Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 50
50. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, fimmtudaginn 12. febrúar, 2004, kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Ólafur Sigurðsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson, Torfi Friðfinnsson, Magnús Jónasson, Steinþór Hafsteinsson, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
1. Vesturbraut 1. Þjónustuhús
Sótt er, í bréfi dags. 26.01.2004 um leyfi til að byggja nýtt þjónustu- og verslunarhús, ásamt skyggni, á lóð ESSO, að Vesturbraut 1, í stað núverandi afgreiðsluhúss, sem verður fjarlægt af lóðinni. Teikningar eru frá ALARK-arkitektum, ehf. Gerðar af Kristjáni Ásgeirssyni, arkit. Dags. 21.01.2004. Húsið verður byggt úr stálgrind og klætt með Ranill sáleiningum með innbyggðri einangrun.
Umsækjandi er Olíufélagið h.f. Suðurlandsbraut 18, Reykjavík.
Erindið samþykkt með fyrirvara um endanlega afgreiðslu Brunamálastofnunar og Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
2. Staðbundin löggilding í múraraiðn.
Sótt er, í bréfi dags. 27. jan. 2004, um staðbundna löggildingu í múraraiðn í umdæmi byggingarnefndar Hornafjarðar. Tilskilin gögn fylgja með umsókn.
Umsækjandi er Baldur Haraldsson, múrarameistari, Furuhlíð 6, Sauðárkróki.
Erindið samþykkt.
3. Árbær, Mýrum. Stækkun íbúðarhúss.
Sótt er, í bréfi dags. 29.01..2004, um leyfi fyrir stækkun íbúðarhússins að Árbæ, Mýrum, samkv. teikn. Frá Teikni Horni, gerðum af Vali Sveinssyni, byggingarfræðingi. Verknr. MÝR 01-02 dags. 24.01.2004. Stækkunin er til að bæta aðstöðu veitingarekstrar á jörðinni.
Umsækjandi er Valur Sveinsson, f.h. Jóns Kr. Jónssonar, Árbæ.
Erindið samþykkt með fyrirvara um endanlega afgreiðslu eldvarnareftirlitsmanns og Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
4. Árnanes 3, Nesjum
Sótt er, í bréfi dags. 05.02.2004. um leyfi til að lagfæra gamla íbúðarhúsið að Árnanesi 3, Nesjum, og gera það íbúðarhæft að nýju og skrá sem íbúðarhús, en húsið hefur verið skráð sem geymsla undanfarin ár ( frá 1998 )
Umsækjandi er Sigríður Steingrímsdóttir, Kirkjubraut 24.
Samþykkt er að leyfa framkvæmdir við húsið, en umsækjanda bent á að leggja verður fram teikningar er sýni innra skipulag húsnæðisins áður en það verða skráð sem íbúðarhús.
5. Stöðull í landi Hóla, Nesjum Bænahús
Óskað er, í bréfi dags. 18.12.2003, til bæjarráðs Hornafjarðar, eftir því, að Stöðull, í landi Hóla í Nesjum, verði viðurkenndur sem bænahús og fáist skráður sem slíkt. ( húsið var byggt sem íbúðarhús á sínum tíma) Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar, í bréfi dags. 9. jan. 2004, til byggingar- og skipulagsn.
Umsækjandi er Edda Lúðvíksdóttir, Hólum.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið, en leggur áherslu á að húsnæðið verði ekki á neinn hátt nýtt til íbúðar til lengri eða skemmri tíma.
6. Litboltafélag Hornafjarðar. Leikvöllur
Sótt er , í bréfi dags. 12.01.2004, til bæjarráðs Hornafjarðarum svæði í Lyngey, fyrir leikvöll til æfinga og keppni í litbolta. Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar, í bréfi dags. 27. jan. 2004, til byggingar- og skipulagsnefndar
Umsækjandi er Litboltafélag Hornafjarðar (LBFH)
Nefndin gerir ekki athugasemd við erindið en bendir á að rétt sé að svæðið verði girt af og úthlutun verði til ákveðins tíma
7. Tjaldsvæði Hafnar. Smáhýsi
Sótt er, í bréfi til bæjarráðs Hornafjarðar, dags. 26. jan. 2004, um leyfi til að reisa 8-10 smáhýsi á tjaldsvæði Hafnar, til viðbótar þeim 5 (6) sem fyrir eru og reist voru s.l. sumar. Erindinu er vísað til byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar. Engar teikningar af umræddum húsum fylgja með umsókn.
