Bæjarstjórn
Fundargerð bæjarstjórnar 178
178. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 12. apríl 2012, kl. 16.00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, Reynir Arnarsson, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Lovísa Rósa Bjarnardóttir, Grétar Már Þorkelsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Ásgerður bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir bæjarráðs (upptaka)
· Fundargerð bæjarráðs 582. fundur
Ásgrímur fjallaði um uppdælingu á Leirusvæði og endanlega frágang á svæðinu.
Árni fjallaði um uppdælingu á Leirusvæði og frágang á svæðisins. Fjallaði hann einnig um könnun á árangri sem náðst hefur í endurvinnslu á úrgangi.
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að nú í vor verði í síðasta sinn dælt efni úr höfninni á Leirusvæðið. Þekkt er að laust efni, bæði það sem komið hefur upp úr höfninni og einnig það sem keyrt hefur verið á staðinn á undanförnum árum, hefur valdið íbúum verulegum óþægindum. Því er mikilvægt að strax þegar uppdælingu lýkur í vor að ráðist verði í markvissar aðgerðir til að hefta fok á lausu efni og ganga frá svæðinu þannig að sómi sé að. Starfsmönnum falið að kynna fyrir íbúum fyrirhugaðar framkvæmdir, hvenær þær hefjist og hvenær lokið verði við frágang á svæðinu.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
· Fundargerð bæjarráðs 583. fundur
Fundargerð samþykkt samhljóða.
· Fundargerð bæjarráðs 584. fundur
Árni Rúnar fjallaði um 17. lið fundargerðarinnar um framtíð Humarhátíðar.
Reynir spurðist fyrir um ósk Ómars Antonssonar á frekari samstarfi um söfnun brotamálma í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Hjalti svaraði fyrirspurn Reynis.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
· Fundargerð bæjarráðs 585. fundur
Reynir fjallaði um ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2011. Sagði hann að ársreikningurinn verði lagður fyrir bæjarstjórn á fundi í lok apríl. Las hann upp nokkrar lykiltölur úr ársreikningnum.
Hjalti fjallaði um tvö frumvörp um fiskveiðistjórnunarkerfi sem nú er til meðferðar á Alþingi. Gerði hann grein fyrir helstu niðurstöðum sem fram koma í skýrslu KPMG. Skýrslan fjallar um áhrif frumvarpanna á samfélagið Sveitarfélagið Hornafjörð. Fram kom að nái frumvörpin fram að ganga hafi það veruleg neikvæð áhrif á samfélagið.
Reynir las upp neðangreindar tillögur:
Tillaga um uppbyggingu fjarskiptakerfis í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Bæjarstjórn Hornafjarðar felur starfsmönnum að hraða sem kostur er skoðun á kostnaði við uppbyggingu fjarskiptakerfis í Sveitarfélaginu Hornafirði. Bæjarstjórn tekur undir ályktanir félaganna um mikilvægi þess að koma á öruggum hágæða fjarskiptum hvarvetna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Nýverið eignaðist Sveitarfélagið Hornafjörður Fjarskiptafélag Öræfinga. Hafin er skoðun á því hvernig hægt er að byggja upp sambærilegt net fyrir Mýrar og Suðursveit. Önnur svæði í sveitarfélaginu munu fylgja í kjölfarið. Fjarskipti eru íbúum í dreifbýli afar mikilvæg.
Ásgerður bar upp tillöguna til samþykkis.
Samþykkt samhljóða.
Tillaga að taka til skoðunar úrgangsmál í dreifbýli.
Bæjarstjórn Hornafjarðar felur umhverfis- og skipulagsnefnd að taka til skoðunar þær óskir sem fram koma hjá Búnaðarfélaginu um að hafa ruslagám fyrir óflokkað sorp við hverja grenndargámastöð í dreifbýli, að brotajárns- og timburgámur verði ávallt til staðar á grenndarstöð og að auka þjónustu við bændur um hirðingu rúlluplasts.
Ásgerður bar upp tillöguna til samþykkis.
Samþykkt samhljóða.
Tillaga að fylgja eftir við Vegagerðina að halda áfram með girðingar meðfram þjóðvegi 1 í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn felur umhverfis- og skipulagsnefnd að fylgja eftir við Vegagerðina að haldið verði áfram að girða af þjóðveg 1 í sveitarfélaginu. Málið var tekið upp við Vegagerðina síðast liðið vor og þakkar bæjarstjórn ábendingu um að halda þurfi málinu áfram á lofti.
