Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 183

183. fundur

 

183. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 23. ágúst 2012 og hófst hann kl. 16:00.

 

 

Fundinn sátu:

Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti

Reynir Arnarson 1. varaforseti

Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður

Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti

Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður

Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður

Valdemar Einarsson 1. varamaður

Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri

 

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.

Dagskrá:


1. Fundargerðir (upptaka 1.hluti )  (upptaka 2.hluti)


bæjarráð Hornafjarðar - 595

Björn  Ingi tók til máls.  Benti á að bæjarstjórn hafi ekki enn fjallað um fundargerð bæjarráðs nr. 594 og að fundargerð bæjarstjórnar númer 181.  Einnig að hann leggi áherslu á að fundargerðir nefnda sveitarfélagsins þurfi að vera ítarlegri.

Hjalti lagði til að leitað yrði afbrigða um að setja umræddar fundargerðir á dagskrá.  Benti á að í nýjum sveitarstjórnarlögum er sagt að setja eigi reglugerð um ritun fundargerða.

Forseti bar upp til atkvæða hvort taka eigi umræddar fundargerði á dagskrá fundarins.  Samþykkt samhljóða

Reynir sagði að það væri í hlutverki hvers nefndarmanns að gæta þess að láta hafa eftir sér þess sem hann óskaði.

Björn Ingi benti jafnframt á að undir þessari fundargerð væri máli vísað til bæjarstjórnar en það mál væri ekki á dagskrá.

Forseti upplýsti að umrætt mál yrði tekið fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar.

Fundargerð samþykkt.

 

bæjarráð Hornafjarðar - 594
Fundargerð samþykkt.
 

bæjarráð Hornafjarðar - 596

Valdemar Einarsson ræddi um umsóknir um starf upplýsinga- og gæðastjóra.  Varpaði hann fram þeirri hugmynd að leggja slík mál fyrir ráðningarskrifstofu.

Hjalti sagði frá að málið væri á hans ábyrgð og bæjarráðs.  Sagði að það kæmi vel til greina að leita til ráðningaskrifstofu. 

Árni Rúnar spurði um sölu á kennsluhúsnæði Nesjaskóla, um hvað málið fjallaði og hver staðan væri á því í dag.

Hjalti gerði grein fyrir að fundur verði um málið á mánudaginn og að það snúi um ósk kaupenda um að dreifa greiðslum á lengri tíma auk annarra atriða sem skoða þarf.

Ásgrímur fagnaði þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í á Leirusvæði.

Valdemar tók undir með Ásgrími. Sagði að með því að leita til ráðningarskrifstofa myndi umræða um niðurstöðu í ráðningarmálum breytast.

Fundargerð samþykkt.

 

bæjarráð Hornafjarðar - 597

Björn Ingi ræddi um deiliskipulag við Jökulsárlón og spurði af hverju auglýsingin hafi ekki enn verið sett í loftið.

Hjalti gerði grein fyrir málinu og sagði að ekkert væri til fyrirstöðu að auglýsa.

Björn Ingi ræddi um starfsemi við Jökulsárlón sem væri þar án leyfis.

Hjalti sagði að lögfræðingur sveitarfélagsins væri með málið í höndunum.

Fundargerð samþykkt.

 

bæjarráð Hornafjarðar - 598
Fundargerð samþykkt.
 

bæjarráð Hornafjarðar - 599

Hjalti vék að fyrirspurnum um mannlífsþætti RÚV og lagði ríka áherslu á að stjórnsýsla sveitarfélagsins væri á hans ábyrgð.  Sagði að umræddur starfsmaður sem mikið er um rætt í tengslum við mannlífsþætti RÚV hafi á undanförnum árum lagt afar hart að sér.  Hann hafi til dæmis verið mikilvægasti hlekkurinn í því að verja peningalegir eignir sveitarfélagsins í hruninu, með upplýsingaöflun og síðan aðgerðum í kjölfarið.  Einnig væri hægt að tína til margt sem hann hefði gert vel á síðustu árum og mikilvægt væri að halda því til haga í umræðunni.  Sagði Hjalti að umræddur starfsmaður hafi unnið úr sínum málum og nú væri mikilvægt að veita honum nauðsynlegt svigrúm.  Bað hann um faglega umræðu um þessi mál.

