Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 61
61. fundur
Byggingar- og skipulagsnefnd 61. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 9. júní, 2005, kl. 17:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Torfi Friðfinnsson.
Einnig Borgþór Freysteinsson, Hákon Valdimarsson og Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði. Þar sem að fundurinn er ekki lögmætur er honum frestað.
Byggingarfulltrúa og formanni byggingarnefndar falið að afgreiða þau erindi sem fyrir fundinum lágu ( sjá eftirfarandi )og kynna þau sem smærri mál á næsta fundi.
1. Hafnarbraut 38
Lóððarumsókn Bæjarráð Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum 12. maí, 2005, að úthluta Íslandspósti hf lóðinni nr. 38 við Hafnarbraut, samkvæmt umsókn 9. maí, 2005. en vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.
2. Olíuafgreiðslustöð ESSO við Sæbraut Sótt er, í bréfi dags.24.05, 2005, um leyfi fyrir staðsetningu 10.000 lítra olíutanks fyrir litaða olíu við afgreiðslustöð-ina við Sæbraut ( við vöruport KASK ) Miðað er við, að tanknum verði komið fyrir á þjappaðri malarfyllingu inni á vörugeymslulóð KASK, en girðing færð innfyrir tank. Umsækjandi er Sigurður Einarsson, Nýju teiknistofunni, f.h. Olíufélagsins ehf
3. Hrísbraut 14 - Bílskúr
Sótt er í bréfi, dags. 23.05.2005, um leyfi til að byggja bílskúr á lóð nr. 14, við Hrísbraut, samkv. teikningu frá Teikni Horni, gerðum af Vali Sveinssyni byggingarfræðings. Verknr. HFN-EIN-0501/0502, dags. 20.05.2005. Um er að ræða staðsteypta byggingu í stað áður samþykkts bílskúrs úr forsteyptum einingum Umsækjandi er Valur Sveinsson, f.h. Sigurðar E. Sigurðssonar og Hjördísar Skírnisdóttur.
4. Sléttaleiti, Suðursveit
Stækkun Sótt er í bréfi, dags.19.05.2005, um leyfi fyrir 11,0 ferm. viðbyggingu við frístundahúsið á Sléttaleiti, samkv. teikn. Trausta Harðarsonar, arkitekts, dags. 26.05.2005. Um er að ræða forstofu/geymslu vestan við húsið, á einni hæð. Einnig er sótt um leyfi til að setja dyr, í stað glugga, á norðurhlið efri hæðar og brú þaðan, sem tengir efri hæðina við landið ofan þess, og bætir jafnframt flóttaleið. Umsækjandi er trausti Harðarson, f.h. Guðrúnar Sveinsdóttur
5. Geymsluhús ,,við Víkurbraut,, Flutningur.
Sótt er í bréfi, dags. 2. júní, 2005, um leyfi til að flytja geymsluhús það, sem stendur norð-austan við trésmíða-verkstæði Þorleifs Benediktssonar inn á Móa í Nesjum. Imsækjandi er eigandi hússins, Guðni Karlsson, Miðtúni 25.
6. Afgrreiðsla ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi nefndarinnar
Veitt hefur verið jákvæð umsögn um vínveitingaleyfi til handa eftirtöldum veitingastöðum:
1. 13.05.2005. Hótel Edda, Nesjum. / Flugleiðahótel 2. 20.05.2005. Hótel Skaftafell, Freysnesi.
3. 20.05.2005. Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum. 4. 01.06.2005.
Ferðaþjónusta bænda, Brunnhóli. 5. 01.06.2005.
Gisti- og ferðaþjónustan Skálafelli./ Kistugil ehf. 6. 01.06.2005.
Frost og funi ehf. Hofi 1./ Knútur Bruun.
Fundi slitið 17:45


