Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 90
90. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi
miðvikudaginn 9. apríl 2008 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Miralem Haseta, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Steinþór Hafsteinsson, Björn Þór Imsland,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs
1. 200802037 - Neyðarútgangshurð - ósk um leyfi fyrir uppsetningu
Starfsmenn greindu frá öryggiskröfum byggingarreglugerðar er varða flóttaleiðir ásamt mismunandi kostnaði við að staðsetja brunastiga út á bílastæði í vestri og hinsvegar í átt að Sindrahúsi í suður. Byggingarnefnd samþykkir að staðsetja brunastigann á suðurhluta húsin. Björn Ingi sat hjá við afgreiðslu þessa máls.
2. 200804004 - Vistvænn útivistarbær
Haukur greindi frá samskiptum sínum við áhuga hópinn. Byggingar- og skipulagsnefnd tekur vel í tillögur hópsins og leggur til að starfsmaður kanni kostnað við skipulagsvinnu og leiti til Náttúrulega vegna þeirrar vinnu.
Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir óskar eftir leyfi til að fjarlægja 5 smáhýsi af lóð nr. 48a við Hafnarbraut.
Samþykkt samhljóða.
3. Önnur mál
Árni Rúnar Þorvaldsson spurðist fyrir um vinnufund með Gláma - Kim, Haukur greindi frá því að stefnt er að því að halda vinnufund með ráðgjöfum 26. apríl. Björn Ingi gerði athugasemd benti á að hann hefði áður sagt að þessi dagsetning hentaði sér ylla.
Fleira ekki gert.


