Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 35
35. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, þriðjudaginn 12. febrúar 2002, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Magnús Jónasson formaður, Þorgils Baldursson, Haukur Sveinbjörnsson, Ólafur Sigurðsson, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur.
Breyting var gerð á dagskrá fundarins og mál 4. tekið fyrst fyrir.
4. Skógræktarmál. Kynnt og könnuð viðhorf og skoðanir vegna umsókna um skógrækt og afgreiðslna þeirra, með tilliti til úrskurðar úrskurðarnefndar byggingar- og skipulagsmála ( í máli Litlu-Fellsaxlar )
Hákon gerði grein fyrir afstöðu starfsmanns úrskurðarnefndar, skipulagsarkitekta Glámu - Kím og Skipulagsstofnunar. Þar kemur fram að þeir telja í ljósi úrskurðar í máli Litlu-Fellsaxlar, að ekki er ástæða til að óska eftir framkvæmdarleyfi vegna skógræktar sem er minni en 200 ha. Þó ber að framfylgja ákvæðum aðalskipulagsgerðar um þá stefnu í skógrækt sem þar er sett fram þannig að þær séu í samræmi við skipulagsáætlanir, sbr. 27. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Því skal tilkynna til nefndarinnar um sérhver áform í skógrækt í sveitarfélaginu.
Formaður bar það upp hvort óskað væri eftir að hann yfirgæfi fundinn vegna skildleika mála nr. 1, 2, 3 og 5.
Fundarmenn töldu ekki ástæðu til þess. Magnús sat hjá við afgreiðslu málanna.
1. Breiðabólstaður 1, Breiðabólstaður 3-4, og Hali, Suðursveit. Skógrækt.
Bæjarráð vísar, á fundi sínum 22. jan. 2002, til byggingar- og skipulagsnefndar, erindi Fjölnis Torfasonar og Þorbjargar Arnórsdóttur, þar sem þau óska eftir samþykki fyrir því, að þau fái að gera samning við Suðurlandsskóga um skógrækt á jörðum sínum, Breiðabólstað 1, Breiðabólstað 3-4 og Hala, Suðursveit. Stærð umrædds svæðis er allt að 50,0 ha. og er miðað við að gróðursetja í það á 5 árum. Með umsókn fylgir ljósrit af loftmynd, með innmerktu fyrirhuguðu svæði.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um samþykki annara eiganda og ákvæði 37. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd.
2. Lindarbakki, Nesjum. Umsókn um stækkun skógræktarsvæðis.
Sótt er um stækkun skógræktarsvæðis á lögbýlinu Lindarbakka, Nesjum. Stærð lands samtals er ca 110,0 ha. skv. umsókn. Með umsókn fylgir kort af umræddu svæði ásamt ræktunaráætlum, gerðri af Öndru B. Jónsdóttur, skógfræðingi. Einnig lág fyrir fundinum ræktunaráætlun frá skógræktarþjónustu Skógræktar ríkisins, mars 1999.
Umsækjandi er Skarphéðinn Larsen, Lindarbakka.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um ákvæði 37. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd
3. Meðalfell, Nesjum. Stækkun skógræktarsvæðis.
Sótt er um stækkun skógræktarsvæðis í landi Meðalfells, Nesjum. Stærð svæðis ca. 1,0 ha. Með umsókn fylgir ljósrit af loftmynd, með innmerktu umræddu svæði.
Umsækjandi er Guðjón Þorbjörnsson.
Erindið er samþykkt.
5. Skógræktarmál. Bréf frá Suðurlandsskógum. Endurupptaka.
Tekið verður fyrir, í 2. sinn, erindi Rannveigar Einarsdóttur, svæðisstjóra í A-Skaft. f.h. Suðurlandsskóga, sem var á dagskrá 11. des. 2001, þar sem óskað er eftir því, að nefndin ,, endurskoði umsóknir um skógrækt á jörðunum Hólmi og Skálafelli II ,, með vísan í úrskurð úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála um hliðstætt mál.
Með erindi Rannveigar fylgir nefndur úrskurður. Mál þetta tengist 4. lið hér á undan.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um ákvæði 37. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd.
Kynning nokkurra ,,smærri mála,,
Eftirtalin mál hafa verið afgreidd sem ,,smámál,, frá síðasta fundi nefndarinnar
A. Gefið leyfi til handa Ármanni Guðmundssyni, Svínafelli II, Víðihlíð, Öræfum, til að byggja bílskúr við hús sitt, Víðihlíð, ásamt tengibyggingu milli þess og bílskúrs.
Engar athugasemdir.
4. Önnur mál.
Átak í skógrækt - Landgræðsluskógar.
Erindi sem vísað er til nefndarinnar frá bæjarráði, bréf dags. 30. janúar s.l., þar sem Lionsklúbbur Hornafjarðar óskar eftir landi til skógræktar, bréf dags. 25. janúar s.l.
Erindið samþykkt og vísað til tækni- og umhverfissviðs.
Óskað er eftir að reisa færanlegt hús við núverandi bensínafgreiðslu Freysnes í Öræfum.
Umsækjandi er Jón M Halldórsson f.h. Skeljungs hf og Laufey Lárusdóttir landeiganda. Meðfylgjandi eru teikningar frá Tekton, dags. 4. febrúar 2002, arkitekt Haukur Harðarsson.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um umsögn eldvarnareftirlits og heilbrigðiseftirlits.
Óskað er eftir viðbyggingu við Hæðargarð 10, skv. breyttum teikningum dags. 7. febrúar 2002 frá Arkitektum Skógarhlíð. Umsækjandi er Árni Friðriksson, arkitekt f.h. Margrétar Herdísar Einarsdóttur.
Erindið samþykkt.
Óskað er eftir leyfi fyrir atvinnurekstri í húseigninni að Miðtúni 21 fyrir föndurvöruverslun og nuddstofu. Umsækjandi er Margrét Einarsdóttir og Sigurbjörg Alfreðsdóttir.
Byggingarfulltrúi hefur sent þetta erindi í grenndarkynningu.
Erindið er samþykkt með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:50
Magnús Jónasson Steinþór Hafsteinsson
Þorgils Baldursson Hákon Valdimarsson
Ólafur Sigurðsson Helgi Már Pálsson
Sigfús Harðarsson
Haukur Sveinbjörnsson


