Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 177

Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 8. mars 2012, kl. 16.00 í Ráðhúsi.

 

Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Gunnhildur Imsland, Arna Ósk Harðardóttir, Valdemar Einarsson, Björn Ingi Jónsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.

 

Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs,  og Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri.

Ásgerður bauð fundarmenn velkomna.  

1.      Fundargerðir bæjarráðs (upptaka fyrri hluti)  (upptaka seinni hluti)

·         Fundargerð bæjarráðs 577. fundur

Ásgerður bar fundargerðina upp til samþykktar.
Fundargerð samþykkt samhljóða
.

·         Fundargerð bæjarráðs 578. fundur

Björn Ingi ræddi um veitur, fjallaði hann um hlutverk Hafnarstjórnar er snýr að stjórn á veitum, velti því upp hvort veitur ættu að lúta stjórn bæjarráðs.  Einnig ræddi hann um samgönguáætlun.  Björn Ingi spurði hvernig sveitarfélagið ætli að standa að safnamálum er snúa að byggðasafni eftir flutning Gömlubúðar.

Árni Rúnar ræddi um veitur.  Einnig fjallaði hann um breytta skipan umhverfistofnana og málefni Vatnajökulsþjóðgarðs, taldi hann stjórnkerfi Vatnajökulsþjóðgarðs ætti að vera fyrirmynd fyrir nýjan stofnun verðu hún sett á laggirnar.

Hjalti ræddi um veitur.  Einnig ræddi hann um samgönguáætlun, gerði hann grein fyrir fyrirhuguðum fundi með fulltrúum Siglingastofnun um rannsóknir á grynnslum.  Gerði hann grein fyrir safnamálum og flutningi Gömlubúðar.  Tók hann undir orð Árna um að núverandi stjórnarfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs sé góð fyrirmynd fyrir nýja stofnun.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

·  Fundargerð bæjarráðs 579. fundur
Árni Rúnar fjallaði um fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.  Ræddi hann um móttöku nýrra Íslendinga og fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.  Einnig fjallaði hann um breytingar á stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Hjalti fjallaði um málefni nýrra íbúa.  Einnig ræddi hann breytingar á skipulagi stjórnsýslunnar og framtíðarhlutverk Ráðhússins.

Árni Rúnar fjallaði um framtíðarhlutverk Ráðhússins og fræðslusviðs.

Hjalti fjallaði um framtíð Ráðhússins og verkefni stjórnsýslunnar.
Árni Rúnar fjallaði um stjórnsýsluna.

Hjalti gerði grein fyrir samningi við Vigfús Ásbjörnsson um nýtingu á hluta af landi í eigu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt samhljóða
.

·  Fundargerð bæjarráðs 580. fundur


Arna Ósk ræddi mikilvægi þess að taka til endurskoðunar ferðir á vegum sveitarfélagsins og kostnaðarþátttöku fjölskyldna í þeim.

Árni Rúnar þakkaði Örnu Ósk fyrir að vekja máls á ferðum á vegum sveitarfélagsins. 

Kristján fjallaði um skotfélag Hornafjarðar og æfingarsvæði fyrir félagið.

Hjalti fjallaði um ferðir og gjöld hjá barnafjölskyldum. 
Fundargerð samþykkt samhljóða

·  Fundargerð bæjarráðs 581. Fundur
Árni Rúnar fjallaði um útboð á innanhúsbreytingum í Heppuskóla.  Lagði hann fram eftirfarandi bókun :

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar treystir sér ekki til þess að styðja ákvörðun bæjarráðs á 581. fundi bæjarráðs um töku tilboðs í endurbætur innanhúss í Heppuskóla.  Málsmeðferð og vinnubrögð bæjarráðs voru með þeim hætti að ekki er hægt að halda því fram að um upplýsta og vandaða ákvörðun hafi verið að ræða.  Eftirmálar í kjölfar fundarins og ákvörðun um að setja málið aftur á dagskrá bæjarráðs undirstrikar þetta.

Hjalti gerði grein fyrir tilboðum í innanhúsbreytingar í Heppuskóla.
Árni Rúnar fjallaði aftur um tilboð í innanhúsbreytingar í Heppuskóla.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

· Fundargerð bæjarstjórnar, 176. fundur áður samþykkt.

Til kynningar.

 

2. Grenndarkynning vegna íbúðarhúss að Hofi I Austurhús   (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:

Fram hefur farið grenndarkynning er varðar íbúðarhúss að Hofi I Austurhús. Athugasemdir bárust frá þrem aðilum, Steinþór Arnarsson,  Fornleifaverndar Ríkisins og Þjóðminjaverði Íslands. Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd.  Niðurstöður grenndarkynningar var lögð fyrir Umhverfis- og skipulagsnefnd á 13. fundi nefndarinnar 4. maí. 2011, nefndin var sammála því að láta grenndarkynninguna taka gildi með þeim breytingum að afstaða hússins færist í samræmi við athugasemdir landeigenda á Hofi.  Einnig verði  farið eftir umsögn og reglum Fornleifaverndar ríkisins.  Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og að Bæjarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.

Bæjarstjórn samþykkir bókunina samhljóða

3. Grenndarkynning vegna byggingar bílskúrs að Litla - Hofi  (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun.

Fram hefur farið grenndarkynning er varðar byggingu bílskúrs að Litla - Hofi Grenndarkynningin var samþykkt með samþykki allra þeirra er fengu hana og málið varðaði. Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd.  Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.

Bæjarstjórn samþykkir bókunina samhljóða.

 

4. Fjárhagsáætlun HSSA 2012   (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði.  Helstu niðurstöður eru:

 

Tekjur alls eru 459,8 m.kr

Gjöld alls eru 468,9 m.k

Niðurstaðan er því neikvæð um 9, 1 m.kr.

 

Lagði bæjarstjóri til að fjárhagsáætlunin verði samþykkt með fyrirvara um nýjan samning við ríkið

Björn Ingi fjallaði um áætlunina, óskaði eftir umræðu um hvernig fjármagn sem upp á vantar verði mætt.

Hjalti gerði grein fyrir þeim kostum sem eru í stöðunni.  

Björn Ingi fjallaði um áætlunina.

Árni Rúnar fjallaði um áætlunina, og sagðist sitja hjá við afgreiðslu hennar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun með sex greiddum atkvæðum einn sat hjá.

 

5. Deiliskipulag vegna íþróttahús undir Garðshól – Síðari umræða.    (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun.

Um er að ræða síðari umræðu um breytingu á fyrra skipulag sem samþykkt var í bæjarstjórn Hornafjarðar 16. september 2008 og auglýst í b – deild Stjórnartíðinda 19.11.2008.  Breytt skipulag var unnið af Glámu – Kím ehf, uppdráttur unnin í jan. 2012.  Á uppdrætti er greinargerð og yfirlistmynd sem sýnir breytingarnar sem gerðar eru.  Helstu breytingar eru að mænishæð hússins hækkar úr 12 m í 13,7 m. Þrjár athugasemdir bárust á kynningartímanum.  Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur undirbúið svör við framlögðum athugasemdum sem liggja fyrir fundinn. 

Bæjarstjóri lagði til að skipulagið verði sent til afgreiðslu Skipulagsstofnunar ásamt þeim athugsemdum og svörum sem nú liggja fyrir.

Kristján fjallaði um skipulagið og hvernig nýtt hús muni verða lyftistöng fyrir knattspyrnuiðkendur sem og aðra sem vilja nýta húsið.

Árni Rúnar fjallaði um skipulagið og samskipti bæjarráð og Skinney Þinganess vegna knatthússins í tengslum við gjöf fyrirtækisins.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu samhljóða.

Erindisbréf fyrir ungmennaráð
Björn Ingi tók við fundarstjórn.
Árni vísaði í vanhæfisreglur sveitarstjórnarlaga og vék af fundi.
Ásgerður las upp helstur breytingum á erindisbréfinu og lagði til að erindisbréfið yrði samþykkt.
Samþykkt með sex samhljóða atkvæðum.

 

6. Erindisbréf skóla- íþrótta- og tómstundanefndar. (upptaka)


Ásgerður gerði grein fyrir helstu breytingum og lagði til að erindisbréf Skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar verði samþykkt.

Samþykkt með sex samhljóða atkvæðum.

7. Reglur um heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði    (upptaka)

Árni Rúnar kom inn á fundinn undir þessum lið. 

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði.  Lagði hann til að reglur um heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði verði samþykktar.
Samþykkt samhljóða.

8. Endurskoðuð Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins ásamt framkvæmdaáætlun til ársins 2014    (upptaka)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, lagði hann til að endurskoðuð jafnréttisáætlun fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

9.  Fyrirspurnir - Bæjarstjórnar

Engar borist.  


Fundi slitið kl. 18.00


Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica