Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fundargerð Byggingar- og skipulagsnefndar 49
49. fundur
Fundur haldinn í byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, mánudaginn 2. febrúar, 2004, kl. 15:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mættir voru: Aðalsteinn Aðalsteinsson, Haukur Sveinbjörnsson, Sigurður Hannesson, Magnús Jónasson, Örn Arnarsson, Jón Friðriksson aðstoðarslökkviliðsstjóri, Helgi Már Pálsson tækni- og umhverfissviði og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi, .
1. Lóðarstækkun við Vesturbraut 1. Erindi frá bæjarráði
Erindi frá Olíufélaginu hf. þar sem kynnt er tillaga að byggingu þjónustuhúss, uppsetningu dæla og skyggnis á lóðinni að Vesturbraut 1. Sótt er um stækkun á lóð.
Erindið barst á tölvupósti dags. 21. janúar s.l. ásamt tillöguteikningum frá Kristjáni Ásgeirssyni, Alark arkitektar ehf. Erindinu var vísað frá bæjarráði 22. janúar s.l. til umsagnar í nefndinni.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við stækkunina en leggur áherslu á að aðstaða barna á svæðinu eftir stækkunina verði ekki síðri en nú er.
2. Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Freysnes
Sótt er um í bréfi dags. 30.01.2004, undirritað af Ullu R Pedersen, landslagsarkitekt FÍLA að bæjaryfirvöld taki til meðhöndlunar deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Freysnes í Öræfum skv. áður kynntum óskum um breytingum á aðalskipulagi.
Samþykkt að fara fram á það við bæjarráð að deiliskipulagstillagan verði sett í formlegt auglýsingarferli.
Erindinu að öðru leiti vísað til umsagnar á næsta fund byggingarnefndar.
3. Önnur mál.
Hákon gerði grein fyrir graftrarleyfi á Árbæ / Brunnhól á Mýrum
Engar athugasemdir
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:05
Aðalsteinn Aðalsteinsson Hákon Valdimarsson
Sigurður Hannesson Jón Friðriksson
Haukur Sveinbjörnsson Helgi Már Pálsson
Magnús Jónasson
Örn Arnarsson


