Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 45
45. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 12. júní 2003, kl. 12:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Elín Magnúsdóttir, Örn Arnarsson, Haukur Sveinbjörnsson, Torfi Friðfinnsson, Magnús Jónasson, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði, Ragnar Imsland eldvarnarfulltrúi og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Lóð fyrir olíubirgðargeymslu
Kynnt var erindi frá Sal ehf vegna umsóknar um lóð fyrir olíubirgðargeymslu. Erindið hefur fengið umfjöllun hjá hafnarnefnd, sem hefur samþykkt að staðsetningin verði á lóð á Álaugarey þar sem áður var birgðarstöð Esso. Aðrar lóðir sem komu til greina voru sunnan Álaugareyjar og út í Óslandi við Óslandsbryggju.
Nefndin er sammála afgreiðslu hafnarnefndar.
Haukur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins
2. Byrgðarstöð fyrir olíur í vöruskemmu KASK við Álaugarey
Olíufélagið ehf óskar eftir leyfi til að staðsetja olíuvörulager í vöruskemmu KASK við Álaugarey. Meðfylgjandi er teikning frá Nýju Teiknistofunni ehf, dags. 10.06.2003.
Umsækjandi er Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, deildarstjóri Fasteigna- og framkvæmdadeildaar Esso skv. bréfi dags. 19. maí, 2003.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um samþykki Brunamálastofnunar ríkisins, Umhverfisstofnun, Vinnueftirlit ríkisins og Siglingarstofnunar.
10. Önnur mál.
Erindi frá Skinney Þinganesi um leyfi fyrir að færa frystikerfi úr gámum norðan vinnslusalar í vélarsal sunnan núverandi vélarsals. Umsækjandi er Elías Þorsteinsson, Iðnvali ehf skv. bréfi dags. 30. maí s.l.
Erindið samþykkt með fyrirvara um endanlegar teikningar.
Fyrirspurn frá Margréti Einarsdóttur um leyfi fyrir íbúð í Miðtúni 21. Þar er nú rekin verslun en var áður íbúð.
Erindið samþykkt með fyrirvara um endanlegar teikningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:45
Elín Magnúsdóttir Hákon Valdimarsson
Torfi Friðfinnsson Steinþór Hafsteinsson
Magnús Jónasson Helgi Már Pálsson
Örn Arnarsson Ragnar Imsland
Haukur Sveinbjörnsson


