Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 84
84. fundur
84. fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,fimmtudaginn 29. nóvember 2007 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Miralem Haseta, Jón Stefán Friðriksson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá:
1. 200711062 - Breyting á byggingarleyfi - umsókn
Þórbergur Torfason sækir um breytingu á útgefnu byggingarleyfi (sbr. fund nefndarinnar 11.04.2007)Breyting felst í því, að gefa út leyfið (vegna Breiðabólsst.-Lundar) á Skyrhúsið ehf,kt.480507-0960, í stað Þórbergs Torfasonar. Einnig er sótt um leyfi til breyttrar notkunar hússins, þ.e. í heimagistingu ferðaþjónustu
Samþykkt samhljóða, með fyrirvara um samþykki eldvarnar- og heilbrigðiseftirlits.
2. 200711012 - Tillaga svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs um staðsetning gestastofu
Bæjarráð vísaði á fundi sínum 12. nóv. 2007, til byggingar- og skipulagsnefndar tillögu Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs um staðsetningu gestastofu þjóðgarðsins, á Stekkanesi, norðan Stekkakeldu. Bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti
Byggingar- og skipulagsnefnd tekur undir bókun bæjarráðs og samþykkir tillögu Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir sitt leiti.
3. 200709023 - Ósk um uppsetningu minningartöflu v/Svínafellsjökul
Sendiráð Sambandslýðveldisins Þýskalands óskar f.h. aðstandenda Thomasar Grundt og Mathiasar Hinz eftir leyfi til að setja upp minningartöflu um þá félaga við Svínafellsjökul í Öræfum. Óskað er umsagnar byggingar- og skipulagsnefndar um málið.
Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við uppsetningu minningartöflunnar. Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjóri og landeigandi vinni sameiginlega að málinu. Nefndin beinir til bæjarráðs að gerðar verði reglur um niðursetningu minningarskilta í sveitarfélaginu.
Önnur mál.
Björn Ingi lagði áherslu á að umræða um hraðatakmarkanir í þéttbýli verði haldið áfram og afgreitt til bæjarráðs, samþykkt var að taka málið upp á næsta fundi.
Gunnar Páll gerði að umtalsefni lóðamál, nefndin var sammála um að taka lóðamál til skoðunar í tengslun við endurskoðun á aðalaskipulagi.
Miralem bendir á nauðsyn þess að sett verði upp net milli sparkvallar og sundlaugargrunns.


