Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 91
91. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 14. maí 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
1. 200804128 - Byggingarleyfisumsókn Garðávaxtageymsla
Sótt er um leyfi til að byggja garðávaxtageymslu á Seljavöllum 2, Nesjum skv. teikn. frá Vigni Jónssyni, byggingartæknifr. dags. 26.11.2007. Verknr. 029 Byggingarefni er steinsteypa. Umsækjandi er Ásgeir Núpan Ágústsson, Seljavöllum 2.
Umsóknin er samþykkt, en lögð er áhersla á að umsækjandi fari að settum reglum og ábendingum heilbrigðiseftirlits um innri frágang hússins og aðstöðu, sbr. viðmiðunarreglur um Meðferð og dreifingu garðávaxta.
2. 200804082 - Byggingarleyfi f. gestahúsum við Vagnstaði
Sótt er um leyfi til að setja niður 5 gestahús við Vagnsstaði í Suðursveit, skv. teikn. frá Vali Sveinssyni bygg.fr. dags. 1. apríl, 2008. Um er að ræða hús Náttbóls ehf, sem standa á lóð nr. 48a við Hafnarbraut, en til stendur að flytja þaðan, sbr. afgreiðslu á 90. fundi nefndarinnar, 9. apríl, 2008.
Umsækjandi er Bjarni Sk. Bjarnason, Vagnsstöðum
Nefndin fellst á erindið, en óskar eftir því að gert verði deiliskipulag af umræddu svæði, þar sem fram kemur umfang starfseminnar á Vagnsstöðum.
3. 200802023 - Knattspyrnuhús
Fyrir liggur deiliskipulagstillaga að svæði fyrir knattspyrnuhús undir Garðshóli, KNATTLEIKJAHÚS VIÐ VÍKURBRAUT Á HÖFN, til kynningar og umsagnar. Tillagan er gerð af Glámu-Kím Arkitektum Laugavegi 164. Bæjarstjórn samþ. hinn 5. maí, s.l. að auglýsa tillöguna. Haukur gerði grein fyrir gögnum dagsettum 15.05.2008 er varðar minniháttar breytingar á tillögunni sem lögð var fyrir bæjarstjórn er varðar staðsetningu á byggingarreit fyrir þjónustubyggingu, bílastæði, gönguleið ásamt leiðréttingu á skýringum uppdráttar.
Í tillögunni kemur meðal annars fram,
Deiliskipulagsreiturinn afmarkast af Víkurbraut til austurs, brekkufæti Garðshóls (húsa við Bogaslóð og Garðsbrún) til vesturs, íþróttavelli til norðurs, og lóðamörkum „Lönguvitleysu“ við Víkurbraut og Víkurbrautar 5 til suðurs. Skipulagssvæðið er hluti af malarfyllingu á leirum austan Garðshóls. Í gildandi aðalskipulagi er þar svæði fyrir þjónustustofnanir og miðsvæði, og óbyggt svæði á rönd í brekkufætinum. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið, en á því standa þrjú hús, verkstæði, geymsluhús, og skrifstofur:
? Víkurbraut 7 landnúmer 160031, sem skiptist í vörugeymslu frá 1964, stærð 200m2 og vörugeymslu / skrifstofu frá 1983, stærð 227,1m2.
? Trésmíðaverkstæði við Víkurbraut (Leifshús), landnúmer 160035, byggingarár 1962, stærð 142,5m2.
Heimilað er að rífa eldra vörugeymslu-húsið, og rífa trésmíðaverkstæðið eða fjarlægja og
flytja á aðra lóð.
Umhverfis skipulagssvæðið eru skólalóðir, íþróttavöllur, íbúðarsvæði vestan og norðan við, geymsluskemma („Langavitleysa“) sunnan við, og verkstæði, verslunar- og þjónustuhús austan við, meðfram Víkurbraut.
Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina lóð og byggingarreit fyrir knattleikjahús og
tilheyrandi þjónustubyggingu á Höfn. Lóðin liggur vel við skóla- og íþróttamannvirkjum og verður auðsótt skólabörnum.
