Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 74
74. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 14. febrúar, 2007, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Torfi Friðfinnsson vara formaður, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Miralem Haseta, og Björn Ingi Jónsson.
Einnig Hákon Valdimarsson og Steinþór Hafsteinsson og Haukur Ingi Einarsson
Torfi setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
1. Sundlaug við Heppuskóla. Nýjar teikningar
Friðrik Þór Ingvaldsson óskar eftir afgreiðslu Byggingarnefndar á teikningum sundlaugar dagsettum 17.01.2007
Hákon kynnti breyttar teikningar frá ASK dagsetar 17.01.2007 varðandi sundlaug við Heppuskóla. Breyttar teikningar voru samþykktar samhljóða.
Björn Ingi gerir fyrirspurn um hvernig tenging milli sundlaugar og lagnakjallara er háttað.
2. Efnistökusvæði við Fjallsjökulskvísl. Svar við umsögn UST
Hákon gerði grein fyrir svari til UST
Í ljósi þeirrar bókunar, er hvatt til þess, að andmæli Umhverfisstofnun frá 8. jan. 2007, gegn auglýstri breytingu aðalskipulags, verði ekki tekin til greina, þótt taka megi undir ýmislegt í rökstuðningi hennar, en nauðsyn á aðgengilegu efnistökusvæði hlýtur að vega þyngra, enda um heill samgangna og vegakerfis í byggðarlaginu (þjóðv.nr 1) að ræða.
Svarið var samþykkt samhljóða.
3. Skálafell 2. Niðurrif þriggja húsa.
Hákon gerði grein fyrir ósk um niðurrif þriggja húsa við Skálafell 2, tillagan var samþykkt samhljóða, Torfi Friðfinnsson vék af fundi við þessa afgreiðslu.
4. Upplýsingar við Sultartungnagil
Torfi kynnti umsókn Bjarna S. Bjarnasonar um áningarstað við Sultartungnagil. Fundarmenn taka vel í þessa hugmynd en óska eftir frekari upplýsingum um umfang áfangastaðar, plan, skilti og skriflegs samþykkis annarra landeigenda til að geta afgreitt umsóknina.
5. Hafnarbraut 20 Tillaga um byggingu bílgeymslu
Kynnt voru viðbrögð íbúa Bogaslóðar 17 og Hafnarbrautar 22 í bréfi dagsetu 15.jan. 2007 við grenndarkynningu vegna framkominna óska um bílgeymslu við Hafnarbraut 20.
Í kjölfarið hafnaði nefndin tillögu um byggingu bílgeymslu.
6. Afgreiðsla smærri mála sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar
Ekki voru gerðar athugasemdir við innsend erindi smærri mála.
7. Önnur mál.
Umsókn um byggingarleyfi dagsett 6.feb. 2007 , Elín S. Harðardóttir óskar eftir stækkun á húsnæði sínu við Hagatúni 14. Umsókn samþykkt samhljóða.
Umsókn um byggingarleyfi dagsett 06.02.2007 , Óskað er eftir því að byggt verði 300 fermetra fjárhús að Setbergi. Nefndin tók jákvætt í umsóknina og óskaði eftir fullnægjandi teikningum.
Björn Ingi óskar eftir því að farið verði í þá vinnu að starfmenn útfæri hugmyndir að hraðabreytingum innanbæjar. Einnig skýrði hann frá hugmynd að umferðarljósum á gatnamótum Hafnarbrautar Víkurbrautar og hefur lauslega kannað kostnað við slíkt og er hann áætlaður undir 5. milljónum kr. Umræða skapaðist í kjölfarið og ákveðið að halda sérstakan fund í Byggingar- og skipulagsnefnd um umferðarmál sem allra fyrst.
Fundarmenn óskuðu eftir því að skrifleg erindi umsækjenda fylgi með fundarboði.
Umræða skapaðist um lóðarmál og nauðsynlegar úrbætur á þeim og ýta á að hægt sé að afgreiða lóðir í samræmi við eftirspurn.
Fundi slitið 19:00


