Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 51
51. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 11. mars, 2004, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Haukur Sveinbjörnsson, Magnús Jónasson, Steinþór Hafsteinsson, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
1. Borgarhöfn 1, Vagnsstaðir
Sótt er, í bréfi dags. 23.02.2004, um leyfi til að byggja við íbúðarhúsið á Vagnsstöðum, matsal/setustofu, samkv. teikn. Frá Teikni Horni ehf, gerðum af Vali Sveinssyni, byggingarfr.Verknr. Suð-01. dags. 22.02.2004.
Umsækjandi er Valur Sveinsson, f.h. Bjarna Sk. Bjarnason, Hafnarbraut 15
Erindið samþykkt.
2. Smyrlabjörg 1-2 breyting vélageymslu í gistirými.
Sótt er, í bréfi dags. 23.02.2004, um leyfi til að breyta vélageymslu (Mhl. 11) á Smyrlabjörgum 1-2, í gístirými, samkv. teikn. frá Trausta Harðarsyni, arkit. Dags. 14.02.2004. Húsið er steinsteypt.
Umsækjandi er Sigurbjörn Karlsson, Smyrlabjörgum
Erindið samþykkt.
3. Stafafellsfjöll Lóð 1b Stækkun frístundahúss
Sótt er, í bréfi dags. 05.03.2004. um leyfi til byggja við frístundahúsið á lóð nr 1b, í Stafafellsfjöllum, samkv. Teikn. Frá Teikni Horni ehf, gerðum af Vali Sveinssyni, byggingarfr. Verknr. Lón-01 dags. 28.02.2004. Eigandi er Gunnar Sighvatsson.
Umsækjandi er Valur Sveinsson, f.h. Gunnars Sighvatssonar, Hafnarbraut 43.
Erindið samþykkt.
4. Hali, Suðursveit. Þórbergssetur
Sótt er, í bréfi dags. 1. mars, 2004, um leyfi til að breyta núverandi hlöðu ( Mhl. 17 ), sem er stálgrindarhús að Hala í Suðursveit, í Þórbergssetur, skv. Teikningu Sveins Ívarssonar, arkitekt, dags. júní 2004. Umsækjandi er Þorbjörg Arnórsdóttir, Hala í Suðursveit, f.h. Þórbergsseturs. Í bréfinu kemur fram að fyrirhugað er að byggja við núverandi hlöðu, inngang, geymslu og veitingasal.
Erindið er samþykkt að þessu leiti, en skýrt tekið fram að ekki er verið að samþykkja sundlaug, heita potta og aðstöðu vegna þeirra sem fram koma á teikningum Einnig er fyrirvari um endanlega afgreiðslu Brunamálastofnunar og Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
5. Kynning nokkurra ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi.
1. 26.02.2004. Veitt var jákvæð umsögn um veitingu léttvínsleyfis í Söluskála Esso í Nesjum, til handa Frú Maríu ehf. Rekstraraðili er María Valgeirsdóttir, Hamraborg, Djúpavogi.
Engar athugasemdir
6. Önnur mál.
Eigendur húseignarinnarinnar Álaugarveg 19a Bestfiskur ehf, Akraberg ehf og Erlingur Kr. Guðmundsson, óska eftir leyfi til að setja upp millivegg að Álaugarveg 19a og skipta þar með eigninni í þrjár sjálstæðar einingar auk þess að setja gönguhurðir á norðurhlið hússins í öll bil. Meðfylgjandi er bréf dags 8. mars s.l. og teikningar frá Verkfræðistofunni Strendingur ehf dags. des. 2003.
Erindið samþykkt.
Tómas Ingólfsson, R.C húsum, óskar eftir leyfi, f.h. Michael og Felicity Bullock eiganda að Hvalnesi í Lóni, til að skipta um jarðveg undir nýbyggingu á Hvalnesi í Lóni vegna fyrirhugaðra byggingar og fjarlægja kofa sem standa á jörðinni, hálfhrundir. Meðfylgjandi eru frumdrög af teikningum að húsi sem fyrirhugað er að reisa á jörðinni og bréf dags. 5. mars 2004.
Fram kemur að rafmagnslína er 17 metrum ofan við fyrirhugaða byggingu og skoða þarf staðsetninguna betur í samráði við Rarik.
Að því tilskyldu er samþykkt að veita graftrarleyfi.
Olíuverslun Íslands óskar eftir því að rífa viðbyggingar við afgreiðslu Olís, Hafnarbraut, Höfn.
Umsækjandi er Hafsteinn Guðmundsson, f.h. Olíuverslunar Íslands, skv. bréfi dags. 9. mars s.l.
Erindið samþykkt.
Guðmundur Hafliði Guðmundsson óskar eftir leyfi til að breyta og fækka gluggum á íbúðarhúsinu að Hlíðartúni 15, Höfn skv. meðfylgjandi bréfi og teikningum dags. 10. mars s.l.
Lagt er til að starfsmenn byggingarnefndar ræði við Hafliða um nánari útfærslu á gluggum, þ.e. stofugluggar og bogadregnir gluggar á herbergjum.
Haukur Sveinbjörnsson óskar eftir leyfi til að byggja við íbúðarhúsið að Hagatúni 6, Höfn. Um er að ræða viðbyggingu við anddyri og byggingu sólskála. Meðfylgjandi er bréf og teikning dags. 11. mars 2004.
Erindið samþykkt.
Hákon gerði grein fyrir teikningum af svefnhúsum sem hafa verið byggð á tjaldsvæðinu á Höfn, gerðar af Val Sveinssyni, merkt Höfn-01.
Engar athugasemdir
Helgi Már fór yfir drög að deiliskipulagi á tjaldsvæðinu á Höfn.
Ákveðið var að fara betur yfir staðsetningu á svefnhúsunum á svæðinu í samráði við Náttból ehf. Ekki var samstaða um staðsetningu húsanna á svæðum 2 og 3.
Óli nefndi dæmi um hvernig málum er ?lætt? inn án þess að aðilar taki eftir því og sýndi dæmi því til stuðnings vegna fyrirhugaðrar náttúruverndaráætlunar.
Hákon kynnti ósk um stækkun á sumarbústað, Fornustekkar 2 í Nesjum. Ekkert formlegt erindi fylgdi umsókninni, en teikningar gerðar af Halldóri Jónssyni dags. 8. mars 2004.
Erindið samþykkt með fyrirvara um formlegt erindi.
Hákon kynnti endanlegt deiliskipulag af frístundabyggð á Ægissíðu.
Nefndin er sammála um að óska eftir því við bæjarráð að deiliskipulagið verði auglýst formlega.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:35
Ólafur Sigurðsson Hákon Valdimarsson
Haukur Sveinbjörnsson Helgi Már Pálsson
Magnús Jónasson Steinþór Hafsteinsson