Björn Ingi tók undir orð Hjalta að hafa umræðuna á faglegum nótum.  Þá ræddi hann um fyrirspurnir um byggingu knatthúss á Hornafirði.  Sagði það höfðinglega gjöf. Las upp úr greinargerð frá aðalfundi Skinneyjar Þinganess um samskipti við bæjaryfirvöld og sagðist ekki skilja það öðruvísi en að bæjaryfirvöldum ætti alltaf að hafa verið það ljóst að fyrirtækið hætti aldrei við að gefa gjöfina.  Þá ræddi Björn Ingi um mannlífsþætti, svörin við þeim.  Sagðist gera athugasemdir við reiknaða vinnu í svörunum, velti einnig fyrir sér aðgengi að sjónvarpsefni, hvernig væri með notkun á því o.s.frv.

Reynir tók til máls og ræddi um mannlífsþátt.  Sagði hann að ákveðnir fjármunir hafi verið markaði til verkefnisins og farið var fram úr þeim heimildum.  Las hann upp úr fundargerð nr. 594 þegar málið var afgreitt.  Nú væri að gera eins gott úr málinu og hægt er.  Þá ræddi hann um fyrirspurnir Björns Inga um vitneskju um gjöf Skinney Þinganes og sagði að hann stæði við þau svör að hann hafi ekki haft vitneskju um að ráðist yrði í byggingu þegar girðing var reist umhverfis völlinn.

Ásgrímur sagði að spurning er liti að hvar ætti að ná í fjármuni fyrir þessari framúrkeyrslu að þá væri annað hvort að spara meira eða ná inn meiri tekjum.

Valdemar sagði að félagasamtökum hafi verið lofað fjármunum.  Sagði að seint yrði fundinn út heildarreikningur fyrir verkefnið, m.a. vegna þess að verktakar hafi gefið eitthvað eftir af sinni vinnu.

Hjalti ræddi um knatthús og mannlífsþátt.

Björn Ingi taldi að bæjarstjórn hafi aldrei formlega fjallað um viðtöku gjafarinnar.  Sagðist hann ósammála um viðbrögð Ásgríms við framúrkeyrslunni.  Lagði Björn Ingi fram eftirfarandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn vegna svars við fyrirspurn um mannlífsþátt RÚV:

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir mikilli óánægju með þau vinnubrögð sem voru viðhöfð við undirbúning og vinnslu mannlífsþáttar RUV á Höfn.

Óásættanlegt er að hægt sé að fara að minnsta kosti 450% fram úr áætlunum. Einnig er óásættanlegt að farið sé í framkvæmdir án þess að viðkomandi nefndir og ráð komi þar að málum.

Við umræður undanfarna mánuði um breytingar á stjórnsýslu sveitarfélagsins hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks gagnrýnt það fyrirkomulag að framkvæmdir og fjármál hjá sveitarfélaginu séu á sömu hendi. Ljóst er að fjármála- og framkvæmdasvið eiga að veita hvort öðru eðlilegt aðhald.

Ljóst er að Framsóknarflokkurinn sem hefur hreinan meirihluta í sveitarfélaginu veitir embættismönnum lítið sem ekkert aðhald og sýnir takmarkaða forystu við stjórn sveitarfélagsins.

Árni Rúnar lagði áherslu á að bæjarstjórn myndi líta í eigin barm í þessu máli eins og bæjarráð sem starfar í umboði bæjarstjórnar. Ræddi hann um að í þessu tilfelli hafi bæjarráð ekki sinnt skyldu sinni um aðhald gagnvart stjórnsýslunni í umboði bæjarbúa.  Tók Árni undir orð Björns Inga um meginábyrgð meirihlutans á því að veita stjórnsýslunni aðhald.  Rifjaði hann upp útboð á Heppuskóla þegar farið var á svig við eigin samþykktrar útboðsreglur.  Sagði Árni að eftir að bæjarráð hafi samþykkt að fara af stað með verkefni eins og mannlífsþáttinn væri erfitt að snúa af braut.  Ennfremur sagði hann að ágæt stemning hafi myndast um verkefnið á meðal bæjarbúa og ekki væri rétt að skella skuldinni á einn aðila.  Þá vék Árni að umræðu um knatthús að eftir hrun að þá breyttust allar forsendur fyrir sveitarfélagið að ráðast í byggingu hússins en það sem var búið að marka í verkefnið hafi nýst til að byggja gervigrasvöll sem hafi nýst vel.

