Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 77
77. fundur
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður, Gunnar Páll Halldórsson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig Hákon Valdimarsson, Haukur Ingi Einarsson og Steinþór Hafsteinsson.
Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
1. Deiliskipulag Leirusvæðis Tillaga
Lögð fram tillaga Ullu R. Pedersen, landslagsarkitekts, að breytingu deiliskipulags norð-austan Fiskhóls. Nefndin lagði áherslu á að nýtingarhlutfall verði endurskoðað með það að leiðarljósi að hafa lágmark og hámark á nýtingarhlutfalli. Nefndin sammála um að stefna að því að afgreiða deiliskipulagstillögur á næsta fundi byggingar- og skipulagsnefndar.
2. Umferðarmál
Starfmenn kynntu tillögur sínar um hraðatakmarkanir. Miklar umræður sköpuðust og nefndin var sammála um að stefna að lækkun hámarkshraða í íbúðargötum úr 45 km/klst. í 30 km/klst. en hafa 50 km/klst. á ákveðnum stofnbrautum. Starfsmönnum var falið að setja niður á götukort framkomnar tillögur.
3. Fornustekkar Reiðhöll og hesthús
Nefndin samþykkir teikningarnar, frá Teiknistofunni TNK, dagsettar 01.05.2007, fyrir sitt leiti að því skilyrtu að eldvarnar og heilbrigðiseftirlit samþykki teikningarnar.
4. Tjaldsvæði Hafnar. Salernisgámar.
Byggingarfulltrúi kynnti salernisgám og staðsetningu hans, nefndin samþykkti salernisgáminn að því tilskyldu að viðunandi teikningum verði skilað inn.
5. Ræktunarlönd sveitafélagsins.
Haukur kynnti lauslegar hugmyndir sínar að breyttu fyrirkomulagi á útleigu ræktunarlanda í eigu sveitafélagsins. Miklar umræður sköpuðust, starfsmanni var falið að útfæra tillögur.
6. Nýr kirkjugarður.
Byggingarfulltrúi kynnti tillögu að staðsetningu fyrirhugaðs kirkjugarðs vestan við Eystri Sílavíkurhól.
7. Síminn GSM sendir í Öræfum
Frestað þar sem gögn hafa ekki verið lögð fram.
8. Stofnskjöl.
Haukur kynnti ferli stofnskjala og tillögu að gjaldskrá fyrir stofnskjöl. Nefndin var sammála um að taka skuli upp gjald fyrir þau stofnskjöl sem byggingarfulltrúi útbýr.
9. Afgreiðsla ,,smærri mála” sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
Gerð var grein fyrir fjórum smærri málum.
10. Önnur mál
Sumarbústaður í Lóni, lóð nr. 7 Eigandi Birkir Birgisson. Tillaga að endurnýjun á sumarbústað, nefndin gerir ekki athugasemdir við framkomna tillögu og óskar eftir endanlegum teikningum.
Fundi slitið 19:15


