Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 92
Fundur 92
Byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 11. júní 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá:
1. 200805096 - Opin svæði fjölskylduvænt umhverfi
Óskað er eftir leyfi til að setja upp þrekstöð á túninu milli Heilsugæslustöðvar og Júllatúns. Umsækjandi er Haukur Ingi Einarsson, f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Haukur gerði grein fyrir fyrirhugaðri þrekstöð staðsettri milli Júllatúns og heilsugæslustöðvar. Fór hann yfir samskipti sín við Heilbrigðiseftirlit Austurlands.
Byggingar- og skipulagsnefnd fellst á erindið fyrir sitt leiti en leggur áherslu á að hugað verði sérstaklega að öryggismálum svæðisins.
2. 200706082 - Umferðaröryggi. Hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn. Skýrsla Mannvits-verkfræðistofu
Lögð fram, til kynningar, skýrsla Mannvits-verkfræðistofu, um hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn, maí, 2008
Árni Rúnar gerði grein fyrir skýrslu Mannvits. Haukur gerði grein fyrir samskiptum sínum við skýrsluhöfunda og Vegagerðarinnar.
Töluverðar umræður sköpuðust um skýrsluna, nefndarmenn bentu á nokkra vegkafla sem má taka inn í vinnu við annan áfanga verkefnisins. Starfmanni falið að koma ábendingum á framfæri við skýrsluhöfunda í samræmi við umræður á fundinum.
Byggingar- og skipulagsnefnd mælir með að Mannvit verði falið að vinna að öðrum áfanga í samvinnu við starfsmenn og kynna nefndinni niðurstöðurnar þegar þær liggja fyrir.
3. 200804099 - Ósk um leyfi til að fjarlægja smáhýsi af lóðinni Hafnarbraut 48c
Ósk um leyfi til að flytja 5 smáhýsi af lóð nr. 48c yfir á lóð 48a við Hafnarbraut. Hús þessi koma í stað 5 húsa, sem heimilað var af byggingarnefnd hinn 9. apríl s.l. að flytja af lóð nr. 48a. Jafnframt er óskað eftir áframhaldandi leigu á lóð nr. 48c. Umsækjandi er Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir, f.h. Náttbóls ehf.
Samþykkt samhljóða.
4. 200805016 - Reglugerð fyrir Vatnajökulsþjóðgarð
Drög að reglugerð fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Framhaldsumræða frá síðasta fundi,fyrir liggja nú fyllri gögn, sbr. bókun þá.
Til kynningar.
5. 200805089 - Ósk um leyfi til að setja niður hús á lóð að Karli í Lóni
Unnsteinn Guðmundsson, Asparhvarfi 10 Kópavogi,sækir um leyfi til að setja niður smáhýsi, 15,4 ferm. í landi sínu framan við Karl í Lóni. Um er að ræða eitt af húsum, Náttbóls ehf á Hafnarbraut 48a, sem umsækjanda stendur til boða. Fyrir er á landinu lítið, 7,0 ferm. hús, sem sett var þar á síðasta ári. (án leyfis)
Starfsmenn gerðu grein fyrir því að óskin samræmist ekki landnotkun í gildandi aðalskipulagi. Á þeim forsendum er umsókninni hafnað. Erindinu vísað til endurskoðunar á aðalskipulagi. Torfi lagði til að kannað yrði hversu margar byggingar innan sveitarfélagsins samræmast ekki gildandi skipulagi. Samþykkt að vísa málinu til bæjarráðs.
6. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Haukur gerði grein fyrir tillögur ráðgjafa að verkferli og helstu viðfangsefnum við vinnu á endurskoðun á aðalskipulagi.
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur undir tillögur ráðgjafa að verkferli og helstu viðfangsefnum við vinnu á endurskoðun á aðalskipulagi og leggur til að skipaður verði stýrihópur til að stýra verkefninu í samstarfi við starfsmenn og ráðgjafa.
7. 200706052 - Deiliskipulag á Leirusvæði
Haukur greindi frá áfangaskiptingu á Leirusvæði.
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur undir tillögu að áfangaskiptingu og felur starfmönnum að koma með tillögur að úthlutunarreglum áður en að umræddar lóðir verði auglýstar lausar til umsóknar, umræddar lóðir eru Hagaleira nr. 8, 8 a, 10, 10 a, Fákaleira 1, 3, 5, 5 a, 7, 9, 11, 13 Álaleira 8, 10, 12 og 14. Byggingar og skipulagsnefnd leggur áherslu á að hæðar- og mæliblöð liggi fyrir áður en til úthlutunar kemur.
Í ljósi fréttaflutnigs af hugsanlegri skerðingu útlána Íbúðalánasjóð til nýbygginga beinir Byggingar- og skipulagsnefnd því til bæjarráðs að fara yfir málið og athuga sérstaklega hvort umrætt mál varði Sveitarfélagið Hornafjörð. Byggingar- og skipulagsnefnd bendir á að forsendur hugsanlegra aðgerða Íbúðalánasjóðs eiga ekki við á Hornafirði þar sem ekki er um offramboð á íbúðarhúsnæði að ræða.
Önnur mál
Hákon gerði grein fyrir umsókn Neyðarlínunnar hf, með bréfi dagsettu 7.06.2008 þar sem Neyðarlínan óskar eftir því að setja upp mastur fyrir neyðar- og öryggisfjarskipti á Hestgerðishnútu. Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir uppsetningu mastursins fyrir sitt leiti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00


