Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 181
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 7. júní 2012, kl. 16.30 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, Reynir Arnarsson, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Valdemar Einarsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Ásgerður bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir bæjarráðs (upptaka)
· Fundargerð bæjarráðs 590. fundur
Ásgrímur ræddi um sjómannadagshelgina og vék síðan máli sínu að frumvörpum um fiskveiðistjórnun.
Árni ræddi um mál er varða fiskveiðistjórnun á Íslandi.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð bæjarráðs 591. fundur
Valdemar spurði um flutning Gömlubúðar og af hverju húsið hafi ekki enn verið flutt og jafnframt hver heildarkostnaður við flutninginn yrði.
Hjalti svaraði fyrirspurninni.
Reynir gerði grein fyrir fyrirhuguðum frágangi við Gömlubúð.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð bæjarráðs 592. fundur
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð bæjarráðs 593. fundur
Ásgrímur ræddi um skaðsemi villtra dýra og fugla á ræktunarlönd. Einnig lýsti hann yfir ánægju sinni með áhuga Fosshótela á uppbyggingu á Heppunni.
Valdemar fagnaði því að bréf hafi verið sent til velferðarráðherra og minnti á þá miklu hagsmuni sem þar eru undir. Einnig fagnaði hann áhuga á grunni Gömlubúðar sem mun standa auð þegar flutningur verður yfirstaðinn. Sagði hann þó að hugsa verði málin vel áður en svæðinu verður ráðstafað. Þá ræddi Valdemar um sölu íbúða, mikilvægi þess að tryggja jafnræði í orkusölu á milli dreifbýlis og þéttbýlis.
Reynir tók undir með Valdemar. Sagði Reynir að ákveðið hafi verið að fara yfir stöðu mála er varðar íbúðamál hjá sveitarfélaginu áður en lengra verður haldið með söluna. Einnig ræddi Reynir um gamla grunn Gömlubúðar og tók undir með Valdemar að skoða þurfi málin í samhengi við aðra starfsemi sem þar gæti þrifist í framtíðinni. Einnig ræddi Reynir raforkumál.
Hjalti ræddi um íbúðamál.
Valdemar ræddi um íbúðamál. Jafnframt ræddi hann um áform Fosshótela og spurði um hvort rætt hafi verið um verð á húsum sem þarna eru.
Hjalti svaraði fyrirspurn Valdemars.
· Fundargerð bæjarstjórnar, 180. fundur áður samþykkt.
Til kynningar.
2. Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum (upptaka)
Lovísa ræddi stuttlega um málið og vék síðan af fundi vegna vanhæfis.
Ásgrímur fylgdi skipulaginu úr hlaði.
Hjalti ræddi um skipulagið
Breytt deiliskipulag fyrir frístundasvæði í Stafafellsfjöllum borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
3. Ósk um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar að Lindarbakka (upptaka)
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði.
Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar að Lindarbakka borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
4. Kosningar (upptaka)
Hjalti gerði grein fyrir breytingum á nýjum sveitarstjórnarlögum er varðar kosningar í nefndir.
Forseti bar upp eftirfarandi tillögur
Forseti bæjarstjórnar verður Ásgerður K. Gylfadóttir
1. varaforseti verður Reynir Arnarson
2. varaforseti verður Björn Ingi Jónsson
Tillagan samþykkt með sex atkvæðum einn sat hjá.
Borinn upp eftirfarandi tillaga um kjör í bæjarráð til eins árs:
Frá B lista : Reynir Arnarson og Ásgerður Gylfadóttir
Til vara : Kristján Sigurður Guðnason og Ásgrímur Ingólfsson
Frá D lista : Björn Ingi Jónsson
Til vara : Valdemar Einarsson
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar: Árni Rúnar Þorvaldsson
Til vara: Guðrún Ingimundardóttir
Samþykkt samhljóða.
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu um fulltrúa á aðalfund SASS:
Reynir Arnarson til vara Ásgrímur Ingólfsson
Ásgerður K. Gylfadóttir til vara Arna Ósk Harðardóttir
Kristján Guðnason til vara Hugrún Harpa Reynisdóttir
Björn Ingi Jónsson til vara Guðrún Ása Jóhannsdóttir
Árni Rúnar Þorvaldsson til vara Guðrún Ingimundardóttir
Samþykkt samhljóða.
5. Fyrirspurnir
Engar borist.
Fundi slitið kl. 18.40