Umsækjandi er Jón St. Friðriksson, f.h. Náttbóls ehf.
Magnús tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Byggingarfulltrúi upplýsti að ekki hefur verið skilað inn teikningum af þeim húsum sem fyrir eru.
Nefndin vísar á fyrri afgreiðslu málsins frá 15. maí, 2003 en þar var meðal annars fært til bókar ;
“Samþykkt er að veita leyfið til 3ja ára, en lögð er áhersla á að áður en húsum yrði fjölgað þá væri gert deiliskipulag af svæðinu.”
8. Haukafell, Mýrum. Frístundabyggð
Óskað er, í bréfi dags. 15.des. 2003, eftir því, að landnotkun svæðis í Haukafelli, sem skilgreint er sem skógræktarsvæði í aðalskipulagi, verði breytt að hluta í svæði fyrir frístundabyggð.
Umsækjandi er Elín S. Harðardóttir, f.h. Skógræktarfél. Austur-Skaftafellssýslu.
Erindið samþykkt.
9. Freysnes. Deiliskipulag fístundabyggðar
Óskað er , í bréfi dags. 30.01.2004, eftir því, f.h. landeigenda í Freysnesi, að tekið verði til með-höndlunar deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Freysness í Öræfum. Með umsókn fylgja skipulagsuppdrættir og greinargerð, í þríriti.
Umsækjandi er, f.h. landeigenda, Ulla R. Pedersen, landslagsarkitekt, höfundur gagna,
Samþykkt er að óska eftir því við bæjarráð að deiliskipulagið verði auglýst
10. Kynning nokkurra ,,smærri mála,, sem afgreidd hafa verið frá síðasta fundi.
1. 15.01.2004. Sóknarnefnd Bjarnanessóknar gefið leyfi til að reisa þjónustuhús í kirkjugarðinum við Laxá í Nesjum. Húsið er bjálkahús og er stærð þess 7,0 ferm. Teikningar fylgdu umsókn.
Engar athugasemdir
2. 27. jan. 2004, gefin jákvæð umsögn um endurnýjun vínveitingaleyfis fyrir veitingahúsið
Víkina, Víkurbraut 2.
Engar athugasemdir
11. Önnur mál.
Bæjarráð óskar eftir umsögn nefndarinnar vegna erindis frá Landsvirkjun vegna færslu á Prestbakkalínu 1, austan Jökulsár á Breiðamerkursandi. Umsögn vantar frá Skipulagsstofnun.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við framkvæmdina.
Kynnt erindi frá sóknarnefnd Hafnarkirkju þar sem óskað er eftir því við nefndina að staðsetningu á nýjum kirkjugarði verði við Sílavíkurhól ( bréf dags. 2. febrúar s.l. undirritað af Þorvaldi Viktorssyni.
Samþykkt að skoða svæðið nánar með tilliti til nýtingar og taka það fyrir á næsta fundi.
Torfi spurðist fyrir um hús, húsgrindur og olíutank á Austurfjörum. Um er að ræða mannvirki frá Stokksnesi. Ekki er leyfi fyrir neinum húsbyggingum á þessu svæði en tankurinn mun vera fyrirhugaður til olíubirgðarthalds á vegum Salar ehf.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:05
Ólafur Sigurðsson Hákon Valdimarsson
Aðalsteinn Aðalsteinsson Helgi Már Pálsson
Torfi Friðfinnsson Steinþór Hafsteinsson
Haukur Sveinbjörnsson
Magnús Jónasson


