Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 85
85. fundur
Byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 12. desember 2007 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, , Steinþór Hafsteinsson og Haukur Ingi Einarsson.
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs.
Dagskrá:
- Umferðaröryggi
Byggingar- og skipulagsnefnd stendur við fyrri bókun sína frá 21. júní 2007 þar sem nefndin leggur til að innkoman inn í bæinn verði 50 km/klst. að gatnamótum við Hlíðartún. Allar aðrar götur verði með 30 km/klst. Vísað til umfjöllunar í bæjarráði.
- Endurskoðun á aðalskipulagi.
Umræður um kirkjugarðstæði sköpuðust, nefndin lagði áherslu á að skoða væntanlega staðsetningu kirkjugarðs vel og fara í vetfangsferð miðvikudaginn 19. desember til að skoða þær tillögur nefndarmanna að staðsetningu sem fengu umfjöllun á fundinum. Starfsmönnum var falið að greina sóknarnefnd frá umræðum á fundinum. Starfmanni var falið að vinna áfram að endurskoðun á aðalskipulagi svæðis milli Ægisíðu og Hafnarbrautar í samræmi við umræður á fundinum. Starfmanni var falið að halda áfram vinnu við gagnasöfnun varðandi staðsetningu Lónsheiðargangna.
- Stækkun lóðarinnar við Litlubrú 1 – umsókn
Nefndin samþykkir stækkun lóðarinnar fyrir sitt leyti.
- Önnur mál
Björn Ingi spurðist fyrir um styrkleikaprófanir á steypu í sundlaug. Verið er að bíða eftir niðurstöðum fyrstu prófunar.
Fundi slitið 18:40


