Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 65
65. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 18. apríl, 2006, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Haukur Sveinbjörnsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Torfi Friðfinnsson
Einnig Hákon Valdimarsson, Steinþór Hafsteinsson, Borgþór Freysteinssson og Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði.
1. Umsókn Rósabergs ehf, um 30-40 000 ferm.athafnalóð við Fjárhúsavík.
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 30.03.2006, til nefndarinnar, umsókn Rósabergs ehf, dags. 21.03.2006, um 30-40000 ferm. lóð við Fjárhúsavík undir starfssemi sína, þ.e. undir verkstæðishús, steypustöð, véla/tækjageymslu ásamt efnis- og hellulager.
Umsækjandi er Lovísa R. Bjarnadóttir f.h. Rósabergs ehf.
Nefndin er sammála um að iðnaðarsvæðið verði stækkað, gert verði deiliskipulag af svæðinu og að Rósaberg ehf verði síðan úthlutað lóðum á þessu svæði fyrir fyrrnefnda starfsemi. Huga þarf að göngu- og reiðleiðum á afleggjaranum að Ægissíðu. Tryggja þarf aðgengi sveitarfélagsins að grjótnámu á svæðinu.
2. Söluskáli Skeljungs, Freysnesi. Kynnt fyrirhuguð stækkun
Anna María Ragnarsdóttir, Skaftafelli 2, óskar, í bréfi dags. 28.03.2006, f.h. Hótels Skaftafells ehf. eftir því að kynntar verði teikningar (frumdrög) merktar IJC 0112 dags.10.2.2006. af fyrirhugaðri breytingu/endurbyggingu söluskála Skeljungs í Freysnesi á fundi nefndarinnar. Um er að ræða ?gámaeiningar? ca 300 fermetra húsnæði.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við hugmyndina en tekur ekki formlega afstöðu til erindisins fyrr en fullnaðarteikningar berast.
3. Hafnarbraut 45 og 45a. Breytt í einbýlishús
Sótt er, í bréfi dags. 27.03.2006, um leyfi til að einbýlin að Hafnarbraut 45 og Hafnarbraut 45a verði skráð sem einbýlishús, þ.e. báðar íbúðir sameinaðar í einbýli. Jafnframt að báðir bílskúrar verði sameinaðir sem ein eign, tilheyrandi íbúðarhúsinu. Skráning yrði væntanlega Hafnarbraut 45.
Umsækjendur eru Magnús J. Magnússon og Ágústa Baldursdóttir.Hafnarbraut 45.
Erindið samþykkt með fyrirvara um að fullnægjandi grunnmynd berist.
4. Hof 1, Austurbær. Fjárhúsi breytt í setustofu og líkamsræktaraðstöðu
Sótt er, í bréfi dags. 17.03.2006, um leyfi til að breyta fjárhúsi að Hofi 1, Austurbæ, Öræfum, í setustofu á jarðhæð og líkamsræktaraðstöðu á jarðhæð, samkv. teikn. frá Helga Hjalmarssyni, arkitekt hjá Teiknistofunni Óðinstorgi, dags.júlí, 2005. Húsið er tengt núverandi gistihúsi, sem áður var hlaða.
Umsækjandi er Knútur Bruun, f.h. Frosts og Funa Gistiheimilis. Eldvarnareftirlit hefur gert athugasemdir við framlagðar teikningar og óskað eftir úrbótum.
Erindið samþykkt með fyrirvara um fullnægjandi teikningar berist.
5. Breiðabólsstaður 1, Steinstún. Breyting í gistingu á einkaheimili
Sótt er, í bréfi dags. 04.03.2006, um leyfi til að breyta notkun íbúðarhússins á Breiðabólsstað 1, Steinstúni, í gistingu á einkaheimili. Fyrir liggur teikning af húsinu, gerð af Sveini Ívarssyni, arkit. dags. 20. mars, 2006
Umsækjendur eru Fjölnir Torfason og Þorbjörg Arnórsdóttir, Hala.
Erindið samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnar- og heilbrigðiseftirlits.
6. Júllatún 5. Bílgeymsla
Sótt er, í bréfi dags. 24.03.2006, um leyfi til að byggja bílgeymslu á Júllatúni 5, Höfn (milli nr. 3 og 5) samkv. teikn. frá Glámu- Kím dags. 09.03.2006. Verknr. 2060213. Með umsókn fylgir skriflegt samþykki eigenda Jullatúns 3
Umsækjandi er Björn G. Arnarson, Júllatúni 5
Erinndið samþykkt
7. Hvannabraut 3-5. Gistiheimili
Óskað er, í bréfi dags. 19.02.2006, allra tilskilinna leyfa frá Sveitarfélaginu Hornafirði til að reka gistiheimili á Hvannabraut 3-5. Kynning bréfs frá Halldóri Birgissyni, f.h. Ránarslóðar ehf
Sjá afgreiðslu erindisins undir önnur mál
8. Nafnbreyting götu.
Tillaga byggingarfulltrúa um breytta skráningu húsa við Hafnarbraut 45, 45a og 45b á þann veg, að þau verði skráð við Miðtún og verði, í sömu röð, Miðtún 29 og 27, miðað við að Hafnarbraut 45 og 45a verði sameinuð í einbýlishús, (sbr. 3. lið dagskrár) Hafnarbraut 45b > Miðtún 27 og Hafnarbraut 45 (og 45a) > Miðtún 29. Gatan sem liggur á milli efri enda Miðtúns, og Hafnarbrautar myndi samkv. framanrituðu tilheyra Miðtúni.
