Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 59
59. fundur
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Magnús Jónasson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson, Torfi Friðfinnsson, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri.
1. Kirkjubraut 14. Utanhússklæðning
Sótt er, í bréfi dags. 14. mars, 2005, um leyfi til að klæða íbúðarhúsið á Kirkjubraut 14, að utan með bárujárni.
Umsækjandi er Guðný Sigrún Eiríksdóttir, Kirkjubraut 14
Erindið samþykkt
2. Aðalskipulag Sveitarfél. Hornafj. Endurskoðun Framhald frá síðasta fundi.
Farið verður yfir tillögur, vegna endurskoðunar aðalskipulagsins fyrir 1998-1018.
Borist hafa hugmyndir frá Vegagerðinni vegna nýrra vegstæða í Öræfum, Nesjum og í Lóni og hugsanlegar staðsetningar á námum í tengslum við þær. Einnig hefur verið rætt um lokanir á þeim námum sem möguleiki er á, en það er sameiginlegt hagsmunamál beggja aðila. Ekki er ástæða til að breyta vegstæðum núverandi tillögu nema við Skógey, vegurinn verði færður suðurfyrir, en námur yrðu skoðaðar betur m.t.t. nákvæmari staðsetningar, efnismagns o.fl.
Farið var yfir þær óskir sem þegar höfðu komið fram s.s. frístundabyggð á Skálafelli, Haukafelli og Brekku, einnig skógrækt á Lindarbakka og á Skógeyjarsvæðinu og einnig nýtt stæði fyrir kirkjugarð á Höfn. Nefndarmenn sammála um að færa þessar tillögur inn á aðalskipulagsuppdráttinn.
Önnur atrið sem rætt var um að skoða þyrfti betur voru t.d. breytingar á möguleikum á skógrækt á landbúnaðarsvæðum almennt eða á einstaka svæðum eins og t.d. Skógey.
Samþykkt var að fara betur yfir flokka 3.5 og 3.6 á næsta fundi.
3. Afgereiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
1. 05.04.2005. Jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir veitingahúsið Þorpi, í Árnanesi 5.
Engar athugasemdir
2. 05.04.2005. Jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir veitingahúsið við Jökulsárjón.
Engar athugasemdir
3. 21.04.2005. Samþykkt staðbundin viðurkenning í pípulagningaiðn í umdæmi nefndarinnar til handa Gesti Kristinssyni, Brávallagötu 44, Rvík.
Engar athugasemdir
4. Önnur mál.
Lagðir voru fram til kynningar ófullgerðir uppdrættir af fyrirhugaðri gistiálmu við Hótel Skaftafell við Freysnes og kynntar bráðabirgðar hugmyndir heimamanna um staðsetningu á þeirri álmu sem skemmdist í illviðri á síðasta ári.
Ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaðar hugmyndir en óskað eftir formlegu erindi og fullnaðar gögnum.
Formlegt erindi frá Olíuverslun Íslands hf, undirritað af Hafsteini Guðmundssyni, dags. 13.04.2005, þar sem óskað er eftir að veitt verði leyfi fyrir breytingum á aðstöðu við bensínafgreiðslu Olís á Höfn. Meðfylgjandi er afstöðumynd teiknuð af Erni Sigurðssyni arkitekt, verk nr 0305.
Erindið samþykkt og starfsmönnum tæknideildar falið að annast nánari útfærslu með aðilum Olís í samræmi við gildandi reglur.
Haukur vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Torfi spurðist fyrir um olíubirgðartank á austurfjöru Starfsmönnum falið að skoða erindið og legjja fram á næsta fundi.
Fundi slitið 19:00


