Bæjarstjórn

Fundargerð bæjarstjórnar 174

Fundur haldinn    í Bæjarstjórn Hornafjarðar, miðvikudaginn 07. desember 2011, kl. 16.15 í Ráðhúsi.

 

Mætt voru: Reynir Arnarson, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján S. Guðnason, Ásgrímur Ingólfsson, Valdemar Einarsson, Björn Ingi Jónsson og Árni Rúnar Þorvaldsson.

Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs, Stefán Ólafsson, framkvæmdastjóri, fræðslu – og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri.

Ásgerður bauð fundarmenn velkomna.  

1.      Fundargerðir bæjarráðs   (útsending 1 hluti)  (útsending 2 hluti)

·         Fundargerð bæjarráðs 565. fundur

Ásgrímur fjallaði um umferðaröryggi innan Hafnar og fund sem nefndin átti með fulltrúum í Slysavarnardeildinni Framtíð um málið.  Ræddi hann einnig undirbúning að nýrri legu þjóðvegar í þéttbýli.

Björn Ingi tók undir orð Ásgríms og þakkaði deildinni fyrir framlag þeirra til að bæta umferðaröryggi.  Fjallaði hann einnig um umferðaröryggismál.
Fundargerð samþykkt samhljóða
.

·         Fundargerð bæjarráðs 566. fundur

Kristján fjallaði um frumkvöðla-og nýsköpunarstarf .

Valdemar fjallaði um bryggju við Melatanga.  Einnig ræddi hann um sölu á Pakkhúsinu og framtíðar uppbyggingu á Hafnarvík Heppu.

Árni Rúnar fjallaði um bókun undir öðrum lið og benti á að um væri að ræða teikningar af endurbótum fyrir Heppuskóla.  Árni ræddi einnig um Hafnarvík Heppu og sölu á Pakkhúsinu.

Hjalti gerði grein fyrir kynningu um nýtingu á Pakkhúsinu.  Ræddi hann einnig um uppbyggingu á Hafnarvík Heppu.  Fór hann yfir viljayfirlýsingu sem búið er að rita undir á milli sveitarfélagsins og FAS um uppbyggingu list- og verkgreinar.

Björn Ingi ræddi uppbyggingu á Hafnarvík Heppu.  Fjallaði hann einnig um nýjan hringveg um Hornafjarðarfljót.

Árni Rúnar ræddi um Hafnarvík Heppu.  Fjallaði hann einnig um samstarf um uppbyggingu list- og verkgreina.  Ræddi hann einnig um nýjan hringveg um Hornafjarðarfljót. 

Reynir fjallaði um forgangsröðun framkvæmda á Höfninni.  Ræddi hann einnig um nýjan hringveg um Hornafjarðarfljót.

Hjalti fjallaði um nýjan hringveg um Hornafjarðarfljót og uppbyggingu list- og verkgreina á Höfn.  Ræddi hann einnig Hafnarvík Heppu.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

 

·         Fundargerð bæjarráðs 567. fundur

Árni Rúnar óskaði eftir því að aukið verði við ræðutíma bæjarfulltrúa undir þeim fundargerðum sem fjallað eru um undir tillögum hans um skólamál.  Árni Rúnar fjallaði um skólamál. 

 

Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi tillögu um vinnu vegna árangurs nemenda Grunnskóla Hornafjarðar  á samræmdum prófum og las upp greinargerð með tillögunni sem einnig var dreift á fundarmenn.

 

Bæjarstjórn felur skóla -, íþrótta – og tómstundanefnd að meta hvort ástæða sé til að setja á fót starfshóp til þess að greina námsárangur nemenda Grunnskóla Hornafjarðar á samræmdum prófum. Hlutverk hópsins yrði m.a. að greina aðstæður nemenda á Hornafirði til náms og móta tillögur fyrir bæjarstjórn sem miða að því að bæta námsárangur nemenda Grunnskóla Hornafjarðar á samræmdum prófum. Niðurstaða skóla-, íþrótta – og tómstundanefndar skal liggja fyrir á fundi bæjarstjórnar í febrúar á næsta ári.