Tillagan samþykkt.
9. Sundlaugarbygging. Kynning teikninga
Lagðar verða fram, til kynningar, teikningar af fyrirhugaðri sundlaugarbyggingu við Heppuskóla, frá ASK Arkitektum, Geirsgötu 9, Rvík. Verknr.05147, dags. 9. mars, 2006.
Ekki gerðar athugasemdir við teikninguna, en óskað eftir fullnaðarteikningum.
Samþykkt að fara fram á að sveitarstjórn fari í breytingar á deiliskipulags sem byggi á þessum hugmyndum.
10. Kortlagning vega og vegslóða-akstur utan vega.
Bæjarráð vísar hinn 6. apríl, s.l. til nefndarinnar erindi Umhverfisstofnunar, dags. 30. mars, 2006, þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið, með Vegagerðinni og Landmælingum Íslands við kortlagningu vega og vegslóða o.fl. um hálendi Íslands.
Engar athugasemdir
11. Hoffellsstofa skipulagsbreyting á aðalskipulagi
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 1. mars, 2006, til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi vegna byggingarleyfis-umsóknar fyrir Hoffellsstofu, í landi Miðfells í Nesjum. Teikn. og bréf frá Glámu-Kím fylgja með dagskrá, til kynningar málinu.
Erindinu vísað frá þar sem ekki liggur fyrir formleg beiðni landeiganda um ósk á breytingu á aðalskipulagi. Nefndin leggst hinsvegar ekki gegn hugmyndinni að Hoffellsstofu, en sveitarstjórn þarf að samþykkja breytingu á aðalskipulagi, áður en málið verður endanlega afgreitt.
12. Afgreiðsla, smærri mála, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar.
a. 28.03.2006.Unnsteini Guðmundssyni gefið leyfi fyrir staðsetningu geymsluhúss (2,0x2,5m) viðsumarbústað sinn á lóð nr. 39 í Stafafellsfjöllum
Engar athugasemdir
b. 28.03.2006. Valdimar Ingólfssyni gefið leyfi til að breyta þaki bílskúrs á Hólabraut 12, þ.e. úr láréttri loftplötu í risþak í stíl við íbúðarhúsið á lóðinni.
Engar athugasemdir
c. 28.03.2006. Erni Eriksen gefið leyfi til að byggja hesthús á lóð nr. 15 við Ægissíðu, samkv. fyrirliggjandi teikn. fyrir svæðið.
Engar athugasemdir
d. 06.04.2006. Gefin jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir Jöklasel tímabilið 15. maí til 15. sept.
Engar athugasemdir
e. 06.04.2006. Fjölni og Steinþóri Torfasonum gefið leyfi til að rífa aflögð refahús á Hala, framan við Þórbergssetur, þar sem að koma á fyrir bílastæðum. Málið kynnt Birni Arnarsyni hjá byggðarsafni, sem gerir ekki athugasemd.
Engar athugasemdir
f. 10.04.2006. Þrúðmari Þrúðmarssyni, Hoffelli 2 gefið leyfi til að reka gistingu á einkaheimili í gamla íbúðar-húsinu í Hoffelli 2. Raunteikn. ( gerð af Össuri Imsland ) liggur fyrir og eru ekki gerðar athugasemdir við hana. Samþykkt með fyrirvara um úttekt heilbrigðis- og eldvarnareftirlits.
Engar athugasemdir
13 . Önnur mál.
Erindi frá Unnsteini Guðmundssyni, Kópavogi um að fá leyfi til að flytja 25 fm hús úr Gjádal á land neðan vegar við Karl í Lóni. Húsið er hugsað sem aðstöðuhús til bráðabyrgðar. Samþykkt að veita leyfið til bráðabyrgðar sbr. fyrri afgreiðslur.
Auglýsingu á breytingar á aðalskipulagi vegna lóðarinnar við Hvannabraut 3 ? 5 er lokið og ein athugasemd hefur borist. Hún er frá eigendum Hvannabrautar 1 skv. bréfi dags. 9 apríl síðastliðinn, þar sem þau mótmæla fyrirhugaðri breytingu úr íbúðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði.
Nefndin hefur farið yfir rök eigendanna og getur fallist á sum þeirra s.s. aukning umferðar ( þó ekki á öllum tímum sólarhringsins ) og þess vegna meiri slysahættu. Rökin eru samt ekki talin nægjanleg af hálfu nefndarinnar til að stöðva málið og mælir nefndin því með að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt.
Guðmundur Ólafsson, Silfurbraut 42, Höfn óskar eftir leyfi fyrir að byggja sumarhús á lóð nr. 47 í sumarhúsabyggð við Stafafellsfjöll, skv. Teikningu frá Vali Sveinssyni, dags. 12.04.2006.
Erindi samþykkt.
Torfi spurðist fyrir um olíutankinn á Austurfjöru og gerði það að tillögu að sveitarfélagið málaði tankinn í ?felulitum?.
Rætt var um umgengni á lóðum í þéttbýli. Samþykkt er að beina því til bæjarráðs að það beiti sér fyrir að gert verði átak í þessum málum nú í vor og felur byggingar- og heilbrigðisfulltrúa að vinna að málinu.
Fundi slitið 20:30


