greiðfærni eiga að vera grundvallarmarkmið í aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna nýlagningar vegar yfir Hornafjarðarfljót. Þeim markmiðum verður best náð með því að fara leið 3 eða 3b. Þrátt fyrir að leið 1 hafi á heildina minni neikvæð umhverfisáhrif en leiðir 3 og 3b, þá er sú stytting á vegalengdum innan sveitarfélagsins, sem leiðir 3 og 3b skila umfram leið 1, það mikil að byggingar – og skipulagsnefnd telur að þau jákvæðu samfélagslegu áhrif, sem hljótast af leiðum 3 og 3b með bættu aðgengi að þjónustukjarnanum á Höfn, vegi þyngra en minni neikvæð umhverfisáhrif á leið 1.
Leiðir 2, 3. og 3b hafa það allar sammerkt að stór hluti Nesjasveitar liggur ekki lengur í alfaraleið. Byggingar – og skipulagsnefnd telur mikilvægt að merkingar og auglýsingar verði settar upp við gatnamót þjóðvegar og Hafnarvegar þar sem þjónusta í sveitarfélaginu verði auglýst. Ennfremur er mikilvægt að við framkvæmd verksins verði gætt að fullum vatnsskiptum undir brýr sem byggðar verða í framkvæmdinni og þannig komið til móts við þær áhyggjur sem fram hafa komið.
Helsti munur á milli leiða 3 og 3b felst í því að leið 3 liggur yfir Flóa í Skarðsfirði sem er að náttúruminjaskrá en 3b gerir það ekki. Leið 3b hefur því minni neikvæð umhverfisáhrif í för með sér en leið 3.
Það er því niðurstaða byggingar – og skipulagsnefndar að mæla með því að gerð verði breyting á gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem miðar að því að leið 3b verði sett inn á aðalskipulag. Helstu rökin fyrir þeirri niðurstöðu eru umtalsverð stytting á þjóðvegi 1, meiri stytting vegalengda innan sveitarfélagsins samanborið við aðra valkosti sem skoðaðir eru, stórbætt aðgengi íbúa að þjónustukjarna sveitarfélagsins, aukið umferðaröryggi og greiðfærni auk þess að leið 3b hefur í för með sér minni neikvæð umhverfisáhrif en leið 3.
Bókun og umhverfisskýrsla samþykkt samhljóða og vísað til umfjöllunar og staðfestingar bæjarstjórnar.
2. 200811052 - Vegur upp úr botni Hoffellsdals
Framhaldsumræða frá síðasta fundi um veg upp úr botni Hoffellsdals.
Lagðir voru fram uppdrættir að fyrirhugaðri framkvæmd.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
3. 200812035 - Grenndarstöðvar í sveitum
Sótt er um leyfi til að setja niður tvær grenndarstöðvar til sorpflokkunar, fyrir íbúa dreifbýlis. Stöðvarnar verða við Jökulsá í Lóni annars vegar og við Smyrlabjargaá í Suðursveit hins vegar samkvæmt meðfylgjandi yfirlitsmyndum.
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti.
4. 200705114 - Önnur mál
Björn Ingi gerði að umræðuefni að sérstaklega verði fjallað um námu 11 í greinargerð sem og gamla veginn frá Hafnarafleggja að Skarðshólum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30


