Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 179
179. fundur
179. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi 26. apríl 2012 og hófst hann kl.16:00.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
1204002F - bæjarstjórn Hornafjarðar - 179 |
||
|
Til kynningar. |
||
|
|
||
|
2. |
1203027F - bæjarráð Hornafjarðar - 586 |
|
|
Hjalti tók til máls og ræddi um umsögn bæjaráðs um 657. og 658. mál stjórnun fiskveiða Ásgrímur Ingólfsson ræddi einnig um frumvörpin. Árni Rúnar Þorvaldsson tók einnig til máls og las upp bókun sem hann lagði fram á 586. fundi bæjarráðs taldi hann að í meginatriðum væri nokkuð góð sátt um þessi mál á meðal bæjaráðsmanna. Reynir Arnarson ræddi einnig um málið, lagði hann til að Bæjarstjórn Hornafjarðar geri umsögn bæjarráðs að sinni um frumvörpin. Hjalti tók aftur til máls og sagði að kvóti hér hafi dregist saman á undanförnum árum. Björn Ingi tók einnig til máls um frumvörpin, sagði hann að þau væru mein gölluð. Hann benti á og fagnaði að sveitarfélagið taki þátt í atvinnuátaki með vinnumálastofnun og Skógræktarfélagi Íslands. Árni tók aftur til máls. Ásgrímur Ingólfsson tekur undir orð Björns Inga varðandi frumvörpin, taldi hann að sérstaka veiðileyfagjaldið væri landsbyggðaskattur. Reynir tók til máls og ítrekaði að bæjarstjórn gerði umsögn bæjarráðs að sinni. Árni Rúnar gerir athugasemd við orð Ásgríms. Ásgrímur svaraði Árna Forseti bar upp tillög Reynis Arnarsonar um að Bæjarstjórn Hornafjarðar gerði umsögn Bæjarráðs Hornafjarðar um frumvörpin að sinn og var hún samþykkt samhljóða. Fundargerð samþykkt samhljóða. |
||
|
|
||
|
3. |
1204005F - bæjarráð Hornafjarðar - 587 |
|
|
Árni Rúnar Þorvaldsson las upp fyrirspurn sína varðandi tölvu og tæknimál Ræddi hann um spurningu númer 2 varðandi rekstrarsamning um rekstur á tölvukerfi sveitarfélagsins. Ræddi hann um innkaupareglur sveitarfélagsins, hvort samningurinn rúmaðist innan þeirra. Björn Ingi ræddi um 5 lið hækkun á styrk til Humarhátíðar. Spurning hvort sveitarfélagið eigi að leggja nær alla fjárveitingu í eina hátíð eða stuðla að meiri fjölbreytni í viðburðum í sveitarfélaginu. Hjalti Þór Vignisson svaraði Árna og Birni Árni Rúna Þorvaldsson þakkar Hjalta fyrir svörin, taldi hann að innkaup yrðu að vera í anda þeirra innkaupareglna sveitarfélagsins sem bæjarstjórn hefur samþykkt og telur að hefja eigi undirbúning að útboði á þessari þjónusta. Reynir vekur athygli á fyrsta lið fundargerðarinnar varðandi dýpkun Hornafjarðarhafnar.
|
||
|
|
||
|
4. |
201203076 - Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2011 |
|
|
Sigurjón Örn Arnarson endurskoðandi fylgdu ársreikningi úr hlaði. Hjalti þakkaði starfsmönnum KPMG, starfsmönnum sveitarfélagsins og bæjarstjórn fyrir góða vinnu á síðasta ári og gott utanumhald um rekstur sveitarfélagsins. Sagði hann að reikningurinn gefi til kynna góða stöðu sveitasjóðs. Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 137 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 124 milljóna króna afgangi. Veltufé frá rekstri nam 268 milljónum króna sem er 32 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Launakostnaður jókst frá fyrra ári um 40 milljónir v. launahækkana og hækkunar á lífeyrisskuldbindingu. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.277 milljónum króna í árslok 2011 og lækkuðu um 41 milljónir króna á árinu. Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.236 milljónum króna í árslok og eiginfjárhlutfall 64,0%. Björn Ingi Jónsson tekur undir orð bæjarstjóra um góðan ársreikning en hann ræddi einnig um 20 m.kr. fjárútlát umfram fjárhagsáætlun í framkvæmdum. Árni Rúna Þorvaldsson þakkar endurskoðanda fyrir greinargóða skýrslu tekur undir orð bæjarstjóra varðandi reikninginn. Forseti lagði til að ársreikningi yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn samhljóða samþykkt |
||
|
|
||
|
5. |
201009015 - Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum |
|
|
Ásgrímur Ingólfsson fylgdi málinu úr hlaði og sagði að einungis væri verið að fjalla um svör Umhverfis- og skipulagsnefndar við þeim athugasemdum sem bárust og leggur hann til að bæjarstjórn geri svörin að sínum og sendi þau til þeirra sem málið varðar. |
||
|
|
||
|
6. |
200901107 - Fyrirspurnir - bæjarstjórn |
|
|
Engar borist. |
||


