Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 36
36. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, þriðjudaginn 9. apríl 2002, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Magnús Jónasson formaður, Haukur Sveinbjörnsson, Ólafur Sigurðsson, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, Sigfús Harðarson, Jón Þorsteinsson Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
1. Skipulagsmál.
Kynnt tillaga að skipulagi á vesturhluta Lönuguhóla, austan við EKRU, fyrir 3 raðhús.
Hákon Valdimarsson kynnti tillöguna. Magnús formaður las yfir drög að skilmálum fyrir svæðið. Fundarmenn gera ekki athugasemdir við tlilöguna, en telja þó, að bil milli húsanna mætti auka nokkuð.
2. Skálafell 1, Suðursveit. Skipulag gistiskálabyggðar.
Sótt er um leyfi til að byggja allt að 10 gistiskála í landi Skálafells 1, Suðursveit á svæði milli heimreiða Skálafells 1 og Skálafells 2. ( svæðið þarf að deiliskipuleggja ) Takmörkuð gögn hafa enn borist.
Umsækjandi er Reynir Sæmundsson, f.h. Þorsteins Sigfússonar, Skálafelli 1.
Magnús formaður las yfir texta skilmála, sem fylgja með gögnum, er bárust eftir að fundarboð var sent út. Nefndarmenn gera ekki athugasemdir við framlögð gögn, en óska eftir því, að lokið verði við skipulag svæðisins. Jafnframt er bent á, að æskilegt sé að fengið verði skriflegt samþykki eigenda Skálafells 2.
3. Miðtún 21, Höfn. Viðbyggingar.
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu og anddyri við nyrðri hluta Miðtúns 21, og opið vindskýli við syðri hluta hússins., samkv. teikn. eftir Krístínu Jónsdóttur, arkitekt, dags. 04.03.2002.
Umsækjendur eru Margrét H. Einarsdóttir og Sigurbjörg Alfreðsdóttir.
Erindin eru samþykkt, án athugasemda.
4. Kynning nokkurra ,,smærri mála,,
Eftirtalin mál hafa verið afgreidd sem ,,smámál,, frá síðasta fundi nefndarinnar
A. Gefið leyfi til handa Kaupási , Nóatúni 17, Rvík, f.h. KASK, fyrir breytingum innréttinga verslunarhússins að Vesturbraut 3, Höfn, þar sem húsið er allt gert að einu verslunarrými.
( bakaríið út.)samkv. teikn. frá Batteríinu, Trönuhrauni 1, Hafnarfirði.
B. Gefið leyfi til handa Flugleiðahóteli /Signýju Rafnsdóttur, fyrir vínveitingaleyfi fyrir Hótel Eddu, Nesjaskóla, sem gildir í júní, júlí og ágúst, 2002.
C. Gefið leyfi til handa Einari B. Einarssyni, Smárabraut 20, Höfn, fyrir vínveitingaleyfi fyrir veit-ingahúsið við Jökulsárlón. Leyfið gildir frá 15. maí til 15. sept. 2002.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00
Magnús Jónasson Steinþór Hafsteinsson
Ólafur Sigurðsson Hákon Valdimarsson
Jón Þorsteinsson
Sigfús Harðarsson
Haukur Sveinbjörnsson


