Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 70
70. fundur
Yfirlit
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 11. október, 2006, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson, , Páll Ólafsson og Erna Gísladóttir.
Einnig Hákon Valdimarsson, Össur Imsland og Borgþór Freysteinsson, tækni- og umhverfissviði einnig Steinþór Hafsteinsson
1. Skáli í Lónsöræfum ?
Tölvupóstur frá Hjalta Þór, bæjarstjóra, dags. 3. okt. s.l. þar sem óskað er eftir umræðu nefndarinnar um skipulags- og hreinlætismál i Lónsöræfum, samkv. ábendingum Helgu Hreinsdóttur hjá HAUST
Nefndi óskar eftir að viðeigandi umsóknir frá Gunnlaugi Ólafssyni um mannvirki í Lónsöræfum, ásamt gögnum berist nefndinni þar sem leyfi fyrir umræddum byggingum hefur ekki verið gefið. Frestur til þessa er innan þriggja mánaða frá fundardegi.
2. Friðsæld Framtíð efnistökusvæðis
Tölvupóstur frá Hjalta Þór, dags. 3. okt. (sbr lið 1.) þar sem óskað er eftir umræðu í nefndinni um framtíðarsýn hvað varðar hugsanlega, áframhaldandi efnistöku á svæðinu. Mál þetta var til umræðu á fundi nefndarinnar 8. febr. 2006.
Byggingarnefnd ítrekar bókun fyrri nefndar frá fundi8. feb. sl. “Byggingarnefnd er sammál um að Friðsæld verði áfram efnistökusvæði eins og nú er á gildandi aðalskipulagi og gerður verði skriflegur samningur þar um við Landbúnaðarráðuneytið. Meta þarf hversu mikið og hvernig verði staðið að efnistökunni í framtíðinni.”
Erna Gísladóttir mætti á fund undir þessum lið.
3. Framtíðarlóð fyrir pylsubarinn
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 3. okt. 2006, til nefndarinnar, erindi Lars J. Andréssonar og Hólmars Kristmundssonar, dags. 21. sept. 2006, þar sem þeir óska eftir lóð nr. 38 við Hafnarbraut, sem framtíðarlóð fyrir pylsubarinn, sem nú stendur á Víkurbraut 6, með bráðbirgðaleyfi.
Nefndin hafnar umsókninni um lóð nr. 38 við Hafnarbraut sem framtíðarlóð, en bendir á möguleika um umsókn bráðabirgðaleyfis. Húsnæðið uppfyllir ekki gildandi skipulagsskilmála fyrir svæðið.
4. Heppulóð, Umsókn Esjars Stefánssonar
Byggingarfulltrúi gerir grein fyrir stöðu málsins.
Með vísan í umsögn Menningarmiðstöðvara Hornafjarðar dags: 09.10.2006 sér nefndin sér ekki fært um að verða við beiðni á úthlutun rústanna við Heppuveg 4.
5. Efnistaka í landi Horns. Umsagnir UST og HAUST
Kynntar umsagnir Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Austurlands vegna umsóknar Ómars Antonssonar um framkvæmdaleyfi til efnistöku í 6 námum í landi Horns.
Byggingarfulltrúi kynnti ofangreindar umsagnir. Nefndin tekur málið fyrir þegar umsögn Skipulagsstofnunnar hefur borist.
6. Lóð fyrir reykköfunargám
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 3. okt. 2006, til nefndarinnar, umsókn Eldvarnareftirlits A-Skaft. dags. 21. sept. 2006, um lóð fyrir reykköfunargám á svæði vestan við Fjárhúsvík, (á svokölluðu hjallasvæði) til umræðu.
Bæjarráð samþ. á sama fundi, erindið fyrir sitt leyti.
Erindi samþykkt.
7. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar
A.- 27.09.2006. Samþykkt umsókn Íbúðalánasjóðs um að skrá íbúðarhúsið á Kirkjubraut 5, sem einbýli í stað tvíbýlis.
B.- 25.09.2006. Samþykkt umsókn Kristjáns Friðrikssonar og Lovísu B. Kristjánsdóttur um staðsetningu 9,0 ferm garðhúss (bjálkahúss) á lóð þeirra, Hrísbraut 9.
C.- 25.09.2006. Samþykkt umsókn Olgeirs Jóhannessonar og Rögnu Pétursdóttur um leyfi til að endurnýja þrjá glugga í íbúðarhúsi þeirra á Miðtúni 23, og minnka þá í leiðinni. Einnig var sótt um leyfi til að klæða húsið að utan með álklæðningu, en óskað er nánari upplýsing um klæðninguna, áður en til afgreiðslu umsóknar kemur.
Engar athugasemdir
8. Önnur mál.
Umræða skapaðist um drög að reglum um garð- og gestahús á lóðum í sveitarfélaginu.
Starfsmönnum falið að vinna drög að reglum um garð- og gestahús á lóðum í sveitarfélaginu þar sem tekið yrði á stærð, tengingu rafmagns, staðsetningu gagnvart nábúum ofl.
Umsókn Friðriks Jónasar Friðrikssonar um leyfi til að reisa barnahús og skjólvegg á lóð sinni við Kirkjubraut 23, 780 Höfn.
Nefndin samþykkir erindið en bendir á að umsóknir eigi að berast nefndinni áður en framkvæmdum er lokið.
Torfi spurðist fyrir um lóð undir pósthús.
Byggingarfulltrúi gerði grein fyrir málinu og honum falið að kanna betur stöðu málsins.
Torfi gerði fyrirspurn um leigu á löndum í eigu sveitarfélagsins til frístundarbænda og umgengni á þessum svæðum.
Nefndin beinir til bæjarráðs að gerðir verði samningar um lönd í eigu sveitarfélagsins við frístundabændur.
Umræða skapaðist um mögulegar lóðir í sveitarfélaginu. Nefndin fer í vettvangsferð í upphafi næsta fundar.
Steinþór Hafsteinsson vék af fundi undir þessum lið.
Kynntar voru teikningar af kæli- og tengibyggingu við Skinney Þinganes. Nefndin felur byggingar- og eldvarnarfulltrúa að afgreiða umsókn þegar fullnaðar gögn hafa borist.
Kynntar breytingar á Silfurbraut 2-4, s.s svalahurðir í kjallara og skjólveggir við verandir á jarðhæð.
Engar athugasemdir.
Fundi slitið 19:25


