Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 75
75. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 14. mars, 2007, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, formaður, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson og Gunnar Páll Halldórsson.
Einnig Hákon Valdimarsson og Steinþór Hafsteinsson.
Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Formaður bar fram dagskrárbreytingartillögu þess efnis að erindi frá Guðrúnu Ingimundaróttur f.h. 110 ára afmælisnefndar Hafnar verði tekið fyrir sem sérliður á dagskrá. Engar athugasemdir.
1. Hlíðartún 7. utanhússklæning og einangrun
Sótt er, í bréfi dags. 22. febrúar 2007, um leyfi til að klæða íbúðarhúsið að Hlíðartúni 7, Höfn að utan með stálklæðningu og einangra veggi þess samhliða.
Umsækjendur eru Nanna Ingólfsdóttir og Hilmar Bragason, Hlíðartúni 7.
Erindið samþykkt.
2. Hafnarbraut 4. Breytt notkun. Íbúð / veitingar
Sótt er, í ódagsettu bréfi, um leyfi til að breyta notkun verslunarhússins Hafnarbraut 4, Höfn, í íbúðar – og veitingahús.
Umsækjandi er Anna Erla Þorsteinsdóttir, Smárabraut 20, f.h. Útgf. ÓV ehf.
Umsækjendum er bent á að leggja þarf fram fullnaðarteikningar af húsnæðinu í samræmi við fyrirhugaða starfsemi.
3. Miðsker , Nesjum. Kartöflugeymsla
Óskað er, í bréfi, dags. 08.03.2007, eftir leyfi til að byggja kartöflugeymslu á Miðskeri, Nesjum skv. teikn. frá Teiknihorni ehf. gerðum af Vali Sveinssyni byggingarfr. dags. ____ ______ Verknr. NES – 1.
Um er að ræða stálgrindarhús, sem byggist við annað samskonar, sem byggt var 2004.
Umsækjandi er Sævar Kr. Jónsson, Miðskeri.
Erindið samþykkt.
4. Guðrún Ingimundardóttir f.h. 110 ára afmælisnefndar Hafnar
Í bréfi, dags. 17.02.2007, er sótt um leyfi til að myndskreyta stoðvegg meðfram Hafnarbraut við Brautarholt í samvinnu við Hafnarskóla.
Erindið samþykkt en nefndin leggur áherslu á að fyllsta öryggis verði gætt gagnvart umferð.
5. Afgreiðsla „smærri mála“ sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar
Engar afgreiðslur
6. Önnur mál
Óskað er, í ódagsettu bréfi, eftir heimild nefndarinnar til að breyta Hagatúni 8 í einbýli úr tvíbýli.
Umsækjandi er Ester Traustadóttir.
Erindið samþykkt.
Óskað er, í ódagsettu bréfi, eftir leyfi til að setja niður til bráðabirgða starfsmanna – og gestahús af stærð 22,84 fermetrar í Óslandi, nánar tiltekið á bakkanum norðan Óslandsbryggju
Umsækjendur f.h. Fjöruferða ehf. eru Haukur Sveinbjörnsson og Elvar Unnsteinsson.
Erindið samþykkt. Hákon bendir á að óskað hafi verið eftir umsögn Umhverfisstofnunar.
Hákon kynnti nýjar teikningar fyrir Víkurbraut 11 – 13.
Hákon kynnti munnlega fyrirspurn Gunnar Hermannssonar um möguleika á að breyta nyrðri hluta Miðtúns 21 í íbúð. Nefndin gerir engar athugasemdir við það en bendir á að slík breyting verði gerð í samráði við eldvarnareftirlit. Einnig er bent á að fullnaðarteikningar þurfa að berast til þess að breytingin geti tekið gildi.
Fundi slitið 18:15
Árni Rúnar Þorvaldsson Hákon Valdimarsson
Torfi Friðfinnsson Steinþór Hafsteinsson
Kristinn Óskarsson
Gunnar Páll Halldórsson