Ásgerður bar upp tillöguna til samþykkis.
Samþykkt samhljóða.
Tillaga að taka ábendingar Búnaðarfélags Mýrarhrepps um beitarþol og fjölda hreindýra á hverju veiðisvæði til skoðunar.
Bæjarstjórn felur atvinnu- og menningarmálanefnd að taka ábendingu Búnaðarfélags Mýrahrepps um beitarþol og fjölda hreindýra á hverju veiðisvæði til skoðunar í samstarfi við þar til bæra aðila.
Ásgerður bar upp tillöguna til samþykkis.
Samþykkt samhljóða.
Reynir lagði fram eftirfarandi bókun
Fulltrúar sveitarfélagsins hafa í vetur ítrekað rætt við innanríkisráðherra og þingmenn kjördæmisins um samgöngubætur í Sveitarfélaginu Hornafirði. Bæjarstjórn mun halda áfram að leggja þunga áherslu á lagningu nýs vegar um Hornafjörð í tengslum við gerð samgönguáætlunar og fjárlaga á hverju ári.
Árni Rúnar fjallaði um þær tillögur sem Reynir bar upp. Árni Rúnar fjallaði um ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2011. Árni Rúnar fjallaði einnig um frumvörp sem nú liggja fyrir um sjávarútvegsmál.
Fundargerð samþykkt samhljóða
· Fundargerð bæjarstjórnar, 177. fundur áður samþykkt.
Til kynningar.
2. Siðareglur kjörinna fulltrúa og stjórnenda (upptaka)
Hjalti Þór fylgdi málinu úr hlaði.
Árni Rúnar fjallaði um reglurnar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar siðareglur kjörinna fulltrúa.
3. Grunnskóli Hornafjarðar - Heppuskóli endurbætur (upptaka)
Árni Rúnar fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar harmar óvönduð vinnubrögð bæjarráðs Hornafjaraðar varðandi töku tilboðs í innanhússendurbætur í Heppuskóla. Þessi vinnubrögð bæjarráðs urðu þess valdandi að sveitarfélagið varð að gera sátt við annan tilbjóðanda í verkið upp á 4,6 milljónir. Heildarkostnaður bæjarbúa vegna þessara vinnubragða er 5 milljónir króna þar sem lögfræðikostnaður er kominn í 400.000 kr. Til lengri tíma litið geta þessi vinnubrögð skaðað sveitarfélagið mun meira í formi minnkandi trausts almennings og fyrirtækja á því sem bæjarráð samþykkir.
Reynir Arnarsson, Hjalti Þór Vignisson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Ásgrímur Ingólfsson tóku til máls undir þessum lið.
4. Ráðning í starf fræðslustjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar (upptaka)
Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og gerði tillögu um að ráða Ragnhildi Jónsdóttur í starfið.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu bæjarstjóra með sex atkvæðum.
5. Ferð bæjarstjóra til Lapplands (útsending)
Árni Rúnar fylgdi málinu úr hlaði.
Hjalti fjallaði um ferð sína til Lapplands og las upp greinargerð um ferðina, einnig gerði hann grein fyrir ástæðum þess að hann ákvað hætta að blogga.
Árni Rúnar þakkaði Hjalta fyrir fróðlegt erindi. Sagði hann að hann sæi eftir bloggi bæjarstjóra.
Reynir fjallaði um umræður undir þessum lið og þakkaði þær.
Árni Rúnar fjallaði um málið aftur.
Hjalti gerði grein fyrir ákvörðun sinni um að hætta að blogga.
6. Kosningar í nefndir (upptaka)
Ásgerður bar upp tillögu um setu aðalmanna Framsóknarflokksins í umhverfis- og skipulagsnefnd og félagsmálaráði. Breytingarnar eru þær að Aðalsteinn Aðalsteinsson verður aðalfulltrúi í umhverfis- og skipulagsnefnd í staðinn fyrir Gunnar Pál Halldórsson, Gunnar Páll Halldórsson verður varamaður og að Sólrún Sigurjónsdóttir verði aðalmaður í félagsmálaráði í stað Óskars Arasonar sem verður varamaður.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu forseta með sex atkvæðum einn sat hjá.
7. Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Engar borist.
Fundi slitið kl. 18.40


