Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 69
69. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 13. september, 2006, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Björn Ingi Jónsson og Gunnar Páll Halldórsson.
Einnig Helgi Már Pálsson, Össur Imsland tækni- og umhverfissviði.
1. Holtasel Mýrum. Vélaskemma
Sótt er um leyfi til að byggja vélarskemmu við steypta eldri hlöðu í Holtaseli á Mýrum, skv. teikn. Vals Sveinssonar, TeikniHorn ehf , dags. 28. júlí 2006..
Umsækjandi er Haukur Bjarnason.
Erindi samþykkt.
2. Birgi, Suðursveit. Frístundabyggð
Sótt er, í bréfi dags. 6. september s.l., um leyfi til að byggja frístundahús í landi nefnt Birgi sem er úr landi Lækjarhúsa í Suðursveit. Meðfylgjandi er loftmynd af umræddu svæði og útlitsmynd af væntanlegu húsi sem er finnskt einingarhús. Endanlegar teikningar liggja ekki fyrir.
Umsækjandi er Guðlaugur J Þorsteinsson og Laufey Guðmundsdóttir, Lækjarhúsum.
Nefndin samþykkir byggingu eins stakstæðs frístundahúss með fyrirvara um að endanlegar byggingarnefndarteikningar berist.
3. Hafnarnes. Leiga á löndum
Í bréfi dags. 6. september s.l. er óskað eftir því af eigendum Hafnarnes, Höfn að sveitarfélagið leigi þeim land sunna Hafnarnes frá jarðstöðinni Skyggni að þjóðveg að austan, að afleggjara Hafnarnes að norðan og í sjó / fjörð fram.
Umsækjendur eru Kristín Guðmundsdóttir og Sigurður Óli Sigurðsson, Hafnarnesi, Höfn.
Þegar er til samningur um leigu á þessum löndum og ekki hlutverk byggingar- og skipulagsnefndar að úthluta lóðum. Nefndin vísar erindinu til Bæjarráðs.
4. Efnisnámur. Erindi frá bæjarráði
Í bréfi dags. 30. ágúst s.l. er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir nýtingu á námum í landi Horns. Námurnar sem um ræðir eru í Almannaskarði, við Sellæk, í Klifum, í Gulu-Skriðu, í Hálsenda og á Austurfjörum.
Umsækjandi er Ómar Antonsson, Horni.
Nefndin óskar eftir umsögn Umhverfisstofunnar og Heilbrigðiseftirlits.
5. Lóðarumsókn. Erindi frá bæjarráði
Í bréfi dags. 5. september s.l. er óskað eftir því við bæjarráð að fá lóð vestan við Heppuveg 4, Höfn. Um er að ræða húsarúst á lóðinni sem ætlunin er að nota sem geymsluhúsnæði.
Umsækjandi er Esjar Stefánsson.
Nefndin óskar eftir nánari útfærslu á fyrirhugaðri nýtingu m.t.t skerðingu á bílastæðum sem sjómenn nota á svæðinu.
6. Grjótnám við Falljökulkvísl. Erindi frá bæjarráði.
Í bréfi dagsettu 4. september s.l. er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir vinnslu á grjótnámu við Falljökulskvísl eins og henni er lýst í fylgigögnum með umsókninni.
Umsækjandi er Helgi Jóhannesson f.h. Vegagerðarinnar.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við grjótnám í Falljökulhvísl, en hvetur til að endanlega verði gengið frá námu við Virkisá.
7. Pylsubarinn við Víkurbraut. Erindi frá bæjarráði.
Í bréfi dagsettu 5. september s.l. er óskað eftir því að ?óst?. ehf, Ránarslóð 2. fái að yfirtaka afnotaréttindi Pylsubarsins við Víkurbraut 6.
Umsækjandi er Snorri Snorrason f.h. Hólmars Kristmundssonar.
Erindi samþykkt, með fyrrivara um að ekki þurfi að nýta lóð sem pylsubarinn stendur á undir byggingu samkvæmt deiluskipulagi.
8. Efnistaka í Bergá. Erindi frá bæjarráði.
Nefndin leggur áherslu á að aflað verði tilskilinna leyfa áður en til efnistöku kemur. Starfsmönnum falið að koma athugasemdum á framfæri og koma málum í rétt horf ef frekari nýting er fyrirhuguð.
9. Lóðarmál. Erindi frá bæjarráði
Bæjarráð óskar eftir umsögn og tillögum um möguleika á lóðum fyrir íbúðabyggð í nágrenni Hafnar. Svæðin sem um ræðir eru, Lyngey, Ægissíða, Leiðarhöfði, Vesturbraut, Sandbakki, Kirkjubraut, Dalbraut, Ósland, Leirusvæðið og Mikley.
Helgi kynnti nefndarmönnum ofangreindar lóðir.
10. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
1. Sumarbústaður Stafafellsfjöllum, lóð nr. 37, timbureiningarhús frá SG- húsum, Selfossi
Umsækjandi Ingvar Pétursson.
2. Sumarbústaður Stafafellsfjöllum, lóð nr. 43, timbureiningarhús frá Lettlandi
Umsækjandi Jóhann Gunnarsson.
3. Smíði á skjólvegg við göngustíg milli Hlíðartúns 23 og 25.
Umsækjandi Birnir V Ásbjörnsson og Árnína H Guðjónsdóttir
4. Jarðvegsskipti vegna bygginga frystigeymslu hjá Skinney Þinganesi og ferging á malarpúða
Umsækjandi Jóhann Ben Hönnun ehf.
Engar athugasemdir
11. Önnur mál.
Ósk Sigurðar Karlssonar og Lúsíar Óskarsdóttur um leyfi til að setja niður 9m2 Byko bjálkahús norðaustan við íbúðarhús (milli húss og göngustígs) að Hlíðartúni 23.
Ósk Ludwig H. Gunnarssonar um leyfi til að reisa geymsluhús á sumarhúsalóð 2179992-001 í Stafafellsfjöllum.
Erindin samþykkt. Starfsmönnum falið að vinna drög að reglum um garð- og gestahús á lóðum í sveitarfélaginu.
Ósk Þórbergs Torfasonar um heimild til að lagfæra og endurbyggja gamla íbúðarhúsið á Hala (burstabænum).
Nefndin óskar eftir fullnaðarteikningum.
Helgi kynnti athugasemdir Heilbrigðisstofnunnar, Umhverfisstofnunnar og Fornleifaverndar vegna deiliskipulagstillögu í Fjárhúsavíkur.
Torfi vakti athygli á tanknum á Austurfjörum.
Starfsmönnum falið að athug hvort ítrekun hafi verið send vegna málsins.
Borist hafa yfirlýsingar frá ábúendum á Svínafelli 1 þar sem þeir leggjast ekki gegn því að þegar samþykkt frístundahús Svövu Sigurðardóttur og Baldurs Kristjánssonar verði breytt í íbúðarhús og skrá svo.
Nefndin samþykkir ósk um breytingu frístundahúss í íbúðarhús.
Fundi slitið 19:45


