Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 79
79. fundur
Fundur byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, Miðvikudagurinn 4. júlí 2007 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson ( í síma ), Haukur Ingi Einarsson (HIE), Hákon Valdimarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Dagskrá:
1. Umhverfisskýrsla
Breyting á Aðalskipulagi Hornafjarðar 1998 – 2018 vegna nýlagningar vegar yfir Hornafjarðarfljót.
Byggingar- og skipulagsnefnd hefur kynnt sér drög að umhverfisskýrslu sem unnin var af ráðgjöfum sveitarfélagsins, erindi frá nokkrum fasteignaeigendum og íbúum í Nesjum, dags. 14. ágúst 2006 og erindi nokkurra ferðaþjónustuaðila í Suðursveit og Mýrum dags. 19. ágúst 2006. Eftir þá yfirferð liggur eftirfarandi niðurstaða fyrir af hálfu byggingar- og skipulagsnefndar:
Í ljósi úrskurðar umhverfisráðuneytisins 11. maí 2007, í kæru Vegagerðarinnar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar Hringvegar um Hornafjarðarfljót, sér byggingar – og skipulagsnefnd ekki ástæðu til þess að taka afstöðu til leiða 4 og 5 sem fjallað er um í Umhverfisskýrslunni.
Um þrjár leiðir er að ræða skv. tillögu Vegagerðarinnar. Byggingar- og skipulagsnefnd er sammála um að leið 2 hafi umtalsverða ókosti í för með sér. Í fyrsta lagi hefur leiðin umtalsverð áhrif á landslag á austasta hluta leiðarinnar, þ.e. eftir að hún tekur land við Dilksnes. Þar er gert ráð fyrir að hún liggi í gegnum stór klapparholt sem geta talist einkennandi fyrir landslag á þessum slóðum. Ennfremur liggur hún yfir nær samfelldar sjávarfitjar á milli Árnaness og Dilksness. Þá liggur hún mun nær Árnanesbæjunum en leið 3. Á leið 2 um Skógey og á Mýrum liggur hún á votlendisgróðri. Byggingar- og skipulagsnefnd hafnar því að leið 2 verði farin og lítur svo á að valið standi fyrst og fremst á milli leiðar 1 og leiðar 3.
Byggingar- og skipulagsnefnd telur einnig einsýnt að leið 3 hafi minni áhrif á landslag en leið 2 auk þess að leið 3 sker jarðir landeigenda í sveitafélaginu minnst þeirra þriggja leiða sem í mati eru. Helsti munur á milli leiðanna felst í því að leið 3 liggur yfir Flóa í Skarðsfirði sem er á náttúruminjaskrá. Á hinn bóginn liggur leið 3 ekki í sama mæli yfir sjávarfitjar og leið 2. Einnig bendir flest til þess að leið 3 hafi ekki jafn mikil áhrif á landslag og leið 2. Þá er það einnig mat byggingar – og skipulagsnefndar að jákvæð samfélagsleg áhrif yrðu mest fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð ef farin verður leið 3 vegna verulegra styttinga vegalengda innan sveitafélagsins.
Byggingar- og skipulagsnefnd þykir ljóst að leið 1 hafi minni áhrif á náttúrufar í för með sé en leiðir 2 og 3. Ákveðnir annmarkar eru þó á þeirri leið. Í fyrsta lagi liggur leiðin norðan í skeiðvelli Hestamannafélagsins Hornfirðings og sker sundur ræktunarlönd í Borgum, Akurnesi og Seljavöllum. Umhverfisáhrif leiðar 1 eru talin vera töluvert minni í Hornafirði, Skógey og á Mýrum en leiðir 2 og 3. Á móti kemur að sú leið styttir vegalengdir innan sveitafélagsins Hornafjarðar mun minna en leiðir 2 og 3. Munurinn er 4 km á leið 3 og leið 1 en að sama skapi 2,6 km á milli leiðar 1 og leiðar 2. Stytting vegalengda innan sveitafélagsins Hornafjarðar er grundvallaratriði að mati byggingar- og skipulagsnefndar. Sú umtalsverða stytting sem verður samfara því að fara leið 3 samanborið við að fara leið 1 er það mikil að byggingar- og skipulagsnefnd telur að almannahagsmunir liggi við.
Leiðir 2 og 3 hafa það báðar sammerkt að stór hluti Nesjasveitar liggur ekki lengur í alfaraleið. Byggingar- og skipulagsnefnd telur það mikilvægt að merkingar og auglýsingar verði settar upp við gatnamót þjóðvegar og Hafnarvegar þar sem þjónusta í sveitafélaginu verði auglýst.
Það er því niðurstaða byggingar- og skipulagsnefndar að leið 3 í tillögum Vegagerðarinnar sé besti kosturinn af þeim leiðum sem hún leggur til að verði metnar í framkvæmdamati. Ekki síst vegna bætts umferðaröryggis sem og verulegra styttinga á vegalengdum innan sveitafélagsins sem leið 3 hefur í för með sér.
Niðurstaða byggingar- og skipulagsnefndar er því sú að leið 3 verði fyrir valinu.
Byggingar- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að það kynni umhverfisskýrsluna fyrir íbúum sveitafélagsins eftir að bæjarráð hefur fjallað um skýrsluna.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 19.25


