Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 40
40. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 9. janúar 2003, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ólafur Sigurðsson formaður, Magnús Jónasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson, Sigurður Hannesson, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur, Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Hafnarbraut 45 Auglýsingarskilti Olís.
Sótt er um leyfi til að reisa auglýsingastand með skilti, við Söluskála Olís, Hafnarbraut 45, samkv. gögnum frá Friðriki Ólafssyni, verkfr. dags. 25.10.2002. Hæð skiltisstandsins er 6,7 metrar. Umsækjandi er Hafsteinn Guðmundsson, f.h. Olíuverslunar Íslands hf. sbr. bréf dags. 9. desember s.l. Haukur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um endanlega staðsetningu þess þannig að tillit sé tekið til lagna og að það skyggi ekki á umferð við gatnamótin Víkurbraut / Hafnarbraut.
2. Smárabraut 24 Kross á lóð Hvítasunnusafnaðarins
Kynnt voru framkomin gögn um fyrirhugaðan kross á lóð Hvítasunnusafnaðarins við Hafnarbraut ( gamla Garðeyjarhúsið ), en óskað hafði verið eftir ýtarlegri gögnum sbr. afgreiðslu nefndarinnar 10. okt. 2002. Lögð er fram lýsing á uppbyggingu á 12 metra kross og mynd af krossinum við húsið.
Erindið er samþykkt með þeim fyrirvara að hæð hans verði ekki meiri en 8 metrar ( sjá fyrri samþykkt ).
3. Skálafell 1, Suðursveit Sumarbústaður/gistiskáli
Sótt er um leyfi fyrir byggingu á einu sumarhúsi að Skálafelli 1, Suðursveit, samkv. teikn. Reynis Sæmundssonar, arkit. dags. 03.04.2002. Húsið er þegar byggt. Sótt er um bygginguna veð vísan í 3. tl bráðab.ákvæða skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Heimild þar um hefur fengist frá Skipulags-stofnun.
Umsækjandi er Þorsteinn Sigfússon, Skálafelli, sbr. bréf dags. 6. janúar s.l.
Erindið samþykkt
4. Stafafellsfjöll. Sumarbústaður á lóð nr. 1b
Sótt er um leyfi til að reisa sumarbústað á lóð nr. 1b í Stafafellsfjöllum, sem hlotið hefur samþykki, sem viðbótarlóð, og breyting á deiliskiplagi svæðisins, hjá Skipulagsstofnun. Húsið, sem er byggt á Höfn, hefur þegar verið flutt á lóðina. Það er mælt upp og teiknað ( raunteikn. ) af Vali Sveinssyni, byggingafræðingi.
Umsækjandi er Gunnar Sighvatsson sbr. bréf dags. 6. janúar s.l.
Erindið samþykkt
5. Skipulagsmál. Málið reifað af Ólafi Sigurðssyni, form. byggingar- og skipulagsn.
Rætt var um endurskoðun á samþykktu aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi á Leirusvæðinu, en engar athugasemdir hafa borist við dreifibréf sem sent var út vegna þessa.
Ákveðið var að senda dreifibréfin út að nýju þar sem fram kæmi ákveðin lokadagsetning vegna breytinga á aðalskipulagi.
6. Samgöngumál. Málið reifað af Ólafi Sigurðssyni, form. byggingar- og skipulagsn.
Ólafur kynnti tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2003 - 2014 þar sem m.a. kemur fram að Hornafjarðarfljót og Jökulsá á Breiðamerkursandi er ætlað fjármagn á árunum 2003 - 2010, en brýr í Öræfum fá ekki fjármagn fyrr en 2007.
Nefndin beinir því til bæjarráðs að vakin verði athygli á þessu við samgönguráðuneytið með það í huga að flýtt verði aðgerðum við endurbætur á einbreiðum brúm í sveitarfélaginu án þess að það hafi áhrif á önnur verk í sveitarfélaginu.
Ákveðið var að halda sér fund um umferðarmál fljótlega.
7. Kynning nokkurra ,,smærri mála,,
Eftirtalin mál hafa verið afgreidd, sem ,,smærri mál,, frá síðasta fundi nefndarinnar.
- Frystihús Skinneyjar-Þinganess. 5. des. 2002, heimilað að setja glugga, útskot, á 2. hæð hússins, þar sem áður var matsalur, en verður breytt í fundaherbergi.
Engar athugasemdir
- Sandbakkavegur 6. 31. okt. 2002, Sverri Aðalstainssyni heimilað að setja upp gervihnattadisk 1,2 m í þvermál, á suðurstafn hússins.
Engar athugasemdir
- Hafnarbraut 34. Orkuver/ Efnalaug Dóru. 14. okt. 2002, samþykkt breytt veggjaskipan og útlit hússins, sem leiddi af breyttri eignaskiptingu hússins. Teikn. frá Sigbirni Kjartanssyni, arkit. dags. 08.07.2002.
Engar athugasemdir
4. Önnur mál.
Erindi frá Vegagerðinni um nýja girðingu á lóðinni við Víkurbraut, bréf dags. 9 desember, undirritað af Reyni Gunnarssyni, rekstrarstjóra.
Erindið samþykkt
Erindi frá Margot Anna Clara Gamm um að setja upp gervihnattardisk við íbúð hennar að Víkurbraut 30, Höfn, bréf dags. 8. janúar s.l.
Erindið samþykkt
Óformlegt erindi frá Olíuverslun Íslands um breytingar á þjónustustöð Olís á lóðinni við Hafnarbraut, þar sem kynnt er hugmynd um að rífa núverandi verslunarhúsnæði og innrétta fyrrverandi smurstöð sem þjónustustöð. Hluti af húsinu verður á 2 hæðum og á efri hæðinni verða skrifstofa og starfsmannaaðstaða.
Ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna en óskað eftir fullnaðargögnum áður en erindið verður formlega samþykkt.
Erindi frá Bjarna Hákonarsyni, Dilksnesi um leyfi til að breyta anddyri og snyrtingu á íbúðarhúsinu í Dilksnesi.
Erindið samþykkt.
Sigurður spurðist fyrir um skemmu við Horn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:30


