Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 68
68. fundur
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson og Gunnar Páll Haldórsson.
Einnig Hákon Valdimarsson, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Steinþór Hafsteinsson.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og fór yfir hlutverk og starfsvið nefndarinnar, en þeir sem skipaðir hafa verið í nefndina eru ;
Árni Rúnar Þorvaldsson, Torfi Friðfinnsson, Kristinn Óskarsson, Gunnar Páll Halldórsson og Björn Ingi Jónsson.
1. Vesturbraut 6. Íslandspóstur
Tekin fyrir afgreiðsla bæjarráðs frá 16. júní, 2006, á umsókn Íslandspósts um fyrirkomulag byggingar á lóðinni.
Bréf bæjarráðs dags. 21. júní, 2006.
Samþykkt er að byggingin fái að snúa eins og tillaga arkitekts gerir ráð fyrir, byggingin verði færð í bundna byggingarlínu húsanna sem fyrir eru og takmörk verði á innkeyrslu á lóð þannig að aðeins verði um akstur flutningabifreiðar að ræða.
Farið er fram á við sveitarstjórn að gerð verði deiliskipulagsbreyting á svæðinu.
2. Deiliskipulag við Fjárhúsvík
Kynnt tillaga að fyrirhuguðu deiliskipulagi nokkurra lóða við Fjárhúsvík.
Samþykkt að vinna áfram eftir framlögðum hugmyndum.
3. Laxárdalur í Lóni Flutningur húss
Sótt er, í bréfi dags. 19. júní, 2006, um leyfi til að flytja sumarbústað úr Gjádal í Lóni og upp í Laxárdal í Lóni, á lóð nr. 9. Um er að ræða ca 25 ferm. hús, sem byggingarnefnd heimilaði (Unnsteini Guðmundssyni) á fundi 18.04.2006. að flytja á land sitt, framan vegar, við Karl í Lóni, en hann hefur nú hætt við. Hugmynd umsækjanda er að nýta umrætt hús til bráðbirgða, meðan á byggingu nýs húss stendur. ( vænst er staðfestingar landeiganda á heimild til umsóknarinnar )
Umsækjandi er Anna Lilja Ottósdóttir, Hlíðartúni 29.
Samþykkt bráðabirgðaleyfi til 2ja ára.
4. Vélsmiðja Hornafjarðar. Útleiga hluta húss
Skeggi Ragnarsson, gerir, í bréfi dags. 8. júní, 2006, grein fyrir útleigu hluta af húsnæði Vélsmiðju Hornafjarðar, að Álaugarvegi 2, til ESSO-Aðfanga.
Kynnt nefndinni til upplýsingar.
Engar athugasemdir
5. Merkingar gatna/nafnaskilti. Til athugunar ( Hákon V)
Rætt var um merkingu á götuheitum í tilefni af umferðaróhappi í Óslandi. Starfsmanni er falið að kanna stöðu mála á merkingum á götum í sveitarfélaginu og leggja hana fyrir næsta fund
6. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
A.- 22.06.2006. Jákvæð umsögn um vínveitingaleyfi fyrir Gisti- og ferðaþjónustuna Skálafelli í Suðursveit.
Engar athugasemdir.
7 . Önnur mál.
Kynnt var erindi ( tölvupóstur ) vegna umferðarhraða í frístundabyggð í Stafafellsfjöllum og takmörkun á hraða á Höfðaveg.
Gerð er tillaga um að hámarkshraði í Stafafellsfjöllum verði 30 km pr. klst. og merkingar gerðar til að auka þar umferðaröryggi. Málið verði unnið í samráði við Vegagerðina og landeigendur.
Skoðaðir verði möguleikar á þrengingu eða hraðahindrun við Höfðaveg og vilji íbúa kannaður m.t.t. útfærslu
Erindi frá Sveinbirni Imsland, Höfn vegna bráðabirgðaleyfis fyrir staðsetningu á tveimur vinnuskúrum á lóð nr. 11 í landi frístundabyggðar í Stafafellsfjöllum.
Samþykkt bráðabirgðaleyfi til 2ja ára.
Erindi frá Birni Þorbergssyni, Gerði, Suðursveit um leyfi fyrir starfsmannahúsi skv. framlögðum teikningum gerðar af Sveini Ívarssyni, dags. 6. maí ( með breytingum ).
Samþykkt að veita leyfið til eins árs og óskað eftir því við umsækjenda að hann geri deiliskipulag af svæðinu ef hann óskar eftir að þau standi þar áfram.
Torfi spurðist fyrir um afnotarétt á lóð á Leirusvæði við hlið gámaports sveitarfélagsins.
Starfsmanni er falið að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Torfi vakti athygli á olíuleka við austurkant á Álaugarey.
Vísað til starfsmanns HAUST.
Torfi vakti athygli á tanknum á Austurfjörum.
Viðkomandi eiganda mun verða sent ítrekun vegna málsins.
Fundi slitið 18:45


