Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 95
95. fundur
Fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 10. september 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá:
1. 200802023 - Knattspyrnuhús. Deiliskipulag. Bréf Skipulagsstofnunar
Farið yfir svar Skipulagsstofnunar við bréfi sveitarfélagsins 19. ágúst, 2008, eftir yfirferð stofnunarinnar á deiliskipulaginu, skv.3. mgr.25. gr. skipulags- og byggingarlega nr.73/1997. Nýr uppdráttur verður keyrður út n.k. mánudag
Haukur gerði grein fyrir athugasemdum Skipulagsstofnunar. Árni lagði fram tillögu að bókun:
Við gerð deiliskipulagstillögu varð sú yfirsjón að ekki var tekið tillit til ákvarðana í aðalskipulagi, um að vegstæði sé áætlað milli Víkurbrautar og Bogaslóðar, og að mót Álaugarvegar og Víkurbrautar verði teygð yfir hluta lóðarinnar Víkurbrautar 5.
Til að leiðrétta þessa yfirsjón leggur byggingar- og skipulagsnefnd til að minniháttar breytingar verði gerðar á deiliskipulagstillögunni er snúa að legu göngustígs, trjágróðri á lóð, minnkun lóðar við Víkurbraut 5 og afmörkun deiliskipulagsreits að litlu leyti. Nefndin leggur því til að:
? Lega gangstígs norðan knatthúss verði breytt lítillega.
? Trjágróðri við knatthús verði breytt og staðsetning hans verði ekki bindandi.
? Afmörkun deiliskipulags verði breytt þannig að það verði sniðið neðan tengibrautar milli Bugðuleiru og Bogaslóðar sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi en er ekki áformuð nú um stundir. Einnig var ramminn dreginn utan um alla lóð verkstæðishússins sem fellur niður.
? Lóð nr. 5 við Víkurbraut verði minnkuð til þess að verða megi af tilfærslu Víkurbrautar (stofnbraut) eins og gert er ráð fyrir í Aðalskipulagi.
Engar þær framkvæmdir sem heimilaðar eru / verða skv. umræddu deiliskipulagi hafa áhrif á áhrifasvæði fyrrgreindra vega, þó svo sú villa hafi verið gerð að deiliskipulagssvæði og lóðamörk hafi innlimað vegstæðin að hluta.
Lóðarhafar Víkurbrautar 5 fallast á að mörkum lóðar þeirrar verði breytt. Það er hægt að gera svo að að fullu sé vikið fyrir hugsanlegum vegalögnum skv. aðalskipulagi, án þess að hnika nokkru sem lýtur að eiginlegum framkvæmdum þeim sem deiliskipulagið fjallar um. Af þeim sökum munu breytingarnar, sem hér eru lagðar til, hvorki breyta forsendum athugasemda íbúa í nágrenninu né svörum bæjarstjórnar við athugasemdunum.
Með þessu er ekki verið að taka ákvörðun um þær veglínur sem Skipulagsstofnun vísar til í athugasemdum dagsettum 3. september 2008 enda er ekki verið að fjalla um veglínurnar að öðru leyti en að bregðast við mistökum við gerð deiliskipulagsuppdráttar sem hefðu getað hindrað framgang þeirra í framtíðinni. Með þessum breytingum er því lega þeirra tryggð ef ákveðið verður að leggja þessa vegi í framtíðinni.
Byggingar- og skipulagsnefnd muna fara þess á leit að umræddir vegir verði endurskoðaðar í nýju aðalskipulagi en vinna við það stendur yfir.
Í ljósi ábendinga Skipulagsstofnunar um útlit hússins mælir byggingar- og skipulagsnefnd með því að tekið verði fram við gerð útboðsgagna um knattspyrnuhús að húsið skuli hafa bogaþak og vera í ljósum lit.
Bókun samþykkt samhljóða.
2. 200706052 - Deiliskipulag á Leirusvæði
Haukur gerði grein fyrir tillögum verktaka um efnistöku innan Hafnar. Verktakar hafa óskað eftir því að taka efni úr með uppdælingu úr höfninni, sunnan við Ásgarð í Óslandi, Miðós og í Standeyjarvík. Nefndin var sammála um að heimila ekki efnistöku sunnan við Ásgarð og í Miðós. Nefndin gerir ekki athugasemdir við það að efnistaka fari fram í Standeyjarvík og með uppdælingu úr höfninni. Torfi taldi að hægt væri að ná upp góðu efni til uppfyllingar á Leirusvæði þegar dælt er upp úr höfninni.
