Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 72
72. fundur
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, Björn Ingi Jónsson og Miralem Haseta.
Einnig Hákon Valdimarsson, Össur Imsland, tækni- og umhverfissviði og Steinþór Hafsteinsson
Jafnframt tóku þátt í vettvangsferð í upphafi fundar um lóðarmál:
Ásgrímur Ingólfsson og Páll Ólafsson.
1. Lóðamál. Vettvangsferð nefndarinnar
Farin vettvangsferð um bæinn, og í framhaldi af því tekin til umræðu lóðamál, sbr liðinn ,,önnur mál,, í fundargerð nefndarinnar, 11. okt. s.l.
Nefndin leggur til að fengnir verði hönnuðir til að gera tillögur og eða breytingar á núverandi skipulagi. Nefndin leggur áherslu á að stórar einbýlahúsalóðir verði hafðar að leiðarljósi á eftirtöldum svæðum:
Leirusvæði, við enda Sandbakka, við enda Vesturbrautar og við Leiðarhöfða.
Í framhaldi af því verði teknar ákvarðanir um hvaða svæði verða gerð byggingarhæf.
Ásgrímur Ingólfsson og Páll Ólafsson viku af fundinum eftir þennan lið
2. Efnistaka í landi Horns. Umsögn Skipulagsstofnunar
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 21. nóv. s.l. til byggingar- og skipulagsnefndar, umsögn Skipulagsstofnunar, dags. 8. nóv. 2006, um fyrirhuguð efnistökusvæði í landi Horns, sbr. 5. lið í fundargerð nefndarinnar, 11. okt. s.l.
Nefndin óskar eftir upplýsingum umsækjanda og nánari skýringum á eðlisgerð efnis námanna ásamt rökstuðningi fyrir því að hafa þær allar opnar.
Steinþór Hafsteinsson vék af fundinum undir þessum lið
3. Framkvæmdaleyfi og aðalskipulagsbr., vegna lagningar ljósleiðara í Sveitarfél. Hornaf.
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 28. nóv. s.l. til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi Landsnets, dags. 20. 11. 2006, þar sem óskað er framkvæmdaleyfis og aðalskipulagsbreytinga vegna lagningar ljósleiðara í sveitarfélaginu Hornafirði.
Nefndin mælir með að veita framkvæmdaleyfi að undangenginni skipulagsbreytingu, en gerir athugasemd við meðfylgjandi uppdrátt þar sem ljósleiðari virðist liggja heim að Hólum.
4. Ósk um breytta skráningu fasteignar á Heppuvegi 5
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 5. des. s.l. til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi Ásbjörns Þórarinssonar, Hafnarbraut 3, Höfn, dags. 22. nóv. 2006, þar sem hann óskar eftir því, að skráningu fasteignarinnar á Heppuvegi 5, verði breytt úr atvinnuhúsnæði í frístundahúsnæði (bílskúr og geymslu)
Nefndin hafnar umsókninni.
5. Ósk um heimild til landskipta v/Reyðarár í Lóni
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 5. des. s.l. til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi Guðrúnar Ingólfsdóttur og Ingólfs Ásgrímssonar, f.h. Reyðarártinds ehf. dags. 27. nóv. 2006, þar sem óskað er heimildar til að skipta út landi ú Reyðará, skv. framlögðum gögnum.
Nefndin samþykkir umsóknina. Umræða skapaðist um landskipti og spildur út úr jörðum.
6. Ályktun Skógræktarfélags Íslands, um vægi skógræktar í skipulagsáætlunum.
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 7. nóv. s.l. til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi Skógræktarfélags Íslands, dags.25. okt. 2006, þar sem félagið hvetur sveitarfélög til að ætla skógrækt aukið vægi í aðal- og deiliskipulagsáætlunum sínum.....
Nefndin hefur að leiðarljósi áðurnefnd markmið við gerð skipulags.
7. Breiðabólsstaður Hali . Niðurrif hluta húss v/endurbyggingar
Sótt er, í tölvupósti, dags. 4. des. 2006, um leyfi til að rífa tvær vestustu burstir bæjarins á Hala vegna fyrir-hugaðrar endurbyggingar og breytingar.
Umsækjandi er Þórbergur Torfason.
Nefndin samþykkir umsóknina, en leggur áherslu á að við förgun byggingarhluta sé farið eftir gildandi lögum og reglugerðum.
8. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
A. – Jákvæð umsögn um vínveitingaleyfi fyrir veitingastaðinn Víkina, Víkurbraut 2, Höfn.
B. --Jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir Hótel Skaftafell, Freysnesi.
Engar athugasemdir við ofangreindar afgreiðslur.
9. Önnur mál.
Bréf Málningarþjónustu Hornafjarðar dags. 13.12.06, um leyfi til að byggja bílskúr við Hafnarbraut 20, Sólgerði, samanber meðfylgjandi hugmyndum.
Nefndin gerir ekki athugasemd við umsóknina að undangenginni grenndarkynningu.
Björn Ingi minnti á bókun fyrri fundar um að halda bæri við fyrsta tækifæri áður fyrirhugaðan fund um umferðamálefni og hraðakstur innanbæjar.
Fundi slitið 19:50