 

Ásgerður fjallaði um skólamál.  Lagði hún til að tillögu Árna verði vísað til umræðu í sóla-, íþrótta og tómstundanefndar. 

Reynir bar frávísunartillögu Ásgerðar upp til atkvæða. 

Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.

 

Árni Rúnar fjallaði um tillöguna og afgreiðslu hennar.

Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi tillögu um skoðun á aðild sveitarfélagsins að Skólaskrifstofu Suðurlands og las upp greinargerð með tillögunni sem einnig var dreift á fundarmenn.

 

Bæjarstjórn felur skóla - , íþrótta – og tómstundanefnd að kanna kosti þess að Sveitarfélagið Hornafjörður gerist aðili að Skólaskrifstofu Suðurlands.


Ásgerður fjallaði um fyrri tillögu Árna.  Ásgerður ræddi tillögu Árna um aðild að skólaskrifstofu og sagðist styðja hana.

Hjalti ræddi tillögu Árna um skólaskrifsstofu .

Björn Ingi fjallaði um tillögur Árna Rúnars.  Ræddi hann einnig um samþykktir um fundi og fundarsköp.  Björn Ingi ræddi bókun undir 12. lið um framsetningu reikninga sem sveitarfélagið gefur út.

Árni Rúnar fjallaði um tillögurnar sem hann lagði fram. 

Hjalti fjallaði um breytingar á samþykktum um fundi- og fundarsköp.  Ræddi hann einnig skólaskrifstofu og verkefni hennar. 

Ásgrímur ræddi sameiningamál og sjálfstæði Hornfirðinga og Íslendinga.

Reynir bar tillögu Árna Rúnars um skólaskrifsstofu upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

·                    Fundargerð bæjarráðs 568. Fundur
Björn Ingi ræddi málefni HSSA , fór yfir samskipi sveitarfélagsins við ráðuneyti heilbrigðismála. Sagði hann framkomu ráðuneytisins og áætlanir þess um niðurskurð til HSSA algjörlega óþolandi. Lagði hann fram eftirfarandi bókun sjálfstæðismanna.

Það er skýlaus krafa íbúa í Austur Skaftafellssýslu að stjórnvöld í landinu virði gildandi samninga og tryggi fjárheimildir til Heilbrigðisstofnunar Suð-Austurlands(HSSA) í samræmi við þann samning sem gerður var við sveitarfélagið Hornafjörð og rann út í lok árs 2006 og unnið er eftir þangað til nýr samningur liggur fyrir. Nauðsynlegt er að ganga frá frá málum HSSA með þeim hætti að ekki sé endalaus óvissa um heilbrigðismál í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið Hornafjörður tók við þessum málaflokki til reynslu árið 1996 og hefur sýnt fram á mikla útsjónasemi við reksturinn og nýtt fjármuni hins opinbera mun betur  en áður.  Í dag er mun lægra framlag til heilbrigðismála á þjónustusvæði HSSA en  í  sveitarfélögum með sambærilegan íbúafjölda. Þeir fjármundir sem veittir eru til stofnunarinnar árið 2011 verða að teljast algjört lágmark til að reka þjónustu  af þessu tagi  sértaklega miðað við stærð og landfræðilega staðsetningu.

Hjalti fjallaði um málefni HSSA og greindi frá erindum til velferðarráðuneytisins er lúta að fjármálum stofnunarinnar.  Lagði hann áherslu á að þrýst verði á viðræður við ráðuneytið vegna þess máls.
Árni Rúnar ræddi málefni HSSA og samskipti við ráðuneytið.

Björn Ingi fjallaði um málefni HSSA og samskipti við ráðuneytið.

Hjalti greindi frá samskiptum við ráðuneytið vegna málefna HSSA.

Björn Ingi ræddi um samning milli HSSA og ráðuneytisins.

Árni Rúnar ræddi um samning milli HSSA og ráðuneytisins.
Fundargerð samþykkt samhljóða

·         Fundargerð bæjarráðs 569. fundur

Björn Ingi ræddi fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og bar fram eftirfarandi tillögu og las upp greinargerð sem einnig var dreift á fundinum.

 

Við undirritaðir fulltrúar D-lista í bæjarstjórn leggjum til að þær breytingar verði gerðar á framkvæmdalið fjárhagsáætlunar að ekki verði farið í stækkun á Leikskólanum Krakkakot að upphæð 35 milljónir í stað þess verði þessi upphæð nýtt í lagfæringar á  götum og gangstéttum.

 

Hjalti fjallaði um tillögu sjálfstæðisflokksins. 

Valdemar ræddi um safnamál og uppbyggingu list- og verkgreina og lagði fram eftirfarandi bókun.

 

Við sjálfstæðismenn fögnum því að einkaaðilar komi að uppbyggingu á Hafnarvík/Heppu.  Jafnframt lýsum við yfir miklum áhyggjum með að nú er allt útlit fyrir að ekkert rými virðist verða fyrir skapandi greinar á svæðinu þar sem einn aðili hefur sótt um allar lausar lóðir og hús undir hótelstarfsemi sem hægt er að nýta samkvæmt því deiliskipulagi sem áformað er að samþykkja.  Við teljum afar mikilvægt að rými sé fyrir handverk og hönnun á svæðinu til að skapa áhugaverða stemmningu fyrir bæði heimamenn og gesti.  Sveitarfélagið þarf einnig að sýna forystu við uppbyggingu á þeirri starfsemi.  Við viljum öll sjá áhugavert og lifandi svæði á höfninni. 

 

Árni Rúnar fjallaði um starfsmannamál innan sveitarfélagsins og lagði fram eftirfarandi bókun vegna tillögu Sjálfstæðismanna: 

 

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar styður meginefni tillögu Sjálfstæðisflokksins um að ekki sé tímabært að fara í viðbyggingu við Krakkakot á næsta fjárhagsári. Eðlilegt sé að skoða málið frekar og kannað hvort mögulegt sé að leysa málið með öðrum og ódýrari hætti. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar styður hins vegar ekki það atriði í tillögunni sem lýtur að því að annars konar nýtingu fjármunanna. Af þessum sökum situr undirritaður hjá við afgreiðslu þessarar tillögu.

 

Reynir fjallaði um frumvarp til laga um álagningu fasteignagjalda fyrir stofnanir á vegum Ratsjárstofnunnar.

Björn Ingi fjallaði um tillöguna sem sjálfstæðismenn lögðu fram.

Hjalti fjallaði um Hafnarvík Heppu og uppbyggingu skapandi greina.  Ræddi hann einnig um starfmannamál á vegum sveitarfélagsins.  Ræddi hann einnig málefni leikskóla og dagmæðra.

Reynir ræddi tillögu sjálfstæðismanna um. 

Björn Ingi ræddi málefni leikskólanna.

Árni ræddi málefni leikskólanna.

Ásgrímur fjallaði um tillögu sjálfstæðismanna.  Ásgrímur ræddi einnig bókun sjálfstæðismanna um uppbyggingu á Hafnarvík Heppu.

Ásgerður bar upp tillögu sjálfstæðismanna um fjárhagsáætlun 2012 til atkvæða.

Tillagan var felld með fjórum atkvæðum, einn sat hjá og tveir greiddu með tillögunni.

Árni gerði grein fyrir atkvæði sínu.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

·         Fundargerð bæjarstjórnar, 173. fundur áður samþykkt.

Til kynningar.

 

2.                  Fjárhagsáætlun 2012 – síðari umræða  (útsending)

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2012  og þeim breytingum sem orðið hafa á milli umræðna.  Lykiltölur eru þessar samkvæmt áætluninni

 

  A Höfnin Veitur Íbúðir A-B
Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 85.685 49.113 828 -9.811 125.815
Skuldir í hlutfalli af tekjum 64,51%       74%
Framkvæmdir (m.kr.) 227 35 20 0 282
Handbært fé frá rekstri (m.kr.) 156.737 60.671 23.976 7.260 248.644
Handbært fé í árslok (m.kr.) 79.115 49.520 0 0 128.635
Afborganir langtímal. (m.kr.) 85.935 4.776 0 9.499 100.211
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 50 0 0 0 50

Björn Ingi ræddi fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og lagði fram eftirfarandi bókun Sjálfstæðismanna.

 

Framkvæmdahluti fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 er talsvert mikið breytt frá fyrri umræðu. Nánast er hægt að tala um nýja áætlun. Stærstu breytingarnar eru lækkun á framkvæmdum um 50 milljónir króna og lántaka lækkar. Í stað 220 milljóna verði tekin lán að upphæð 50 milljónir króna. Á þessu má meðal annars sjá að framkvæmdir upp á 50 milljónir hefðu kostað 170 milljónir í nýjum lánum. Við fyrri umræðu höfðum við Sjálfstæðismenn uppi varnaðarorð um að boginn væri teygður til hins ýtrasta. Ekki er hægt halda áfram án þess að velta því fyrir sér hvort þau orð  hafi haft þar eitthvað að segja. Við teljum að löngu tímabært sé að fara betur og markvissara ofan í fjárhagsáætlunargerð og láta hana raunverulega endurspegla hvað hver liður er að kosta. Þar mætti t.d. fara þá leið  að útgjöld til fræðslu mála væri bundið við nemendafjölda að stærstu leiti. Sama mætti gera við fleiri málaflokka og við þessa vinnu væri kannað  hvort ekki sé hægt að hagræða í rekstri

 

Árni Rúnar ræddi fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og lagði fram eftirfarandi bókun Samfylkingarinnar. 

 

Við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 3. nóvember sl. lagði Samfylkingin áherslu á að skoðað yrði hvort sveitarfélagið væri að spenna bogann of hátt í framkvæmdaáætlun. Frá fyrri umræðu hefur framkvæmdarammi næsta árs verið lækkaður um 50 milljónir sem undirstrikar nauðsyn þess að framkvæmdaramminn væri endurskoðaður. Samfylkingin lagði einnig áherslu á við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun að skoðað yrði hvernig hagræða mætti í fræðslumálum sveitarfélagsins. Í því samhengi lagði Samfylkingin til að kanna hvort mögulegt væri að hagræða í stjórnunarkostnaði í leik – og grunnskólum sveitarfélagsins án þess að það kæmi niður á þjónustu við nemendur.

            Eins og sjá má á breytingum á framkvæmdaramma næsta árs þá hefur að einhverju leyti verið komið til móts við áherslur Samfylkingarinnar við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun næsta árs. Því ber að fagna. Á hinn bóginn hefur engin tilraun verið gerð til þess að leita hagræðingar í fræðslumálum sveitarfélagsins og enginn vilji hefur verið til þess að skoða mögulega hagræðingu í stjórnunarkostnaði leik – og grunnskóla. Sú vinna er að mati Samfylkingarinnar löngu tímabær. Alvarlegasta athugasemd bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar varðandi fjárhagsáætlun næsta árs og m.v. drög að þriggja ára áætlun er sú stefna að leggja 230 milljónir í framkvæmdir við leik – og grunnskóla sveitarfélagsins án þess að fyrir liggi nægjanlega skýr framtíðarsýn um nýtingu þessa húsnæðis. Þessar hugmyndir um nýtingu fjármuna ríma heldur ekki nógu vel við þróun nemendafjölda á síðustu árum og spár um þá þróun á næstu árum. Af þessum sökum og með vísan til fyrri bókana um skólamál á undangengnum fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs mun bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar ekki greiða fjárhagsáætlun 2012 atkvæði sitt.

 

Einnig lagði Árni fram eftirfarandi bókun um hækkun tómstundastyrks:

 

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2012 áréttar Samfylkingin að umræða um hækkun tómstundastyrks var að frumkvæði bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar á fundi bæjarstjórnar 6. október. Á seinni stigum  fjárhagsáætlunargerðarinnar virðist sá misskilningur hafa komist á kreik að um væri að ræða tillögu skóla -, íþrótta – og tómstundanefndar. Mikilvægt er að bæjarstjórn tileinki sér ekki ógagnsæ vinnubrögð af þessum toga í framtíðinni.

 

Reynir Arnarsson ræddi fjárhagsáætlun 2012.  Mælti hann með því að fjárhagsáætlun verði samþykkt.

Hjalti Þór fjallaði um fjárhagsáætlun 2012.

Ásgrímur fjallaði um fjárhagsáætlun 2012.

Björn Ingi fjallaði um fjárhagsáætlun 2012.

Ásgrímur fjallaði um fjárhagsáætlun 2012.

Hjalti fjallaði um íbúaþróun í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Árni Rúnar fjallaði um skólamál og íbúaþróun.

Reynir fjallaði um íbúaþróun.

 

Fjárhagsáætlun 2012 samþykkt með fjórum greiddum atkvæðum, þrír sátu hjá.
 

3.        Þriggja ára áætlun 2013 – 2015 – fyrri umræða  (útsending)

Hjalti fylgdi áætlun úr hlaði

Kom fram að niðurstaða samstæðu fyrir A og B hluta væri eins og eftirfarandi tafla sýnir fyrir.

  2013 2014 2015
Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 128 128 129
Skuldir í hlutfalli af tekjum 74% 70% 69%
Framkvæmdir (m.kr.) 226 141 140
Handbært fé frá rekstri (m.kr.) 257 260 262
Handbært fé í árslok (m.kr.) 106 117 182
Afborganir langtímal. (m.kr.) -103 -107 -108
Ný lántaka (m.kr.) 50   50

Samþykkt að vísa þriggja ára til síðari umræðu í bæjarstjórn.

 

4.                  Hafnarvík Heppa deiliskipulag – síðari umræða  (útsending)

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði.  Gerði hann grein fyrir vinnu og þeirri kynningu sem skipulagið hefur fengið.  Haldinn var kynningarfundur í Pakkhúsinu á kynningartímanum.  Tvær ábendingar bárust vegna skipulagsins og lagði hann fram drög að svarbréfum við þeim sem umhverfis- og skipulagsnefnd hefur unnið.  Lagði hann til að bæjarstjórn geri svörin að sínum og sendi til þeirra aðila sem lögðu fram ábendingarnar.  Einnig lagði hann til að bæjarstjórn samþykki framlagða skipulagstillögu í óbreyttri mynd frá fyrri umræðu og að starfsmönnum verði falið að ljúka við hið lögformlega ferli og senda skipulagið til staðfestingar Skipulagsstofnunar eftir að formleg fornleifaskráning hefur farið fram. 

 

Árni Rúnar fjallaði um deiliskipulagið.

Björn Ingi fjallaði um deiliskipulagið.

Reynir fjallaði um deiliskipulagið.

Hjalti fjallaði um deiliskipulagið. 

Árni Rúnar fjallaði um deiliskipulagið.

Hjalti gerði grein fyrir samræðum við þá aðila sem hafa sýnt svæðinu áhuga.

Ásgerður bar deiliskipulagið upp til atkvæða.  Voru þær samþykktar samhljóða.

 

5.      Fyrirspurnir bæjarstjórnar.

Engar  


Fundi slitið kl. 20.07.


Fundargerðir

Dag.grein
02.05.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 191
04.04.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 190
07.03.2013 Fundargerð  bæjarstjórnar 189
07.02.2013 Fundargerð bæjarstjórnar 188
06.12.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 187
01.11.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 186
04.10.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 185
17.09.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 184
23.08.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 183
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
12.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 182
07.06.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 181
10.05.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 180
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
12.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 178
08.03.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 177
09.02.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 176
12.01.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 175
07.12.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 174
03.11.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 173
06.10.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 172
01.09.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 171
11.08.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 170
09.06.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 169
05.05.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 168
08.04.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 167
03.03.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 166
03.02.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 165
13.01.2011 Fundargerð bæjarstjórnar 164
16.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 163
02.12.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 162
04.11.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 161
11.10.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 159
02.09.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 158
16.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 156
07.06.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 155
06.05.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 154
08.04.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 153
04.03.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 152
04.02.2010 Fundargerð bæjarstjórnar 151
10.12.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 150
05.11.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 148
08.10.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 147
03.09.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 146
20.08.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 145
11.06.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 144
12.05.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 143
02.04.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 142
11.03.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 141
28.01.2009 Fundargerð bæjarstjórnar 140
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica