Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 52
52. fundur
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, þriðjudaginn 5. apríl, 2004, kl. 12:20 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Haukur Sveinbjörnsson, Þorgils Baldursson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Torfi Friðfinnson, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
1. Deiliskipulagstillaga á tjaldstæði Hafnar
Helgi Már kynnti tilllögur af deiliskipulagi af tjaldsvæðinu á Höfn. Farið var yfir greinargerð og kynntar voru yfirlitsmynd og teikningar af svæðinu.
Gert var fundarhlé og fóru nefndarmenn á staðinn til að skoða aðstæður. Skoðuð voru sérstaklega svæði 1, 2 og 3 fyrir svefnhýsi og töldu menn rétt að hæðarmismunur á milli gólfa á húsum á svæðum 1 og 2 væri um 100 sm +/- 20 sm. Fundarmenn telja æskilegt að ef byggð verða fleiri en 5 hús þá verði þau öll reist á svæði 3.
Hákon lýsti yfir að hann teldi óskynsamlegt að byggt yrði upp í hólinn á reit 2.
Nefndarmenn voru sammála um deiliskipulagstillöguna að öðru leiti og óska eftir leyfi bæjarráðs um að auglýsa tillöguna.
2. Önnur mál.
Kynnt var teikning af fyrirhuguðu áhaldahúsi Kára, Freysnesi í Öræfum, teiknað af Svavari M Sigurjónssyni, dags. 4. apríl s.l. verk 04-104
Erindið er samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits og heilbrigðisfulltrúa.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:50
Ólafur Sigurðsson Hákon Valdimarsson
Haukur Sveinbjörnsson Helgi Már Pálsson
Þorgils Baldursson
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Torfi Friðfinnson