Reynir ræddi um knatthús. Sagði að hann hafi ekki ímyndað sér að knatthúsið myndi rísa á næsta árum en vildi samt stuðla að því að ef slíkar aðstæður myndi skapast í rekstri sveitarfélagsins að hægt yrði að byggja yfir völlinn.  Reynir sagðist að rétt væri að ábyrgð á bæjarmálum hvíldi á bæjarráði og bæjarstjórn og þar bæri meirihlutinn mesta ábyrgð.  Minnti hann á að bæjarráð hafi verið einhuga í afgreiðslu sinni í aðdraganda mannlífsþáttar.  Ræddi líka um að margt hafi verið gert sem er jákvætt.  Lagði hann fram eftirfarandi bókun:

 

Í umræðu um framkvæmdir í tengslum við sjónvarpsþátt RÚV fyrr í sumar er rétt að benda á að bæjarráð var einhuga um að ráðast í verkefnið, lagði því til skýran fjárhagsrammaeins og fram kemur í fundargerð bæjarráðs frá 14. maí 2012 en eins og fram hefur komið var farið langt út fyrir þann ramma við gerð þáttanna. 

Brugðist hefur verið við því með breytingu er varðar undirbúning og eftirlit framkvæmda.  Þá er rétt að undirstrika að framkvæmdirnar voru að mörgu leyti til hins betra og munu nýtast til framtíðar. Einnig skal bent á að allt efni sem tekið var upp vegna sjónvarpsþáttanna skal vera aðgengilegt fyrirtækjum og stofnunum hér, til notkunar.

Við sem nú skipum meirihluta í bæjarstjórn Hornafjarðar munum leitast við, hér eftir sem hingað til, að fara vel með fjármuni sveitarfélagsins og læra af þeim mistökum sem gerð voru við umrætt verkefni.

Meirihlutinn  mun draga þann lærdóm af þessu dæmi að hægt er að efna til átaksverkefna til endurbóta á opnum svæðum og umhverfi okkar almennt, bæði í þéttbýli og dreifbýli án utanaðkomandi þrýstings.

 

Ræddi Reynir um þann lærdóm sem draga þyrfti að þessu verkefni.

Björn Ingi sagði að þegar hann hafi tekið þátt í afgreiðslu verkefnisins að þá hafi hann ekki verið að samþykka að sniðganga nefndir og ráð.

Hjalti rifjaði upp breytingar, sagði að búið væri að aðskilja framkvæmdir og fjármál oghann og aðrir sem hafi komið að málinu hafi horfst í augu við mistök.  Í ljósi umræðu um fjármál sveitarfélagsins fór hann yfir nokkrar stærðir um þróun í rekstri sveitarfélagsins og gerði m.a. grein fyrir miklum niðurskurði í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem ef til vill hefði komið í bakið núna þegar miklar framkvæmdir eru undir og ekki umfangsminni rekstur og verkefni en á fyrri árum. 

Árni ræddi um knatthús og reiðskemmu Hornfirðings.

Hjalti ræddi um knatthús

Björn Ingi ræddi um knatthús.

Fundargerð samþykkt.

 

bæjarstjórn Hornafjarðar - 182
Fundargerð áður samþykkt.
 

bæjarstjórn Hornafjarðar - 181
Fundargerð áður samþykkt.
 
2. Verklýsing fyrir frágang opinna svæða og við félagsheimili (upptaka)

Ásgrímur gerði grein fyrir málinu.

Björn Ingi ræddi hugmyndina spurði hvort tímaramminn væri raunhæfur og hvort kostnaðarmeta þyrfti verkefnið.  Fagnaði hann hugmyndinni og taldi hann hana framsýna.

Hjalti ræddi um verkefnið.

Björn Ingi endurtók mikilvægi þess að marka því skýran fjárhagsramma.

