Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 41
41. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 13. febrúar 2003, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson formaður, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson, Sigurður Hannesson, Tómas Ísleifsson, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri, Valur Sveinsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Lóð HSSA við Víkurbraut.
Óskað er eftir landi (viðbótarlóð) vestan við Heilsugæslustöð og hjúkrunarheimili við Víkurbraut undir garð og útivistarsvæði fyrir vistmenn stofnunarinnar, sbr. bréf dags. 14. jan. 2003.
Umsækjandi er Jóhann Ólafsson, f.h. framkvæmdaráðs HSSA
Nefndin gerir ekki athugasemdir við umsóknina en bendir á að gera þarf nýjan lóðaleigusamning við HSSA þar sem endanleg stærð lóðarinnar kemur fram.
2. Smárabraut 24 Kross á lóð Hvítasunnusafnaðarins. Ný umsókn
Óskað er eftir því, að fallist verði á 10,0 m. hæð fyrirhugaðs kross, sem söfnuðurinn hyggst reisa á lóð sinni að Smárabraut 24, ,,Garðeyjarhús,, sbr. bréf dags. 3. febrúar 2003.
Umsækjandi er Gestur Kr. Gestsson.
Nefndin vísar til fyrri afgreiðslu málsins þar sem samþykkt er að krossinn verði ekki hærri en 8 metra hár. Sigurður er ósammála meirihluta nefndarinnar og telur að krossinn megi vera í þeirri hæð sem óskað er.
Nefndin ítrekar að umsókn um breytta notkun hússins þarf að berist bygginganefnd.
3. Ægissíða. Lóð fyrir fjárhús.
Sótt er um leyfi fyrir fjárhúsi á svæði við Ægissíðu, innan við lóð númer 50, við hlið bráðabyrðar lóðar Gunnars P. Halldórssonar og Bjarna Gunnarssonar. Svæðið er ekki skipulagt.
Umsækjandi er Jón Þ. Sigursteinsson, Sandbakkavegi 4, Höfn
Nefndin ákvað að fresta ákvörðunartöku um úthlutun lóðar fyrir fjárhús og byrja á að klára deiliskipulag af svæðinu. Drög af deiliskipulagi verði sent til bæjarráðs til umsagnar.
4. Bréf frá Bæjarráði vegna Horns
Kynnt var bréf frá Bæjarráði, dags. 17. jan. 2003, þar sem óskað er, samkvæmt. bókun ráðsins 16. jan. 2003, eftir frekari upplýsingum um byggingu skemmu við Horn og efnistöku í fjallshlíðum í landi Horns.
Byggingafulltrúi tjáði nefndarmönnum að landeigandi hafi fengið tímabundið leifi til að staðsetja skemmuna í landi Horns. Von er á bygginganefndarteikningum á næstunni. Námur sem eru í notkun í landi Horns eru á aðalskipulagi.
5. Löggilding iðnmeistara, umsókn.
Sótt er um löggildingu í húsasmíðaiðn í umdæmi nefndarinnar. Fullnægjandi gögn fylgja umsókn.
Umsækjandi er Jóhann Steinsson, húsasmíðameistari, Seiðakvísl 37, Reykjavík.
Nefndin samþykkir umsóknina.
6. Önnur mál.
Erindi frá Björgunarfélagi Hornafjarðar um að fá leifi til að klæða gulu bílaskemmu félagsins að Álaugarvegi 9 að utan með trabissustáli. Einnig verður gengið frá þakkanti. Klæðningin verður hvít að lit. Skipt verður um stóru innkeyrsluhurðirnar og nýjar hurðir í sama stíl og er á nýjustu skemmu félagsins settar í staðinn. Einnig er óskað eftir leifi til að færa gönguhurðir samkvæmt meðfylgjandi teikningu.
Umsækjandi er Björn Ingi Jónsson formaður Björgunarfélags Hornafjarðar.
Nefndin samþykkir erindið.
Erindi þar sem óskað eftir umsögn bygginganefndar á að breyta einbýlishúsinu að Hlíðartúni 17 í tvíbýlishús. Um væri að ræða litla einstaklingsíbúð á neðri hæð. Íbúðin yrði 50 – 70 fermetra sem skiptist í anddyri, svefnherbergi, eldhús stofu, bað og geymslu. Efri hæð, sem er 136 fermetrar yrði óbreytt. Sameiginleg afnot yrðu væntanlega af lóð. Tvöfalt aðskilið bifreiðarstæði er á lóðinni.
Umsækjandi er Elín Þórdís Heiðarsdóttir.
Nefndin sér ekkert því til fyrirstöðu að einstaklingsíbúð verði gerð á neðri hæð hússins uppfylli hún skilyrði byggingareglugerðar. Breytingin á að fara í grendarkynningu. Endanleg afgreiðsla verður eftir grendarkynningu og þegar byggingarnefndarteikningar liggja fyrir.
Ólafur kynnti námskeið sem Samtök iðnaðarins halda um samræmdar kröfur á verklegum framkvæmdum í mannvirkjagerð og í byggingariðnaði.
Nefndin kannaði hvort gildandi aðalskipulag gæti haft einhver áhrif á fyrirhugaða jarðgangagerð. Á aðalskipulaginu er mælt með jarðgangagerð undir Almannaskarð. Bygginga- og skipulagsnefnd fagnar fyrirhuguðum jarðganga framkvæmdum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.20
Ólafur Sigurðsson Hákon Valdimarsson
Steinþór Hafsteinsson
Haukur Sveinbjörnsson Valur Sveinsson
Aðalsteinn Aðalsteinsson Tómas Ísleifsson
Sigurður Hannesson


