Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 67
67. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 7. júní, 2006, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson,Torfi Friðfinnsson og Magnús Jónasson Einnig Hákon Valdimarsson, og Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði.
1. Víkurbraut 9
Sundlaug nýbygging Sótt er, í bréfi dags. 30. maí, 2006, um leyfi fyrir byggingu sundlaugar með tilheyrandi mannvirkjum á lóð nr. 9, við Hafnarbraut þ.e. lóð Heppuskóla, samkv. teikningum frá ASK arkitektum, Geirsgötu 9, Rvík, undirrituðum af Gunnari Borgarsyni, arkitekt. Verknr.05147. Dags. teikn. 16.05.2006. Umsækjandi er Helgi M. Pálsson, f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar Erindið samþykkt.
2. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli
Salernisbygging á tjaldstæðis Sótt er, í bréfi dags. 29. maí, 2006, um leyfi til að flytja salernishús frá Freysnesi og á vestasta hluta tjaldsvæðisins í Skaftafelli, til notkunar þar. Um er að ræða salernishús, sem fylgdi bensínafgreiðslustöð Skeljungs í Freysnesi, og verður fjarlægt þaðan vegna nýrra bygginga. Erindið samþykkt með fyrirvara um samþykki heilbrigðisfulltrúa vegna staðsetningu og frágangs á rotþró.
3. Íslandspóstur
Tillaga að skipulagi lóðar Fyrir liggur tillaga ASK Arkitekta á lóð nr. 6, við Vesturbraut, sem Íslandspóstur hefur óskað eftir til úthlutunar. Tekið fyrir skriflegt erindi Íslandspósts, dags. 14.05.2006 undirritað af Gunnari Erni Sigurðssyni, arkitekt. Framhaldsumræða frá síðasta fundi nefndarinnar. Nefndarmenn fallast ekki á framlögð rök arkitekts og breyta ekki fyrri afstöðu til málsins
4. Afgreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar
A.- 18.05.2006. Jákvæð umsögn um vínveitingaleyfi til handa Hótel Eddu, Nesjum Engar athugasemdir
B.- 01.06.2006. Jákvæð umsögn um vínveitingaleyfi til handa veitingahúsinu við Jökulsárlón. Engar athugasemdir
C.- 01.06.2006. Samþykkt teikn. af geymsluskemmu á Seljavöllum. Teikn. frá Glámu-Kím, AK. verknr. 2050209. dags. 25.05.2006. Eig. Hjalti Egilsson. Engar athugasemdir
D.- 02.06.2006. samþ. umsókn Best-Fisks ehf. um leyfi til að reka litla fisksölu að Hafnarbraut 34, eign Landsbankans. Háð ákv. skilyrðum. Engar athugasemdir
E.- 02.06.2006. Jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis til handa Árnanesi-veitingahúsi. Engar athugasemdir
5 . Önnur mál.
Hákon gerði grein fyrir umsókn Gistiheimilisins Hvamms, um staðsetningu á skilti við gatnamót Vesturbrautar / Hafnarbrautar annarsvegar og Vesturbrautar / Silfurbrautur hinsvegar. Engar athugasemdir
Umsókn um sólstofu við Tjarnarbrú 1, teiknað af Val Sveinssyni, dags. 18. apríl 2006. Rætt hefur verið við eigendur að Hafnarbraut 34 um ný lóðarmörk þannig að ekki komi til skerðingar á fjarlægðarmörkum.
Erindi frá Sveini Sighvatssyni þar sem hann óskar eftir í bréfi dags.4. júní 2006, um leyfi til að steypa sökkla undir núverandi hjólhýsi. Erindið samþykkt.
Kynnt var tillaga af byggingu nýs frystiklefa við frystihús Skinney / Þinganes við Krossey.
Byggingarfulltrúi þakkaði nefndarmönnum fyrir samstarfið. Nefndarmenn þökkuðu einnig fyrir samstarfið.
Fundi slitið 18:00 Aðalsteinn Aðalsteinsson Hákon Valdimarsson Haukur Sveinbjörnsson Helgi Már Pálsson Magnús Jónasson