3. 200808053 - Ósk um framkvæmdaleyfi
Óskað er umsagnar nefndarinnar um erindi Gísla Sigurbergssonar, Svínafelli, Nesjum, þar sem hann sækir um leyfi til að dýpka eystri farveg Hornafjarðarfljóta þar sem þau runnu áður austan Svínafells í Nesjum. Umfang verksins er eftirfarandi: Lengd skurðar í farvegi=1.011 m. Breidd skurðar=5,0-10,0 m. Dýpt skurðar=3,0 m. Uppgröftur að hámarki um 20.000-25.000 rúmm.
Gerð var grein fyrir umsókn Gísla Sigurbergssonar frá Svínafelli um framkvæmdarleyfi til að dýpka eystri farveg Hornafjarðarfljóta. Haukur greindi frá því að umfang verksins væri að þeirri stærðargráðu að það kallaði ekki á umhverfismat. Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að framkvæmdaleyfi verði veitt vegna umræddrar framkvæmdar.
4. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn. Skýrsla Mannvits-verkfræðistofu
Þorsteins Hermannssonar, ráðgjafi mætti á fundinn undir þessum lið, og gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið hjá Mannviti um umferðarmálin. Þorsteinn fór yfir mismunandi leiðir til að draga úr umferðarhraða og nefndi þar mismunandi útfærslur á hraðahindrunum svo sem, upphækkuð hlið, upphækkaðar hraðahindranir, þrengingar, miðeyjur, Zebra gangbrautir o.s.frv.
Nefndin er sammála um að taka umræðu um skýrsluna á næsta fundi nefndarinnar.
5. 200809004 - Sótt er um að náma í Almannaskarði verði tekin inn á aðalskipulag sveitarfélagsins sem fyrst
Bæjarráð vísaði, á fundi sínum 1. sept. 2008, til byggingarnefndar, erindi Ómars Antonssonar, dags. 15. ágúst, 2008, þar sem hann fer fram á, að malarnáma í Almannaskarði verði tekin inn á aðalskipulag sveitarfélagsins sem fyrst.
Árni lagði til að erindinu yrði vísað til þeirrar vinnu sem nú stendur yfir í tengslum við námur sem áætlað er að nota við nýtt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót. Var sú tillaga samþykkt.
Af þessu tilefni vill nefndin árétta fyrri bókun sína um efnistöku í landi Horns sbr. bókun á fundi nefndarinnar 13. desember 2006.
6. 200809006 - Móttaka fyrir brotajárn í landi Horns
Óskað eftir heimild til að starfrækja móttöku á brotajárni, vinnslu þess og útflutning til endurvinnslu.
Haukur gerði grein fyrir umsókninni. Nefndin tekur vel í umsóknina en óskar eftir því að fá nánari upplýsingar frá umsækjanda um stærð og afmörkun svæðisins áður en endanleg afstaða er tekin til málsins.
Undir þessum lið sköpuðust umræður um aðgengi að Austurfjörutanga. Nefndin beinir því til bæjarráðs að kanna hvort aðgengi að Asuturfjörutanga er tryggt öllum stundum.
7. 200809005 - Breiðabólsstaður 1 Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir tveggja hæða, steinsteyptu einbýlishúsi ásamt bílskúr, við Breiðabólsstað 1, Suðursveit, skv. teikn. Sveins Ívarssonar, arkitekts, dags. 3. sept. 2008. Sér lóð verður stofnuð fyrir húsið. Umsækjandi er Arnór Már Fjölnisson, Hala.
Nefndin samþykkir framlagðar teikningar fyrir sitt leyti.
8. 200808054 - Ósk um leyfi til að byggja kláfferju yfir Breiðá
Sótt er um leyfi til að byggja kláfferju yfir Breiðá í Öræfum, í stað annarrar er þar var, ef féll niður árið 2002. Með umsókn fylgir teikning með skýringum frá Verkfræðiþjónustunni ehf. dags. 25. febr. 2008 Umsækjandi er Gísli S. Jónsson, Hnappavöllum
Nefndin gerir ekki athugasemdir við uppsetningu kláfferju yfir Breiða í Öræfum.
9. 200808064 - Byggingarleyfisumsókn v. sumarbústaðar í Stafafellsfjöllum á lóð nr. 45a
Sótt er um byggingarleyfi fyrir sumarbústað á lóð nr. 45a í Stafafellsfjöllum, skv. teikn. frá ARKÍS ehf. Arkitekt: Einar Ólafsson, kt. 160865-5579. Verknr. O-hs45a. Dags. 03.06.2008. Umsækjandi er Ragna Björk Einarsdóttir, Fákaleiru 8c
Nefndin samþykkir framlagðar teikningar fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00


