Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 78
78. fundur
Fundur í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 21. júní 2007 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Hákon Valdimarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. 200706052 - Deiliskipulag á leirusvæði
Árni Rúnar Þorvaldsson, óskaði eftir því að umferðarmál væru tekin fyrir sem sérliður undir 9. lið. Samþykkt samhljóða.
Byggingar- og skipulagsnefnd fagnar framkomnum gögnum frá Ullu R. Pedersen landslagsarkitekt og felur arkitekt að fullklára deiliskipulag á Leirusvæði en skal taka tillit til eftirtalinna breytinga. Lóðir sem skilgreindar eru E-1 hafi ekkert lágmarks nýtingarhlutfall en hámarks nýtingarhlutfall 0,5. Lóðir sem skilgreindar eru E-2, E-3, E-4, E-5, E-6, E-7, E-8, E-9 hafi lágmark nýtingarhlutfall 0,15 en hámarks nýtingarhlutfall 0,5. Lóðir sem skilgreindar eru E-5 verði byggðar á tveimur hæðum, allar aðrar lóðir á einni hæð.
Með þessum breytingum samþykkir Byggingar- og skipulagsnefnd framkomnum tillögum og vísar þessu til Bæjarráðs.
2. 200706026 - Umsókn um uppsetningu skiltis v. motorcross
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir niðursetningu skiltis v/motocross brautar á vegslóða sem liggur frá Hafnarbraut að Drápsklettum. Staðsetning skiltisins skal vera í samráði við starfmenn tæknideildar sveitafélagsins.
3. 200706006 - Ný lög um gatnagerðargjald
Byggingar- og skipulagsnefnd er sammála um að taka skuli til endurskoðunar samþykkt sveitafélagsins um gatnagerðargjald og felur starfmönnum að koma með tillögu að nýrri samþykkt fyrir næsta fund.
4. 200706025 - Júllatún 7 Umsókn um byggingarleyfi
Samþykkt samhljóða.
5. 200705088 - Umsókn um leyfi til að rífa viðbyggingu við Sindrabæ
Samþykkt samhljóða.
6. 200706033 - Umsókn um byggingarleyfi v. Vesturbrautar 1
Byggingar- og skipulagsnefnd samþykkir hugmyndir að fyrirhugaðri stækkun og felur starfsmönnum að finna lausn á lóðarmálum í samræmi við umræður á fundinum. Gerð er athugasemd við gasgeymsluhús á lóðinni.
7. 200706042 - Jökulsárlón Olíuskilja
Samþykkt samhljóða.
8. 200706046 - Breyting á skipulagi v. Bugðuleiru 6
Byggingar- og skipulagsnefnd sér ekki ástæðu til að breyta núgildandi aðalskipulagi fyrir þetta svæði og því hafnar nefndin ósk um breytingu á deiliskipulagi vegna Bugðuleiru 6.
9. 200706082 – Umferðaröryggi
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að innkoman inn í bæinn verði 50 km/klst. að gatnamótum við Hlíðartún. Allar aðrar götur verði með 30 km/klst. Björn Ingi leggur áherslu á að umferðarljós verði sett upp við gatnamót Víkurbrautar og Hafnarbrautar. Árni Rúnar Þorvaldsson dreifði umhverfisskýrslu " breyting á Aðalskipulagi Hornafjarðar 1998 - 2018 vegna nýlagningar vegar yfir Hornafjarðarfljóta“
Fundi slitið kl. 20:30


