Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 97
97. fundur
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 25. september 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá:
1. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á erindisbréfinu.
Hópurinn fjalli um námur innan sveitarfélagsins, hópurinn fjalli um framtíðarhorfur í íbúaþróun í sveitarfélaginu, hópurinn fjalli um hafnarmannvirki og hugi að nýrri innsiglingu fyrir höfnina, hópurinn fjalli um Hornafjarðarflugvöll, hópurinn fjalli um lýðheilsu og umhverfismál, hópurinn skuli hafa að leiðarljósi samráð og kynningu við almenning á meðan unnið er að endurskoðun aðalskipulagsins, hópurinn fjalli um hvert það mál sem hann telji eiga erindi í endurskoðun á aðalskipulagi. Byggingar og skipulagsnefnd gefi umsögn um uppdrætti og greinargerð að aðalskipulagi áður en starfshópurinn skilar inn endanlegri tillögu til bæjarstjórnar og að vinnu hópsins við endurskoðun á aðalskipulagi ljúki með tillögu eigi síðar en 1. júní 2009.
Björn Ingi taldi að eðlilegast væri að byggingar- og skipulagsnefnd ynni þau verk sem lýst er í erindisbréfinu.
Erindisbréfið með ofangreindum breytingum samþykkt samhljóða.
2. 200809013 - Umsókn um utanhússklæðningu
Sótt er um leyfi til að klæða íbúðarhúsið (og bílskúr) á Dalbraut 10, Höfn,að utan með báru-áli.
3. 200705114 - Önnur mál
Haukur gerði grein fyrir fyrirspurn leikskólastjóra um göngubraut yfir Hafnarbraut á milli N1 og tjaldstæðis. Starfmanni falið að afla frekari gagna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45