Ásgrímur tók undir orð Björns Inga og lagði til að vísa verklýsingu til endanlegs frágangs í bæjarráði.

Forseti bæjarstjórnar bar upp tillögu Ásgríms um að vísa verklýsingu til bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða. 

 
3 Verklýsing um framtíðarfyrirkomulag safnamála (upptaka)

Hjalti gerði grein fyrir málinu.  Rædddi um breytingar á safnamálum.

Björn Ingi ræddi um að nauðsyn væri að endurskoða tímaramma og einnig að marka því skýra fjármuni.  Ræddi hana um grein um atvinnu- og menningarmál og umræðu um sýningarmál.  Lagði til að þessi verklýsing yrði vísað til bæjarráðs.

Hjalti ræddi um uppbyggingu list- og verkgreina í Vöruhúsi.

Forseti bar upp tillögu Björns Inga um að vísa málinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

 
4 Fjárhagsáætlun 2013-2016 (upptaka)

Hjalti fór um drög að forsendum fyrir fjárhagsáætlun.

Björn Ingi ræddi hann um tengsl útsvarsstofns og greiðslur úr jöfnunarsjóði.  Sagði hann nauðsynlegt að fara dýpra ofan í hugmyndafræðina um rammafjárlög.

 
5 Uppsögn Jóns Stefáns Friðrikssonar úr starfi sem formaður yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins (upptaka)

Bæjarstjórn  veitir Jóni Stefáni lausn frá störfum.

Reynir þakkaði Jóni Stefáni fyrir vel unnin störf og óskaði honum velfarðnaðar.

Bæjarstjórn tók undir orð Reynis.

 
6 Kosningar í nefndir (upptaka)

Forseti bar upp tillögu um Vignir Júlíusson sem aðalmann og í stað Jóns Stefáns Friðrikssonar og til vara Heimir Örn Heiðarsson í staðinn fyrir Friðrik Jónas Friðriksson.

og Halldóru B. Jónsdóttur sem aðalmann í atvinnu- og menningarmálanefnd í stað Maríönnu Jónsdóttur.

Tillögurnar samþykktar samhljóða.

 
7 Endurskoðun á aðalskipulagi (upptaka)

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og sagði m.a:

Til umfjöllunar er Lýsing og matslýsing Aðalsskipulags, unnin af GLÁMU ? KIM og VSÓ.
Fjallað var um lýsinguna á 27. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar og samþykkt að vísa til umsagnar aðila.

Í efni lýsingar koma fram aðdragandi og tilgangur skipulagsbreytingar, helstu forsendur og viðfangsefniásamt lýsingu á umhverfi og aðstæðum á skipulagssvæðinu; tengsl við aðrar áætlanir; upplýsingar um hvernig staðið verður að umhverfismati skipulagsbreytingar og hvaða viðfangsefni breytingartillögu eru líkleg til að valda áhrifum á umhverfið og hvaða umhverfisþættir eru líklegir til að verða fyrir áhrifum, upplýsingar um umhverfisverndarmarkmið stjórnvalda sem varða
skipulagstillöguna og skipulagsferlið svo sem helstu verkáfanga, tímasetningu þeirra og hvernig kynningu, samráði og aðkomu almennings og annarra hagsmunaaðila verður háttað.

Lagt er til að samþykkt verði að vísa lýsingu og matslýsingu til umsagnar skipulagsstofnunar og umsagnaraðilum samkvæmt 1 mgr. 30 gr.  skipulagslag nr. 123/2010.
Jafnframt er lagt fram að lýsing verði sett í  kynningar fyrir almenning að gefnu jákvæðri umsögn  skipulagstofnunar.

Sagði Björn Ingi að hann teldi þá skoðun sína að endurskoðun hafi hafist 2002 en ekki 2010 eins og kemur fram í inngangi.

Hjalti sagði að ártalið miðaðist við samþykkt tillögu snemma á þessu kjörtímabili.

Árni Rúnar gerði grein fyrir vinnu á kjörtímabilinu 2006-2010.

Forseti bar tillögu Ásgríms til atkvæða.

Samþykkt með fimm atkvæðum, tveir sitja hjá.

 
8 Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Engar borist.
 

 

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 19:00


Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica