Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 81
81. fundur
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Páll Ólafsson, Miralem Haseta, Steinþór Hafsteinsson, Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson (HIE),
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá:
1. 200709033 - Viðmiðunarreglur um kirkjugarðsstæði o.fl.
Til kynningar.
2. 200708082 - Lóðarumsókn
Ægissíða lóð nr 40
Samþykkt samhljóða.
3. 200709061 - Lönd í eigu sveitafélagsins
Miklar umræður sköpuðust, starfsmanni var falið að kanna hvernig þessum málum er háttað í öðrum sveitafélögum, enn fremur að kynna hlutaðeigandi aðilum fyrirhugaðar breytingar á úthlutunarreglum fyrir beitar- og slægðarlönd og halda áfram að vinna að málinu.
4. 200709059 - Endurskoðun á Aðalskipulagi
Nefndin óskaði eftir uppdrætti og skilmálum af núverandi aðalskipulagi með þeim breytingum sem hafa orðið frá því að aðalskipulagið var unnið. Nefndin lagði áherslu á að við endurskoðun á aðalskipulagi verði tekin til athugunar eftirfarandi þættir: Lónsheiðargöng, nýtt vegstæði í Lóni, nýtt vegstæði í Öræfum, möguleiki á búgarðabyggð, skipulag á Ægissíðu, þjóðvegur í þéttbýli, knattspyrnuhús og möguleikar á fleiri lóðum innan þéttbýlis.
Starfmanni var falið að koma með tillögu að verkáætlun og tímaáætlun.
5. 200709070 - Tillögur að fjósbyggingu og deiliskipulagi.
Fyrirhuguð fjósbygging í landi Flateyjar.
Til kynningar.
6. 200709069 - Ósk um breytingu á notkun grasköggla skemmu í Flatey
Nefndin vísar teikningum til eldvarnareftirlis Hornafjarðar til yfirferðar, að öðru leyti samþykkir nefndin teikningarnar.
Önnur mál
Nefndin samþykkti að næsti fundur verði fimmtudaginn 18. október.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40