Skilgreind er ný lóð fyrir Knattleikjahús, 8900m2, þar sem heimilað er að reisa eftirtaldar
byggingar:
A: Knattleikjahús á einni hæð að hámarki 4000m2. Hámarkshæð er gefin í kennisniði og miðast hún við gólfkóta aðalhæðar sem gefinn er á mæliblaði – hæð langveggja skal ekki meiri en 7,5m og mænishæð skal ekki hærri en 12m. Í stað knatthúss er heimilt að reisa svokallað dúkhús / tjald, þ.e. burðarvirki með ástrengdum dúk, svo lengi sem öllum skilyrðum um fullnægjandi brunavarnir, fjarlægðir milli húsa, aðkomu slökkviliðs o. fl. er fullnægt og húsið/ tjaldið fær úttekt byggingaryfirvalda.
B: Þjónustubyggingu fyrir knatthús sem inniheldur, salerni, miðasölu, veitingasölu, kaffistofu starfsfólks o. fl. Hámarksstærð byggingarinnar er 300m2 og hámarkshæð er gefin í kennisniði og miðast hún við gólfkóta aðalhæðar sem gefinn er á mæliblaði – hæð langveggja skal ekki meiri en 3,5m og mænishæð skal ekki hærri en 5m.
Nýtingarhlutfall nýrrar lóðar er 0,46.
Byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við framkomnar breytingar að deiliskipulagstillögu og mælir með því, að tillagan verði auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Árni Rúnar Þorvaldsson lagði áherslu á að samfara almennri auglýsingu færi fram grenndarkynning. Tillaga samþykkt
4. 200804049 - Skipulagsdagurinn 2008
Árni Rúnar Þorvaldsson og Haukur Ingi gerðu grein fyrir fundinum, þar sem meðal annars var fjallað um Landskipulag og áhættumat í aðalskipulagi o.fl.
5. 200805016 - Drög að reglugerð
Byggingar og skipulagsnefnd gerir athugasemd við 30. gr. og bendir á að ekki er gert ráð fyrir aðkomu byggingar- og skipulagsnefndar viðkomandi sveitarfélags í greininni. Nefndin óskar eftir því að fá gögn um mörk Vatnajökulsþjóðgarðs til að geta tekið endanlega afstöðu til reglugerðarinnar.
6. 200805022 - Umsókn um breytta starfsemi í húsnæði Nesjaskóla
Sótt er um leyfi til að breyta notkun núverandi heimavistar Nesjaskóla í gistiheimili og Sunnuhvolshúsinu í íbúðarhús (eins og það var upphaflega) Teikningar af gistiheimilinu, með breytingum, eru í vinnslu og verða lagðar fram fljótlega. Umsækjandi er Hótel Jökull ehf.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið
7. 200805021 - Byggingarleyfisumsókn v. viðbyggingar
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála/sólskála á Hafnarbraut 22, milli íbúðarhúss og geymsluhúss, skv. teikn. frá Verkfræðiþjónustunni ehf gerðum af Svavari Sigurjónssyni, tæknifr. Verknr. 08.28 Dags. 03.05.2008. Umsækjandi er Ingibjörg Zophoníasdóttir, Hafnarbraut 22
Nefndin samþykkir umsóknina án athugasemda.
8. 200804017F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 3
Sótt er um leyfi til að skipta út gluggum á Hrísbraut 9, og breyta útliti þeirra um leið skv. framlögðum teikn. Einnig er sótt um leyfi til að setja upp 4,0 ferm. anddyri framan við forstofuna. Hvort tveggja, anddyrið og gluggar verða úr PVC plasti. Umsækjendur eru Kristján Friðriksson og Lovísa B. Kristjánsdóttir
Umsóknin er samþykkt.
Sótt er um leyfi til að breyta (skipta út)gluggum á íbúðarhúsinu að Hlíðartúni 10, samkv. framlögðum skýringargögnum. Breytingin felst í því, að rammar fyrir fög eru breikkaðir og skipt með láréttum pósti með opnanlegu fagi í neðri ramma. Um verður að ræða plastglugga.
Umsóknin er samþykkt.
Beðist er velvirðingar á því, hve dregist hefur að svara erindinu.
9. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi
Árni greindi frá vinnufundi með arkitektum og ráðgjöfum frá Gláma-Kím varðandi endurskoðun aðalskipulags laugardaginn 26. apríl 2008 kl. 09.00 - 14.00.
Ráðgjöfum og starfsmönnum falið að koma með tillögur að verkferli og skilgreina helstu viðfangsefnin við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30


